Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
2. júlí 2025
Útgáfudagur
16. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 804/2025
2. júlí 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3137 frá 13. desember 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin gerð:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3137 frá 13. desember 2024 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 314-332.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 228. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 2. júlí 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. júlí 2025