Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Dalabyggð
Undirritunardagur
14. september 2026
Útgáfudagur
5. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1057/2026
14. september 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vatnsmiðlunar í Hvanná.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 14. september 2026 breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. mars 2026.
Í breytingunni felst skilgreining á jarðvegsstíflu og miðlunarlóni á um 70 ha svæði til að stýra vatnsflæði í Hvanná.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 14. september 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 5. október 2026