Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
13. febrúar 2013
Útgáfudagur
28. febrúar 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 187/2013
13. febrúar 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 500/2011 um doktorsnám við félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
32. gr., um doktorsnámsnefnd, orðast svo:
Í hagfræðideild starfar doktorsnámsnefnd, sem gegnir hlutverki fastanefndar sbr. 2. gr. Í doktorsnámsnefnd sitja þrír fulltrúar, sem kosnir eru á deildarfundi og skal formaður hennar vera fulltrúi deildar í vísindanefnd félagsvísindasviðs. Skipað skal í doktorsnámsnefnd til þriggja ára í senn. Deildarforseti getur setið fundi nefndarinnar.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 13. febrúar 2013.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 28. febrúar 2013