Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Strandabyggð
Málaflokkur
Hafnamál, Strandasýsla
Undirritunardagur
17. desember 2025
Útgáfudagur
7. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1620/2025
17. desember 2025
GJALDSKRÁ
Hafnarsjóðs Strandabyggðar.
I. KAFLI Almennt.
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði 1. Miðað er við að hafnarsjóður geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga þ.m.t. fjármagnskostnaði, afskriftum og rekstri. Gjaldskráin tekur breytingum skv. ákvörðun sveitarstjórnar hverju sinni. Virðisaukaskattur 24% leggst á öll gjöld við útgáfu reikninga.
II. KAFLI Um gjaldtöku tengda stærð skipa.
2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu (bt) skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969. Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.
III. KAFLI Skipagjöld.
3. gr.
Lestargjöld.
Af öllum skipum skal greiða lestargjald, 22 kr. á mælieiningu (1 mælieining = bt) skv. 2. gr., en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
Bryggjugjöld.
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 12 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Fiskiskip greiða þetta gjald eigi oftar en 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, 160 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 18.150 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 bt greiði þó aldrei lægra en 11.845 kr. á mánuði.
Farþegabátar, hvalaskoðunar- og sjóstangaveiðibátar yfir 20 tonn greiði tvöfalt viðlegugjald. Þau skip og bátar sem ekki greiða aflagjald í 6 mánuði samfellt greiði tvöfalt viðlegugjald. Skútur og skemmtibátar sem koma til hafnar greiði 15.500 kr. fyrir hverja byrjaða viku.
Skip sem ekki er í rekstri né leggur upp afla hjá Hólmavíkurhöfn, skal greiða fullt bryggjugjald fyrir hvern legudag og nýtur ekki afsláttarkjara í formi viðlegugjalds. Skip sem legið hefur óhreyft lengur en 6 mánuði í höfn telst ekki lengur í rekstri.
Undanþegin eru varðskip og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.
Vatnsgjald fyrir báta undir 30 bt er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.
Lestar- og bryggjugjöld eru innifalin í viðlegugjaldi, sjá 14. gr.
IV. KAFLI Vörugjöld.
4. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.
5. gr.
Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:
- Umbúðir sem endursendar eru
- Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar
- Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna
- Úrgangur sem fluttur er til eyðingar
6. gr.
Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu ósundurliðaðar fleiri en ein vörutegund í sendingu skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.
V. KAFLI Vörugjaldaskrá.
7. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:
| 1. fl. | Gjald kr. 458 fyrir hvert tonn: |
| Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu. | |
| 2. fl. | Gjald kr. 832 fyrir hvert tonn: |
| Lýsi og fiskimjöl. | |
| 3. fl. | Gjald kr. 920 fyrir hvert tonn: |
| Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir. | |
| 4. fl. | Gjald kr. 1.186 fyrir hvert tonn: |
| Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu og brottflutnings. | |
| 5. fl. | Aflagjald reiknast 1,89% af heildarverðmæti. |
| Kaupanda afla ber að afhenda skrifstofu Strandabyggðar skýrslu um keyptan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds. Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er kr. 7.625 fyrir hvert tonn. | |
| Lágmarksgjald í öllum flokkum er 415 kr. | |
| Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt. | |
| Af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast aflagjald af helmingi heildarverðmætis. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði. |
VI. KAFLI Sorphirða.
8. gr.
Eftirfarandi gildir fyrir skip og báta sem hafa fasta viðveru og borga mánaðargjald:
| Frístundabátar | 553 kr. á mánuði |
| Bátar að 20 bt | 2.352 kr. á mánuði |
| Bátar 21-30 bt | 3.463 kr. á mánuði |
| Bátar yfir 30 bt | 7.029 kr. á mánuði |
Móttaka á sorpi, ein ferð á flokkunarstöð 15.356 kr.
Að auki reiknast kostnaður vegna gjaldskrár Sorpsamlags Strandasýslu sem getur verið breytilegur.
Aths.: Tekið er lágmarksgjald hvort sem skilað er inn úrgangi eða ekki. Forsvarsmenn útgerða eru því hvattir til að safna saman úrgangi og skila inn við komu í höfn. Förgunargjaldið skal standa undir kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.
Vegna skipa sem hafa ekki fasta viðveru, skal greiða gjöld fyrir sorp skv. gjaldskrá sorpmóttakanda.
- Úrgangsgjald: Við komu skips til hafnar skal greiða 1 kr./bt gjald sem skal standa undir kostnaði vegna eftirlits og umsýslu við móttöku á sorpi. Lágmarksgjald 7.790 kr. og hámarksgjald kr. 66.050 kr.
- Úrgangsgjald: Gjald sem lagt er á vegna a-liðar má lækka ef skipstjóri getur sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð í skipinu fast gjald 1 kr. á bt en þá er lágmarksgjald 7.524 kr. en hámarksgjald 63.814 kr.
- Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á árinu greiða skv. b-lið fyrir fimmtu komu og allar komur eftir það.
- Skip og bátar sem hafa varanlega viðlegu skulu greiða fast mánaðargjald vegna umsýslu og eftirlits hafnar vegna móttöku á sorpi. Gjaldið skal vera, sbr. 1. mgr. hér að framan.
- Förgunargjald: Við komu skips til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. gr. laga nr. 33/2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land eða ekki. Förgunargjaldið skal standa undir kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.
- Farþegaskip yfir 60 m að lengd skulu greiða 2 kr. á hverja brúttótonnatölu skipsins og miðast gjaldið við eftirfarandi sorpmagn
- Farþegaskip undir 30.000 bt 5 m³
- Farþegaskip frá 30.000 bt 10 m³
- Farþegaskip yfir 100.000 bt 15 m³
- Öll önnur skip skulu greiða kr. 3 á bt og þá miðast gjaldið við 5 m³ af sorpi.
- Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald samkvæmt e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losun magns. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist á skrifstofu Strandabyggðar innan tveggja sólarhringa frá brottför skips. Kjósi skipstjóri eða útgerðarmaður þjónustu viðurkennds sorpmótökuaðila þá greiðir hann allan kostnað þar að lútandi og skal skila til hafnarinnar útfylltu eyðublaði um magn og sundurliðun þess úrgangs sem skilað er í land. Misbrestur á þessu getur leitt til tilkynningar til Umhverfis- og orkustofnunar.
- Samkvæmt 11. gr. reglugerðar nr. 1200/2004 getur Umhverfis- og orkustofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum sem hafa reglulega viðkomu í Hólmavíkurhöfn og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni, undanþágu frá afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu Umhverfis- og orkustofnunar um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis
- Förgunargjald: Fyrir skip sem eru undanþegin gjaldskyldu skv. c-lið 1. tl 2. mgr. 17. gr. hafnalaga nr. 33/2004, skal eftir sem áður greiða fyrir losun og förgun sorps hvort sem óskað er eftir viðurkenndum móttökuaðila eða ekki.
VII. KAFLI Festargjöld.
9. gr.
Festargjald fyrir hvern starfsmann í dagvinnu verði 16.635 kr.
Festargjald fyrir hvern starfsmann í yfirvinnu verði 22.058 kr.
Greiða skal gjöld bæði fyrir komu og brottför. Við komu skipa eru tveir starfsmenn en við brottför einn. Þó er hægt að fá undanþágu hjá hafnarverði frá reglu þessari í sérstökum tilfellum.
VIII. KAFLI Vatnssala.
10. gr.
Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju.
| Vatn afgreitt til skipa 31-60 bt | 7.618 kr. í hvert skipti | |
| Vatn afgreitt til skipa yfir 60 bt | 11.726 kr. í hvert skipti |
Vatnsgjald fyrir báta undir 30 bt er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.
Vatnsgjald er innifalið í viðlegugjaldi.
IX. KAFLI Vigtargjald.
11. gr.
| Almenn vigtun | 232 kr. á hvert byrjað tonn |
| Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun | 1.040 kr. |
| Vigtun í yfirvinnu | 8.000 kr. pr. klst. |
Ef kalla þarf í vigtarmann eftir lokun hafnarvogar greiðast 4 klst í útkall á hvern bát.
Opnun hafnarinnar er frá kl. 8.00 – 21.00 virka daga og 12.00 – 20.00 um helgar.
X. KAFLI Rafmagnssala.
12. gr.
| Rafmagnssala | 24 kr. á kWst. |
| Mæla og tenglagjald | 3.915 kr. |
| 125 AMP tenglar 2 tenglagjöld pr. mánuð | 10.494 kr. |
| Rafmagnstengigjald | 3.822 kr. |
| Rafmagnstengigjald í yfirvinnu | 7.420 kr. |
Hægt er að vera með eigin mæla séu þeir viðurkenndir og samþykktir af starfsmönnum hafnarinnar, fellur þá niður mæla og tengigjald.
Rafmagnsgjöld geta breyst án fyrirvara samkvæmt breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða hverju sinni.
XI. KAFLI Kranagjald.
13. gr.
Kranagjald, löndun með krönum hafnarinnar 500 kr. á hvert byrjað tonn.
XII. KAFLI Viðlegugjald.
14. gr.
| Frístundabátar (undir 6 m) | 6.485 kr. á mánuði |
| Frístundabátar (yfir 6 m gildir sama verðskrá og um báta undir 20-yfir 20 bt) | |
| Frístundabátar (12-16 m gildir verðskrá um báta yfir 20 bt) | |
| Frístundabátar yfir 16 m (gilda bryggju og lestargjöld) | |
| Bátar undir 20 bt | 10.765 kr. á mánuði |
| Bátar yfir 20 bt | 15.625 kr. á mánuði |
| Bátar undir 20 bt fast legupláss | 17.340 kr. á mánuði |
| Bátar yfir 20 bt fast legupláss | 21.400 kr. á mánuði |
| Daggjald bátar undir 20 bt | 3.245 kr. |
| Daggjald bátar yfir 20 bt | 4.540 kr. |
| Skip yfir 80 bt | 166 kr. á bt á mánuði |
| Gjald vegna aðstöðu fyrir olíuafgreiðslu | 19.990 kr. á mánuði |
Í viðlegugjaldi eru innifalin lestargjöld, bryggjugjöld og vatnsgjald.
Þeir bátar sem dvelja lengur í höfninni en 30 daga á ári eiga kost á að greiða viðlegugjald.
XIII. KAFLI Hafnsögugjald
15. gr.
| Hafnsögugjald | 9 kr. á mælieiningu |
| Hafnsögugjald til og frá höfn | 9.480 kr. pr. klst. |
| Hafnsögubátur | 33.355 kr. |
XIV. KAFLI Farþegagjöld.
16. gr.
Fyrir hvern fullorðinn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum 235 kr. Fyrir hvert barn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum 100 kr. Skemmtiferðaskip skulu skila inn farþegalistum minnst einum sólarhring fyrir komu en farþegabátar með áætlunarsiglingar til og frá Hólmavíkurhöfn skila inn gögnum um fjölda farþega mánaðarlega. Eingöngu eru greidd farþegagjöld af greiðandi farþegum.
XV. KAFLI Siglingavernd (ISPS).
17. gr.
| Öryggisgjald fyrir skip sem falla undir skilgreiningu hafnverndar | 67.315 kr. á komu |
| Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í dagvinnu | 7.720 kr. pr. klst. |
| Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í yfirvinnu | 12.480 kr. pr. klst. |
XVI. KAFLI Skráningargjald.
18. gr.
Skráning í Gaflinn á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi 0,43 kr. á kg.
XVII. KAFLI Um innheimtu og greiðslu gjalda.
19. gr.
Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Heimilt er að leita samþykkis hafnarstjóra til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjör skulda.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.
20. gr.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Strandabyggðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa starfsmanni hafnar upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál og afhenda starfsmanni hafnarinnar þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef starfsmaður hafnarinnar krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá starfsmanni hafnarinnar að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.
21. gr.
Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar á annan hátt sjóleiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.
22. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi og/eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Starfsmanni hafnarinnar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
23. gr.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Strandabyggðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
XVIII. KAFLI Gildistaka.
24. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar var samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025. Gjaldskráin tekur þegar gildi og fellur jafnframt brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1738/2024.
Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 9. desember 2025.
Strandabyggð, 17. desember 2025.
Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026