Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Fjárlög - ríkisreikningur

Undirritunardagur

23. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 97/2025

23. desember 2025

FJÁRLÖG

fyrir árið 2026.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

Fjárstreymi ríkissjóðs (A1-hluta)

1. gr.

Árið 2026 er gert ráð fyrir að fjárreiður ríkissjóðs (A1-hluta) verði eins og tilgreint er í þessari grein, sbr. sundurliðun 1 og 2.

Rekstrargrunnur m.kr.
Heildartekjur 1.592.791,2
  Skatttekjur 1.242.099,9
    Skattar á tekjur og hagnað 550.250,0
    Skattar á launagreiðslur og vinnuafl 13.896,0
    Eignarskattar 16.433,0
    Skattar á vöru og þjónustu 634.859,6
    Skattar á alþjóðaverslun og viðskipti 7.070,5
    Aðrir skattar 19.590,8
  Tryggingagjöld 162.444,0
  Fjárframlög 8.013,1
  Aðrar tekjur 180.234,2
    Eignatekjur 126.601,6
      þ.a. vaxtatekjur 53.016,7
      þ.a. arðgreiðslur 56.828,0
    Sala á vöru og þjónustu 45.914,3
    Ýmsar tekjur 7.718,3
Heildargjöld 1.620.922,2
  Rekstrarútgjöld 1.604.358,2
    Laun 351.203,5
    Kaup á vöru og þjónustu 248.290,3
    Afskriftir 98.313,5
    Vaxtagjöld 148.239,8
    Framleiðslustyrkir 69.462,1
    Fjárframlög 570.136,2
    Félagslegar tilfærslur til heimila 34.689,0

    Tilfærsluútgjöld önnur en fjárframlög

84.023,9
Rekstrarjöfnuður -11.567,0
  Hrein fjárfesting í efnislegum eignum 16.564,0
    Fjárfesting í efnislegum eignum 114.877,5
    Afskriftir (-) -98.313,5
Heildarjöfnuður -28.131,0
Frumjöfnuður 67.092,0
Peningalegar eignir, hreyfingar -15.502,8
    Sjóður og bankareikningar, nettó -41.649,1
    Lánveitingar 6.096,0
    Hlutafé og stofnfjárframlög 806,0
    Viðskiptakröfur 19.244,3
Skuldir, hreyfingar 12.628,2
    Lántökur 38.135,4
    Lífeyrisskuldbindingar -10.429,0
    Viðskiptaskuldir -15.078,2

Sjóðstreymi ríkissjóðs (A1-hluta)

2. gr.

Árið 2026 er áætlað að sjóðstreymi ríkissjóðs (A1-hluta) verði eins og tilgreint er í þessari grein.

Rekstrarhreyfingar m.kr.
   
Innheimta 1.484.904,8
    Skatttekjur 1.214.463,1
    Tryggingagjöld 159.607,0
    Fjárframlög 8.013,1
    Fjármunatekjur 32.914,5
    Aðrar tekjur 69.907,1
   
Greiðslur 1.516.503,9
    Rekstrargjöld án fjármagnskostnaðar 736.279,5
    Rekstrartilfærslur 634.060,3
    Fjármagnstilfærslur 55.478,1
    Fjármagnskostnaður 90.686,0
   
Handbært fé frá rekstri -31.599,1

 

 

Fjárfestingarhreyfingar

 

    Fjárfesting

-87.378,4
    Sala eigna 800,0
    Veitt löng lán -30.850,0
    Innheimtar afborganir af veittum lánum 24.754,0
    Móttekinn arður 56.828,0
    Framlag til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins -10.733,0
    Eiginfjárframlög og hlutabréfakaup -1.606,0
    Fjárfestingarhreyfingar samtals -48.185,4
   
Hreinn lánsfjárjöfnuður -79.784,5

 

 

Fjármögnunarhreyfingar

 

    Tekin langtímalán

283.392,0
    Afborganir af teknum langtímalánum -245.256,6
Fjármögnunarhreyfingar samtals 38.135,4
   
Breyting á handbæru fé -41.649,1

Fjárheimildir ríkissjóðs (A1-hluta) eftir málefnasviðum

3. gr.

Árið 2026 er gert ráð fyrir að fjárheimildir fyrir heildargjöldum, rekstrartekjur og framlag úr ríkissjóði fyrir málefnasvið ríkissjóðs (A1-hluta) verði eins og tilgreint er í þessari grein.

Rekstrar­grunnur, m.kr. Rekstrar­framlög Rekstrar­tilfærslur Fjár­magns­­tilfærslur Fjárfest­ingar­framlög Heildar­fjár­heimild Rekstrar­tekjur Framlag úr ríkis­sjóði
01 Alþingi og eftirlits­stofnanir þess 6.725,9 145,4   133,9 7.005,2 -209,8 6.795,4
02 Dómstólar 4.531,0     74,8 4.605,8 -1,7 4.604,1
03 Æðsta stjórnsýsla 2.587,5 35,3   616,3 3.239,1   3.239,1
04 Utanríkis­mál 14.407,4 8.810,4   395,8 23.613,6 -707,6 22.906,0
05 Skatta-, eigna- og fjármála­umsýsla 25.756,8 876,9   3.750,0 30.383,7 -6.241,5 24.142,2
06 Hagskýrslu­gerð og grunnskrár 3.483,2     75,7 3.558,9 -700,5 2.858,4
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar 1.417,7 4.426,7 28.343,4 72,9 34.260,7 -999,3 33.261,4
08 Sveitarfélög og byggðamál 1.603,6 38.088,5   419,0 40.111,1   40.111,1
09 Almanna- og réttaröryggi 45.732,6 585,3 53,5 3.933,8 50.305,2 -2.796,7 47.508,5
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála 14.926,3 8.343,3   736,9 24.006,5 -335,8 23.670,7
11 Samgöngu- og fjarskipta­mál 21.547,5 9.135,3 1.740,6 43.808,2 76.231,6 -2.905,9 73.325,7
12 Land­búnaður 5.870,1 19.963,2   80,0 25.913,3 -1.109,1 24.804,2
13 Sjávarútvegur og fiskeldi 7.254,2 1.018,9 400,0 291,0 8.964,1 -2.145,6 6.818,5
14 Ferða­þjónusta 768,3 1.222,6 489,6 2,3 2.482,8 -46,4 2.436,4
15 Orkumál 259,6 6.491,6 5.193,9   11.945,1   11.945,1
16 Markaðs­eftirlit og neytenda­mál 1.033,3 3.808,6   7,0 4.848,9 -30,1 4.818,8
17 Umhverfismál 22.746,1 11.192,2 5.030,2 1.455,9 40.424,4 -5.303,0 33.621,4
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál 14.267,3 8.127,6 516,2 1.555,7 24.466,8 -2.619,3 21.847,5
19 Fjölmiðlun 6.866,0 659,6   1,0 7.526,6   7.526,6
20 Framhalds­skóla­stig 49.649,1 3.099,5 40,1 572,6 53.361,3 -2.219,2 51.142,1
21 Háskóla­stig 66.090,6 6.156,5   1.118,8 73.365,9 -17.877,1 55.488,8
22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála 4.398,2 2.729,7   14,1 7.142,0 -428,8 6.713,2
23 Sjúkrahús­þjónusta 160.328,7 4.612,2 4.111,0 23.515,2 192.567,1 -11.907,5 180.659,6
24 Heilbrigðis­þjónusta utan sjúkrahúsa 55.061,2 48.998,7   174,0 104.233,9 -1.756,5 102.477,4
25 Hjúkrunar- og endurhæfingar­þjónusta 88.183,9 895,0 2.704,6 12,5 91.796,0 -4.592,9 87.203,1
26 Lyf og lækninga­vörur 16.924,5 27.668,5     44.593,0   44.593,0
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks 83,1 141.210,2   0,3 141.293,6 -11,3 141.282,3
28 Málefni aldraðra 2,1 125.788,0     125.790,1 -8,3 125.781,8
29 Fjölskyldumál 8.951,0 75.446,7   1.783,3 86.181,0 -251,9 85.384,1
30 Vinnu­markaður og atvinnuleysi 5.169,9 43.882,1   148,4 49.200,4 -1.194,0 48.006,4
31 Húsnæðis- og skipulagsmál 4.439,7 12.312,9 8.900,0 260,5 25.913,1 -1.669,5 24.243,6
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála 13.473,2 960,8   59,5 14.493,5 -1.335,8 13.157,7
33 Fjármagns­kostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindi 210.268,6     110,0 210.378,6   133.911,8
34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir 20.776,6 1.552,8   2.289,0 24.618,4   17.430,3
35 Alþjóðleg þróunarsamvinna 3.376,1 12.996,4     16.372,5 -4,9 16.367,6
Samtals 908.960,9 631.241,4 57.523,1 87.468,4 1.685.193,8 -69.410,0 1.530.083,9
þar af aðlögun vegna rekstrartekna         -14.511,6 14.511,6  
þar af vegna tapaðra krafna         -90,0    
þar af vegna endurgreiðslu VSK til opinberra aðila         18.900,0    
þar af vegna sölu fastafjármuna         -806,3    
þar af vegna framsetningar lífeyris­skuldbindinga         -60.575,6    
þar af v/ afskrifta skattkrafna         -7.188,1    
Samtals skv. GFS staðli         1.620.922,2 -54.898,4 1.530.083,9

Fjárheimildir ríkissjóðs (A1-hluta) eftir málefnasviðum og málaflokkum

4. gr.

Árið 2026 er gert ráð fyrir að framlög úr ríkissjóði (A1-hluta) og fjárheimildir fyrir heildargjöldum, án rekstrartekna, sundurliðaðar eftir málefnasviðum, málaflokkum og ráðuneytum verði eins og tilgreint er í þessari grein.

Rekstrar­grunnur, m.kr. Rekstrar­framlög Rekstrar­tilfærslur Fjár­magns­tilfærslur Fjárfest­ingar­framlög Heildar­fjár­heimild Fram­lag úr ríkis­sjóði
00 Æðsta stjórn ríkisins 8.287,6 145,4   145,7 8.578,7 8.368,9
01 Alþingi og eftirlits­stofnanir þess 6.725,9 145,4   133,9 7.005,2 6.795,4
01.10 Alþingi 5.096,0 119,9   119,9 5.335,8 5.296,8
01.20 Eftirlits­stofnanir Alþingis 1.629,9 25,5   14,0 1.669,4 1.498,6
02 Dómstólar 296,7       296,7 296,7
02.10 Hæstiréttur 296,7       296,7 296,7
03 Æðsta stjórnsýsla 1.265,0     11,8 1.276,8 1.276,8
03.10 Embætti forseta Íslands 410,2     11,8 422,0 422,0
03.20 Ríkisstjórn 854,8       854,8 854,8
01 Forsætis­ráðuneyti 5.093,9 35,3   1.084,6 6.213,8 5.258,2
03 Æðsta stjórnsýsla 1.322,5 35,3   604,5 1.962,3 1.962,3
03.30 Forsætisráðuneyti 1.322,5 35,3   604,5 1.962,3 1.962,3
06 Hagskýrslu­gerð og grunnskrár 2.171,5     26,0 2.197,5 1.956,2
06.10 Hagskýrslu­gerð, grunnskrár og upplýsinga­mál 2.171,5     26,0 2.197,5 1.956,2
08 Sveitarfélög og byggðamál 290,4     419,0 709,4 709,4
08.20 Byggða­mál 290,4     419,0 709,4 709,4
09 Almanna- og réttaröryggi 392,0     2,5 394,5 382,7
09.30 Ákæruvald og réttarvarsla 392,0     2,5 394,5 382,7
17 Umhverfis­mál 825,9     31,2 857,1 154,6
17.10 Náttúru­vernd, skógrækt og landgræðsla 825,9     31,2 857,1 154,6
29 Fjölskyldumál 91,6     1,4 93,0 93,0
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn 91,6     1,4 93,0 93,0
02 Mennta- og barnamála­ráðuneyti 59.016,1 12.108,6 40,1 3.094,8 74.259,6 71.531,9
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál 369,4 1.838,0   1.238,0 3.445,4 3.445,4
18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál 369,4 1.838,0   1.238,0 3.445,4 3.445,4
20 Framhalds­skóla­stig 49.649,1 3.099,5 40,1 572,6 53.361,3 51.142,1
20.10 Framhalds­skólar 49.639,6 1.175,3 40,1 572,6 51.427,6 49.208,4
20.20 Tónlistar­fræðsla   812,8     812,8 812,8
20.30 Vinnustaða­nám og styrkir 9,5 383,1     392,6 392,6
20.40 Jöfnun námskostnaðar   728,3     728,3 728,3
22 Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála 4.044,7 2.725,2   11,9 6.781,8 6.409,2
22.10 Leikskóla- og grunnskóla­stig 1.024,5 594,3     1.618,8 1.618,8
22.20 Framhalds­fræðsla og menntun óflokkuð á skólastig 327,8 2.112,1     2.439,9 2.439,9
22.30 Stjórnsýsla mennta- og barnamála 2.692,4 18,8   11,9 2.723,1 2.350,5
29 Fjölskyldu­mál 4.952,9 4.445,9   1.272,3 10.671,1 10.535,2
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn 4.952,9 4.374,1   1.272,3 10.599,3 10.463,4
29.70 Málefni innflytjenda og flóttamanna   71,8     71,8 71,8
03 Utanríkis­ráðuneyti 17.783,5 21.806,8   395,8 39.986,1 39.273,6
04 Utanríkis­mál 14.407,4 8.810,4   395,8 23.613,6 22.906,0
04.10 Utanríkis­þjónusta og stjórnsýsla utanríkismála 7.302,3 148,4   188,8 7.639,5 7.068,8
04.20 Utanríkis­viðskipti   1.249,8     1.249,8 1.249,8
04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál 7.105,1 3.507,3   207,0 10.819,4 10.682,5
04.50 Samnings­bundin framlög vegna fjölþjóða­samstarfs   3.904,9     3.904,9 3.904,9
35 Alþjóðleg þróunar­samvinna 3.376,1 12.996,4     16.372,5 16.367,6
35.10 Þróunar­samvinna 3.376,1 12.996,4     16.372,5 16.367,6
04 Atvinnuvega­ráðuneyti 15.281,8 22.410,9 1.354,1 380,9 39.427,7 36.075,0
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar 120,3   464,5 0,6 585,4 563,9
07.10 Vísindi og samkeppnis­sjóðir í rannsóknum 33,2   464,5   497,7 497,7
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingar­greinar 87,1     0,6 87,7 66,2
12 Landbúnaður 5.870,1 19.963,2   80,0 25.913,3 24.804,2
12.10 Stjórnun landbúnaðar­mála 3.671,3 19.835,3   69,3 23.575,9 22.499,2
12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðar­málum 754,5 127,9     882,4 882,4
12.60 Stjórnsýsla atvinnuvega­ráðuneytis 1.444,3     10,7 1.455,0 1.422,6
13 Sjávarútvegur og fiskeldi 7.254,2 1.018,9 400,0 291,0 8.964,1 6.818,5
13.10 Stjórnun sjávarútvegs og fiskeldis 1.319,5 868,1   30,2 2.217,8 2.048,2
13.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi 5.934,7 150,8 400,0 260,8 6.746,3 4.770,3
14 Ferðaþjónusta 768,3 1.222,6 489,6 2,3 2.482,8 2.436,4
14.10 Ferðaþjónusta 768,3 1.222,6 489,6 2,3 2.482,8 2.436,4
16 Markaðs­eftirlit og neytendamál 1.033,3 206,2   7,0 1.246,5 1.216,4
16.10 Markaðs­eftirlit og neytenda­mál 919,6 70,3   7,0 996,9 983,0
16.20 Stjórnsýsla atvinnumála og nýsköpunar 113,7 135,9     249,6 233,4
17 Umhverfis­mál 3,2       3,2 3,2
17.10 Náttúru­vernd, skógrækt og landgræðsla 3,2       3,2 3,2
21 Háskólastig 232,4       232,4 232,4
21.10 Háskólar og rannsókna­starfsemi 232,4       232,4 232,4
06 Dómsmála­ráðuneyti 63.533,9 9.492,4 53,5 4.793,6 77.873,4 73.735,1
02 Dómstólar 4.234,3     74,8 4.309,1 4.307,4
02.10 Hæstiréttur 305,4     2,5 307,9 307,9
02.20 Héraðs­dómstólar 2.487,0     20,0 2.507,0 2.505,3
02.30 Landsréttur 1.023,2     4,0 1.027,2 1.027,2
02.40 Dómstóla­sýslan 418,7     48,3 467,0 467,0
06 Hagskýrslu­gerð og grunnskrár 1.251,8     49,7 1.301,5 842,3
06.10 Hagskýrslu­gerð, grunnskrár og upplýsinga­mál 1.251,8     49,7 1.301,5 842,3
09 Almanna- og réttaröryggi 45.340,6 585,3 53,5 3.931,3 49.910,7 47.125,8
09.10 Löggæsla 28.082,4 529,2   804,0 29.415,6 28.136,4
09.20 Landhelgi 8.809,3   53,5 466,4 9.329,2 8.635,2
09.30 Ákæruvald og réttarvarsla 2.138,8     10,1 2.148,9 2.148,9
09.40 Réttar­aðstoð og bætur 2.673,8 52,4     2.726,2 2.104,9
09.50 Fullnustu­mál 3.636,3 3,7   2.650,8 6.290,8 6.100,4
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála 11.884,2 8.343,3   736,9 20.964,4 20.628,6
10.10 Persónu­vernd 389,8     4,0 393,8 388,9
10.20 Trúmál 1.663,9 8.215,0     9.878,9 9.878,9
10.30 Sýslumenn 4.178,6     63,5 4.242,1 4.108,9
10.40 Stjórnsýsla dómsmála­ráðuneytis 2.018,4 128,3   607,3 2.754,0 2.606,3
10.50 Útlendinga­mál 3.633,5     62,1 3.695,6 3.645,6
29 Fjölskyldu­mál 545,0 443,2     988,2 443,2
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn 545,0 443,2     988,2 443,2
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðar­mála 278,0 120,6   0,9 399,5 387,8
32.20 Jafnréttis­mál 278,0 120,6   0,9 399,5 387,8
07 Félags- og húsnæðis­mála­ráðuneyti 23.423,8 365.270,0 11.584,6 935,6 401.214,0 398.226,7
10 Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála 3.042,1       3.042,1 3.042,1
10.50 Útlendinga­mál 3.042,1       3.042,1 3.042,1
25 Hjúkrunar- og endurhæf­­ingar­þjónusta 3.357,1 895,0 2.684,6   6.936,7 6.936,7
25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými 3.357,1 895,0 2.684,6   6.936,7 6.936,7
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks 83,1 136.310,2   0,3 136.393,6 136.382,3
27.10 Bætur skv. lögum um almanna­tryggingar, örorkulífeyrir   118.042,1     118.042,1 118.042,1
27.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, örorka   17.858,1     17.858,1 17.858,1
27.30 Málefni fatlaðs fólks 82,9     0,3 83,2 83,2
27.40 Aðrar örorkugreiðslur (Önnur velferðarmál, lífeyristrygg.) 0,2 410,0     410,2 398,9
28 Málefni aldraðra 2,1 125.788,0     125.790,1 125.781,8
28.10 Bætur skv. lögum um almanna­tryggingar, lífeyrir aldraðra   115.254,9     115.254,9 115.254,9
28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun 0,1 9.854,8     9.854,9 9.847,6
28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur, óta. 2,0 678,3     680,3 679,3
29 Fjölskyldumál 3.267,0 46.570,7   509,6 50.347,3 50.343,3
29.20 Fæðingar­orlof   28.792,3     28.792,3 28.792,3
29.30 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, fjölskyldur   671,2     671,2 671,2
29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn 1.894,7 13.331,1   509,6 15.735,4 15.731,4
29.50 Bætur til eftirlifenda   621,2     621,2 621,2
29.70 Málefni innflytjenda og flóttamanna 1.372,3 3.154,9     4.527,2 4.527,2
30 Vinnu­markaður og atvinnuleysi 5.169,9 43.882,1   148,4 49.200,4 48.006,4
30.10 Vinnumál og atvinnuleysi 3.340,9 43.796,1   124,2 47.261,2 46.906,1
30.20 Vinnu­markaður 1.829,0 86,0   24,2 1.939,2 1.100,3
31 Húsnæðis- og skipulagsmál 4.435,9 11.512,9 8.900,0 260,5 25.109,3 23.439,8
31.10 Húsnæðis­mál 3.910,1 11.206,0 8.900,0 260,5 24.276,6 22.643,9
31.20 Skipulags­mál 525,8 306,9     832,7 795,9
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála 4.066,6 311,1   16,8 4.394,5 4.294,3
32.40 Stjórnsýsla félagsmála 4.066,6 311,1   16,8 4.394,5 4.294,3
08 Heilbrigðis­ráðuneyti 326.364,3 84.795,4 4.131,0 23.743,5 439.034,2 419.441,4
23 Sjúkrahús­þjónusta 160.328,7 4.612,2 4.111,0 23.515,2 192.567,1 180.659,6
23.10 Sérhæfð sjúkrahús­þjónusta 140.833,6 346,2 4.111,0 23.151,1 168.441,9 158.612,8
23.20 Almenn sjúkrahús­þjónusta 19.495,1     364,1 19.859,2 17.780,8
23.30 Erlend sjúkrahús­þjónusta   4.266,0     4.266,0 4.266,0
24 Heilbrigðis­þjónusta utan sjúkrahúsa 55.061,2 48.998,7   174,0 104.233,9 102.477,4
24.10 Heilsugæsla 51.184,5     164,4 51.348,9 49.920,2
24.20 Sérfræði­þjónusta og hjúkrun 12,0 37.321,9     37.333,9 37.333,9
24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun 583,5 9.778,6   9,6 10.371,7 10.043,9
24.40 Sjúkra­flutningar 3.281,2 1.898,2     5.179,4 5.179,4
25 Hjúkrunar- og endurhæf­ingar­þjónusta 84.826,8   20,0 12,5 84.859,3 80.266,4
25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými 75.043,6   20,0 12,5 75.076,1 70.483,2
25.20 Endur­hæfingar­þjónusta 9.783,2       9.783,2 9.783,2
26 Lyf og lækninga­vörur 16.924,5 27.668,5     44.593,0 44.593,0
26.10 Lyf 16.924,5 18.827,9     35.752,4 35.752,4
26.30 Hjálpartæki   8.840,6     8.840,6 8.840,6
29 Fjölskyldumál 94,5 2.986,9     3.081,4 2.969,4
29.60 Bætur vegna veikinda og slysa 94,5 2.986,9     3.081,4 2.969,4
32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðar­mála 9.128,6 529,1   41,8 9.699,5 8.475,6
32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit 2.841,2 254,4   30,9 3.126,5 2.015,1
32.30 Stjórnsýsla heilbrigðis­mála 6.287,4 274,7   10,9 6.573,0 6.460,5
09 Fjármála- og efnahags­ráðuneyti 127.492,9 32.732,1   6.149,0 166.374,0 115.160,6
05 Skatta-, eigna- og fjármála­umsýsla 25.756,8 876,9   3.750,0 30.383,7 24.142,2
05.10 Skattar og innheimta 11.256,2     95,1 11.351,3 10.621,8
05.20 Eigna­umsýsla ríkisins 1.881,9     1.101,9 2.983,8 1.091,7
05.30 Fjármála­umsýsla ríkisins 6.665,1     125,1 6.790,2 3.190,9
05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála 5.953,6 876,9   2.427,9 9.258,4 9.237,8
06 Hagskýrslu­gerð og grunnskrár 59,9       59,9 59,9
06.10 Hagskýrslu­gerð, grunnskrár og upplýsingamál 59,9       59,9 59,9
16 Markaðs­eftirlit og neytenda­mál   3.602,4     3.602,4 3.602,4
16.10 Markaðs­eftirlit og neytenda­mál   3.602,4     3.602,4 3.602,4
27 Örorka og málefni fatlaðs fólks   4.900,0     4.900,0 4.900,0
27.50 Jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða   4.900,0     4.900,0 4.900,0
29 Fjölskyldu­mál   21.000,0     21.000,0 21.000,0
29.10 Barnabætur   21.000,0     21.000,0 21.000,0
31 Húsnæðis- og skipulagsmál   800,0     800,0 800,0
31.10 Húsnæðismál   800,0     800,0 800,0
33 Fjármagns­kostnaður, ábyrgðir og lífeyris­skuldbindi 80.899,6     110,0 81.009,6 43.225,8
33.20 Ríkisábyrgðir       110,0 110,0 20,0
33.30 Lífeyris­skuldbindingar 80.899,6       80.899,6 43.205,8
34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir 20.776,6 1.552,8   2.289,0 24.618,4 17.430,3
34.10 Almennur varasjóður 13.447,0 1.385,3   2.112,1 16.944,4 16.944,4
34.20 Sértækar fjárráðstafanir 141,5 167,5   176,9 485,9 485,9
34.30 Afskriftir skattkrafna 7.188,1       7.188,1  
10 Innviðaráðuneyti 22.864,5 47.223,8 1.740,6 43.808,2 115.637,1 112.731,2
08 Sveitarfélög og byggðamál 1.313,2 38.088,5     39.401,7 39.401,7
08.10 Framlög til sveitarfélaga 1.287,7 35.761,9     37.049,6 37.049,6
08.20 Byggðamál 25,5 2.326,6     2.352,1 2.352,1
11 Samgöngu- og fjarskiptamál 21.547,5 9.135,3 1.740,6 43.808,2 76.231,6 73.325,7
11.10 Samgöngur 19.279,8 8.412,2 1.740,6 43.789,6 73.222,2 70.445,0
11.20 Fjarskipti 1.094,4 625,0   11,9 1.731,3 1.702,4
11.30 Stjórnsýsla innviða­ráðuneytis 1.173,3 98,1   6,7 1.278,1 1.178,3
31 Húsnæðis- og skipulagsmál 3,8       3,8 3,8
31.10 Húsnæðis­mál 3,8       3,8 3,8
14 Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneyti 22.615,9 17.683,8 10.603,4 1.431,8 52.334,9 46.140,0
15 Orkumál 259,6 6.491,6 5.193,9   11.945,1 11.945,1
15.10 Stjórnun og þróun orkumála 259,6 6.491,6 5.193,9   11.945,1 11.945,1
17 Umhverfis­mál 21.917,0 11.192,2 5.030,2 1.424,7 39.564,1 33.463,6
17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla 5.681,8 923,9   1.216,0 7.821,7 6.154,0
17.20 Rannsóknir og vöktun á náttúru Íslands 5.625,2 252,6   171,8 6.049,6 3.735,6
17.30 Meðhöndlun úrgangs 5.624,0 5.949,4   1,7 11.575,1 11.407,1
17.40 Varnir vegna náttúruvá 372,7   4.651,4   5.024,1 5.024,1
17.50 Stjórnsýsla umhverfis­mála 4.613,3 4.066,3 378,8 35,2 9.093,6 7.142,8
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál 439,3   379,3 7,1 825,7 731,3
18.20 Menningar­stofnanir 439,3     1,1 440,4 404,0
18.30 Menningar­sjóðir     379,3 6,0 385,3 327,3
17 Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti 87.833,7 17.536,9 28.015,8 1.504,9 134.891,3 113.455,3
07 Nýsköpun, rannsóknir og þekkingar­greinar 1.297,4 4.426,7 27.878,9 72,3 33.675,3 32.697,5
07.10 Vísindi og samkeppnis­sjóðir í rannsóknum 212,4 48,3 13.137,6 61,7 13.460,0 13.301,9
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingar­greinar 1.085,0 4.378,4 14.741,3 10,6 20.215,3 19.395,6
18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál 13.458,6 6.289,6 136,9 310,6 20.195,7 17.670,8
18.10 Safnamál 5.531,3 392,2 127,9 176,5 6.227,9 5.345,7
18.20 Menningar­stofnanir 7.483,0 865,1 9,0 134,1 8.491,2 6.881,5
18.30 Menningar­sjóðir 444,3 5.032,3     5.476,6 5.443,6
19 Fjölmiðlun 6.866,0 659,6   1,0 7.526,6 7.526,6
19.10 Fjölmiðlun 6.866,0 659,6   1,0 7.526,6 7.526,6
21 Háskólastig 65.858,2 6.156,5   1.118,8 73.133,5 55.256,4
21.10 Háskólar og rannsókna­starfsemi 63.589,3 1.517,7   1.105,9 66.212,9 49.321,0
21.30 Stuðningur við námsmenn 2,8 4.624,0     4.626,8 4.626,8
21.40 Stjórnsýsla menningar-, nýsköpunar- og háskóla­ráðuneyti 2.266,1 14,8   12,9 2.293,8 1.308,6
Samtals 908.960,9 631.241,4 57.523,1 87.468,4 1.685.193,8 1.530.083,9
þar af aðlögun vegna rekstrartekna         -14.511,6  
þar af vegna tapaðra krafna         -90,0  
þar af vegna endurgreiðslu VSK til opinberra aðila         18.900,0  
þar af vegna sölu fastafjármuna         -806,3  
þar af vegna framsetningar lífeyrisskuldbindinga         -60.575,6  
þar af v/ afskrifta skattkrafna         -7.188,1  
Samtals skv. GFS staðli         1.620.922,2 1.530.083,9

Ýmis ákvæði

Lántökur, endurlán og ríkisábyrgðir

5. gr.

Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilað að taka lán, endurlána, veita ríkisábyrgðir og fleira eftir því sem kveðið er á um í ákvæðum þessarar greinar:

  1. Að taka lán allt að 290 ma.kr., eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, og ráðstafa því í samræmi við ákvæði þessara laga.
  2. Að taka lán allt að 78,7 ma.kr. til fjármögnunar á eigin fé Seðlabanka Íslands verði eftir því kallað á grundvelli heimildar í 3. mgr. 40. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Eftirstöðvar innkallanlegs eigin fjár færast upp við hver áramót með hækkun vísitölu neysluverðs.
  3. Að taka lán allt að 140 ma.kr., eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, til viðbótar lántöku samkvæmt lið 1 hér að framan, til að mynda í því skyni að efla gjaldeyrisforða eða endurfjármagna eldri lán, verði það talið hagkvæmt. Heimilt er að endurlána Seðlabanka Íslands lán sem tekin eru til að styrkja gjaldeyrisforðann.
  4. Að endurlána allt að 10 ma.kr. til Menntasjóðs námsmanna til að fjármagna útlán nýs lánakerfis námsmanna. Öll útlán í nýju lánakerfi verði fjármögnuð með endurláni úr ríkissjóði og beinum framlögum ríkissjóðs vegna styrkja.
  5. Að endurlána allt að 20 ma.kr. til Húsnæðissjóðs vegna útlána sjóðsins að sömu fjárhæð. Þar af eru hlutdeildarlán 5,5 ma.kr.
  6. Að endurlána eignasafni Ríkiseigna allt að 1,5 ma.kr. vegna meiri háttar endurbóta og breytinga á húsnæði sem safnið hefur til umráða.
  7. Að endurlána allt að 5 ma.kr. til Byggðastofnunar.
  8. Að endurlána allt að 7 ma.kr. til Betri samgangna ohf., sbr. 8 gr. laga nr. 81/2020, um heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
  9. Að endurlána allt að 2 ma.kr. til Fasteigna Háskóla Íslands ehf. vegna endurbóta á fasteign við Stakkahlíð sem áformað er að nýta undir háskólastarfsemi.
  10. Að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að endurlána allt að 6 ma.kr. til Fasteigna Háskóla Íslands ehf. til að standa undir umsýslu, viðhaldi og framkvæmdum á fasteignum sem nýttar eru undir starfsemi Háskóla Íslands, sbr. ákvæði laga nr. 13/1973 um Happdrætti Háskóla Íslands.
  11. Að heimila ÍSOR að taka allt að 100 m.kr. lán á almennum markaði til að standa undir endurnýjun á sérhæfðum tækjabúnaði stofnunarinnar.
  12. Að veita Byggðastofnun heimild samkvæmt sérlögum til lántöku á árinu 2026, allt að 5 ma.kr., sbr. 5. tölul. 1. mgr. 16. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál.
  13. Ýmis ákvæði.

13.1.  Erlendar fjárhæðir skulu miðast við kaupgengi íslensku krónunnar samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka Íslands á staðfestingardegi fjárlaga.

13.2.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að stækka áður útgefna flokka ríkisbréfa og ríkisvíxla sem ekki eru komnir á gjalddaga.

13.3.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að gefa út vaxtaskiptasamninga í því skyni að stýra vaxtaáhættu ríkissjóðs fyrir allt að 50 ma.kr.

13.4.  Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, getur heimilað þeim aðilum sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum:

  1. að taka lán í því skyni að endurgreiða fyrir gjalddaga eftirstöðvar eldri lána þegar hagstæðari kjör eru talin bjóðast;
  2. að stofna til skulda- og vaxtaskipta og nýta aðra möguleika sem bjóðast á markaði til þess að tryggja viðkomandi aðila gegn verulegum vaxta- eða gengisbreytingum;
  3. að taka ný lán til endurgreiðslu skammtímalána sem tekin eru á grundvelli heimilda í lið 2, að hluta eða öllu leyti, án þess að lánssamningur um þau falli úr gildi enda sé ekki dregið á slíka lánssamninga að nýju nema lagaheimild liggi fyrir.

13.5.  Hyggist aðilar, sem njóta ríkisábyrgðar á lántökum sínum, nýta sér heimildir skv. lið 2 eða 13.4 skulu þeir gæta ákvæða 2. mgr. 5. gr. laga nr. 43/1990, um lánasýslu ríkisins.


Heimildir ráðherra

6. gr.

Fjármála- og efnahagsráðherra er heimilt:

Eftirgjöf gjalda.

1.1 Að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af efniskostnaði og sérfræðiþjónustu sem keypt er fyrir styrktarfé vegna rannsóknar Hjartaverndar á heilbrigði öldrunar.
1.2 Að heimila endurgreiðslu virðisaukaskatts af sérhæfðum íþróttabúnaði fyrir fatlaða íþróttamenn, enda liggur fyrir staðfesting um að Sjúkratryggingar Íslands veiti ekki styrk vegna kaupa á íþróttabúnaðinum.

Sala fasteigna.

2.1 Að selja eignarhlut ríkisins í húsnæði á vegum grunn-, framhalds- og sérskóla ásamt háskólum í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.
2.2 Að selja eignarhlut ríkisins í húsnæði á vegum heilbrigðisstofnana, sjúkrahúsa eða í heilbrigðistengdri starfsemi í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.
2.3 Að selja húsnæði dómstóla, lögreglu- og sýslumannsembætta og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.
2.4 Að selja óhentugar eða óhagkvæmar húseignir utanríkisþjónustunnar erlendis og kaupa eða leigja hentugra húsnæði.
2.5 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteignum ríkisins við Guðrúnartún 6 og Borgartún 5 og 7 í Reykjavík.
2.6 Að selja Laugaveg 162–166 í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.
2.7 Að selja Hverfisgötu 113–115 í Reykjavík og kaupa eða leigja hentugra húsnæði fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóra.
2.8 Að selja Tollhúsið við Tryggvagötu 19 í Reykjavík.
2.9 Að selja Skógarhlíð 6 í Reykjavík.
2.10 Að selja Ármúla 1a í Reykjavík og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.
2.11 Að selja fasteignir í eigu ríkisins við Stakkahlíð í Reykjavík.
2.12 Að selja Austurstræti 19 í Reykjavík og Vesturvör 2 í Kópavogi og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og Landsrétt.
2.13 Að selja Kópavogsbraut 1c í Kópavogi eða færa eignina til Vigdísarholts ehf. í formi hlutafjár.
2.14 Að selja eða leigja fasteignir í eigu ríkisins við Kópavogsbraut 5a–c í Kópavogi.
2.15 Að selja eða leigja fasteignir í eigu ríkisins á Vífilsstöðum í Garðabæ sem nýtast ekki undir starfsemi á vegum ríkisins.
2.16 Að selja eignarhlut ríkisins í Hafnarstræti 99–101 á Akureyri og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.
2.17 Að selja íbúðarhús á leigulóð á jörðinni Langekru í Rangárþingi ytra.
2.18 Að selja eyðibýli og húsarústir sem henta vel til endurbyggingar á leigulóð.
2.19 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti flugstöð á Þingeyri.
2.20 Að selja eignarhlut ríkisins í Stillholti 16–18 á Akranesi og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði.
2.21 Að selja eða leigja húsnæði í eigu ríkisins við Árleyni í Reykjavík.
2.22 Að selja húsnæði við Brjánslæk í Vesturbyggð.
2.23 Að selja Víkurbraut 7 á Höfn í Hornafirði og kaupa eða leigja aðra aðstöðu undir starfsemi Vegagerðarinnar.
2.24 Að heimila ÁTVR að selja Austurstræti 10a í Reykjavík og Hólabraut 16 á Akureyri.
2.25 Að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að selja eignarhlut í Bíldshöfða 16 í Reykjavík og kaupa eða leigja hentugra húsnæði.
2.26 Að heimila Fasteignum Háskóla Íslands ehf. að selja Aragötu 9 og 14 í Reykjavík.
2.27 Að selja Rauðarárstíg 25 og Skuggasund 1–3 í Reykjavík.
2.28 Að selja Sundstræti 28 á Ísafirði.
2.29 Að selja eða leigja Grensásveg 9 í Reykjavík.
2.30 Að selja húsnæði á vegum Lands og skógar og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.
2.31 Að selja fasteignina Lækjarbakka við Geldingalæk í Rangárþingi ytra.
2.32 Að selja fasteignina Hátún 10D, Reykjavík.
2.33 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteignum við Nauthólsveg 58 á Reykjavíkurflugvelli.
2.34 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteigninni Fífilbrekku í Ölfusi og Aðalgötu 23 á Sauðarárkróki.
2.35 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti fasteignum ríkisins á Hólum í Hjaltadal í tengslum við endurskipulagningu á húsnæðismálum Háskólans á Hólum og leigja eða kaupa annað hentugra húsnæði.
2.36 Að selja Suðurgötu 39 í Reykjavík.
2.37 Að selja Þingholtsstræti 29, Reykjavík.
2.38 Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Þórðarstöðum í Þingeyjarsveit.
2.39 Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Vöglum í Þingeyjarsveit.
2.40 Að selja íbúðarhús á leigulóð að Kornbrekku í Rangárþingi ytra.
2.41 Að selja íbúðar- og útihús á leigulóð úr jörðinni Hafursá í Múlaþingi.
2.42 Að selja íbúðarhús við Launrétt 6 í Laugarási til yfirlæknis heilsugæslunnar á grundvelli óháðs verðmats.
2.43 Að selja, að öllu leyti eða hluta, fasteignir og lóðir ríkisins við Lindargötu, Skuggasund og Sölvhólsgötu í Reykjavík og eignir við Spítalaveg í Garðabæ.
2.44 Að selja, að öllu leyti eða hluta, lönd eða lóðir til sveitarfélaga og/eða óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga þannig að uppbyggingin geti orðið að veruleika innan kostnaðarramma laga um almennar íbúðir.

Ráðstöfun lóða, spildna og jarða.

3.1 Að selja land ríkisins við Blikastaðaveg í Reykjavík.
3.2 Að selja lóð í eigu ríkisins við Þjórsárgötu og Þorragötu í Reykjavík.
3.3 Að selja eignarhlut ríkisins í lóð að Frakkastíg 23 í Reykjavík.
3.4 Að selja eða leigja landspildur ríkisins á Reykjanesi.
3.5 Að selja sumarhúsalóðir, íbúðarlóðir og spildur í eigu ríkisins, sem leigðar hafa verið til langs tíma, til leigjenda á grundvelli óháðs verðmats enda liggi ekki sérstakir almannahagsmunir að baki eignarhaldi ríkisins.
3.6 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jarðir sem ekki eru nýttar til ábúðar í því skyni að koma þeim í ábúð eða nýta þær á annan hátt.
3.7 Að heimila Jarðasjóði að ganga til samninga við ábúendur ríkisjarða um breytingar á ábúðarsamningum yfir í nýtt leigufyrirkomulag auk uppgjörs á eignum á viðkomandi leigujörð sé eignarhald í blandaðri eigu ríkisins og ábúandans.
3.8 Að heimila Jarðasjóði að selja áveitulönd að hluta eða öllu leyti aftur til upprunajarða eða á almennum markaði.
3.9 Að heimila Jarðasjóði að kaupa jarðir eða jarðahluta vegna náttúruverndar, menningarminja, útivistar eða annarrar hagnýtingar sem þjónar almannahagsmunum.
3.10 Að heimila Jarðasjóði í samráði við Land og skóg að selja eða leigja uppgrædd landgræðslulönd að hluta eða öllu leyti aftur til eigenda upprunajarða í samræmi við ákvæði jarðalaga eða á almennum markaði.
3.11 Að selja land við Hvanneyri sem ekki nýtist undir starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands.
3.12 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jarðirnar Hól og Skriðustekk í Fjarðabyggð.
3.13 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Syðri-Bakka í Hörgársveit og jarðirnar Háls og Saurbæ í Eyjafjarðarsveit.
3.14 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Brattholtshjáleigu í Árborg.
3.15 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja landspilduna Skarð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
3.16 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Hofstaði í Reykhólahreppi.
3.17 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jarðirnar Bakkakot 2, Syðri-Steinsmýri 1 og Nýjabæ auk íbúðarhúss á jörðinni Ásum í Skaftárhreppi.
3.18 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Kollafoss í Húnaþingi vestra.
3.19 Að selja jarðir og eignir í eigu ríkisins við Halldórsstaði í Laxárdal í Þingeyjarsveit.
3.20 Að heimila Jarðasjóði að selja eða leigja jörðina Írafell í Skagafirði.
3.21 Að ganga til samninga við KFUM varðandi ráðstöfun lóða í Vatnaskógi.
3.22 Að heimila ráðstöfun á landi í eigu ríkisins til landnýtingar í þágu loftslagsmála, s.s. kolefnisbindingar eða samdráttar í losun með skógrækt, endurheimt eða verndun vistkerfa, að undangenginni greiningu á því, m.a. út frá náttúrufari, hvort tiltekið land henti undir slíka nýtingu.
3.23 Að heimila ráðstöfun á landi Fells í Suðursveit með sérleyfis- eða rekstrarleyfissamningum vegna áforma um uppbyggingu á innviðum á Jökulsárlóni.
3.24 Að heimila ráðstöfun á landi Skriðufells í Skeiða- og Gnúpverjahreppi vegna áforma um uppbyggingu á starfsemi eða innviðum við Þjórsárdal.
3.25 Að heimila ráðstöfun á landi Mógilsár í Reykjavík með sérleyfis- eða rekstrarleyfissamningum vegna áforma um uppbyggingu á þjónustumiðstöð og svifferju í Esjuhlíðum.
3.26 Að heimila ráðstöfun á landi og öðrum innviðum ríkisins á friðlýstum svæðum með sérleyfis- og rekstrarleyfissamningum vegna reksturs þjónustu og annarrar afþreyingar innan slíkra svæða.
3.27 Að heimila Jarðasjóði að selja jarðirnar Önundarhorn og Gíslakot í Rangárþingi eystra.
3.28 Að ganga til samninga við Minjavernd og Storð um ráðstöfun á landi Ólafsdals í Gilsfirði.
3.29 Að selja landspildur úr jörðinni Straumi í Hafnarfirði.
3.30 Að selja lóðina Sléttuhlíð F9 í Hafnarfirði.

Kaup og leiga fasteigna.

4.1 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir aðalskrifstofur ráðuneyta.
4.2 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir hjúkrunarrými aldraðra í samræmi við áform um fjölgun slíkra rýma.
4.3 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir heilbrigðisstofnanir, sjúkrahús eða heilbrigðistengda starfsemi vegna endurskipulagningar eða hagræðingar á starfseminni.
4.4 Að kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir hverfisstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
4.5 Að kaupa sumarbústaði í þjóðgarðinum á Þingvöllum og jarðir eða spildur í næsta nágrenni hans.
4.6 Að kaupa eða taka á leigu viðbótarhúsnæði fyrir framhaldsskóla og háskóla í tengslum við sameiningar, breytingar eða hagræðingu á starfseminni.
4.7 Að leigja út húsnæði í eigu ríkisins á almennum markaði sem ekki nýtist undir opinbera starfsemi meðan önnur ráðstöfun er til skoðunar.
4.8 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir meðferðarheimili og þjónustustofnanir fatlaðra.
4.9 Að kaupa að tillögu Þjóðminjasafns Íslands fasteignir með mikið minjasögulegt gildi til varðveislu í húsasafni stofnunarinnar.
4.10 Að taka á leigu fasteignir fyrir búsetu- og vistunarúrræði á vegum stjórnvalda.
4.11 Að kaupa eða leigja starfs- og dvalaraðstöðu fyrir starfsmenn í þjóðgörðum og á öðrum náttúruverndarsvæðum.
4.12 Að kaupa eða leigja skrifstofu- eða atvinnuhúsnæði vegna þarfa einstakra ríkisstofnana verði það talið nauðsynlegt vegna endurskipulagningar á starfsemi þeirra eða til að stuðla að bættri nýtingu og auknu hagræði í rekstri ríkisins.
4.13 Að kaupa eða leigja geymsluhúsnæði vegna þarfa ríkisstofnana.
4.14 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir Fjarskiptastofu.
4.15 Að kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir Þjóðleikhúsið og Íslenska dansflokkinn.
4.16 Að nýta eignir sem heimilt er að selja sem endurgjald við kaup og leigu skrifstofu- eða atvinnuhúsnæðis vegna þarfa ríkisins.
4.17 Að kaupa eða leigja fasteign fyrir starfsemi lögreglu, tollgæslu og annarra viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu.
4.18 Að heimila Fasteignum Háskóla Íslands ehf. að kaupa eða leigja húsnæði fyrir starfsemi Háskóla Íslands og endurleigja til háskólans.
4.19 Að kaupa eða leigja húsnæði undir heimavist á vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands.
4.20 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir varaeintakasafn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
4.21 Að kaupa eða leigja húsnæði vegna þarfa Listasafns Íslands og selja annað húsnæði í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.
4.22 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
4.23 Að kaupa hesthús við Brúnastaði í Hjaltadal vegna hestafræðideildar Háskólans á Hólum.
4.24 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir Háskólann á Akureyri.
4.25 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir úrræði á vegum ríkisins vegna búsetu barna með fjölþættan vanda.

Kaup og sala hlutabréfa og aðrar ráðstafanir vegna umsýslu félaga.

5.1 Að selja eignarhlut ríkisins í Sparisjóði Austurlands hf.
5.2 Að nýta samningsbundinn eða lögbundinn rétt til innlausnar eða kaupa á hlutum í fjármálafyrirtækjum sem að hluta eru í eigu ríkisins.
5.3 Að nýta samningsbundinn rétt til að breyta láni Vaðlaheiðarganga hf. í hlutafé eða annan rétt til að taka við hlutafé í félaginu.
5.4 Að selja eignarhlut ríkisins í Endurvinnslunni hf.
5.5 Að selja eignarhlut ríkisins í Vísindagarðinum ehf. í Múlaþingi.
5.6 Að selja óverulega eignarhluti ríkisins í félögum.
5.7 Að selja eignarhluti í félögum í eigu háskóla sem þeir hafa eignast á grundvelli 26. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og heimila ráðstöfun á söluandvirði eignarhluta til viðkomandi háskóla.
5.8 Að ganga til samninga við eigendur Landsnets ohf. um kaup eða tilfærslu eignarhluta í félaginu til ríkissjóðs.
5.9 Að auka við hlutafé í opinberum félögum í því skyni að auka fjárfestingargetu eða bregðast við meiri háttar rekstrarvanda.
5.10 Að leggja Fasteignum Háskóla Íslands ehf. til fasteignir í eigu ríkissjóðs sem nýttar verða undir háskólastarfsemi, eða tengda starfsemi, með útgáfu skuldabréfs eða lánalínu.
5.11 Að heimila Háskóla Íslands að stofna sérstakt félag utan um eignarhald á rannsóknar- eða sprotafyrirtækjum sem háskólinn hefur aðkomu að.
5.12 Að koma á fót fasteignaþróunarfélagi og færa þar inn þróunareignir í eigu ríkisins sem stendur ekki til að nota undir starfsemi á vegum ríkisins.
5.13 Að selja eða ráðstafa með öðrum hætti eignarhlut ríkisins í Eignarhaldsfélagi Suðurnesja hf.
5.14 Að heimila Happdrætti Háskóla Íslands að koma á fót einkahlutafélagi til að annast rekstur happdrættisvéla.
5.15 Að fallast á tillögu um samruna Farice ehf., Öryggisfjarskipta ehf. og hluta Neyðarlínunnar ohf. í sameinað félag sem og aðrar tilfærslur milli félaganna.

Samningar um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni.

6.1 Að ganga á grundvelli útboðs til samninga um framleiðslu ökuskírteina til allt að sex ára.
6.2 Að ákveða að gengið verði á grundvelli útboðs til samninga um stærri hugbúnaðarkerfi eða skýjaumhverfi fyrir ríkisaðila til allt að 10 ára.
6.3 Að ganga á grundvelli útboðs til samninga um varnarbúnað og þjónustu tengdum honum fyrir starfsemi lögreglunnar til allt að 10 ára.
6.4 Að ganga til samninga um rekstur Vaktstöðvar siglinga til allt að 10 ára.
6.5 Að ganga til samninga við Kirkjugarða Reykjavíkur um rekstur nýrrar bálstofu til allt að 12 ára í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Ýmsar heimildir.

7.1 Að selja, leigja eða ráðstafa með öðrum hætti landi eða lóðum á Ásbrú og í nágrenni Keflavíkurflugvallar vegna áframhaldandi þróunar á svæðinu.
7.2 Að ganga til samninga við Minjavernd eða Storð um afhendingu og endurnýjun fasteigna sem ekki eru nýttar af hálfu ríkisins en nauðsynlegt þykir að vernda, einkum vegna menningarsjónarmiða.
7.3 Að þiggja að gjöf Laufáskirkju í Eyjafirði, Keldnakirkju á Rangárvöllum, fasteignir á Litlabæ í Skötufirði og Hraunskirkju í Keldudal til varðveislu í húsasafni Þjóðminjasafns Íslands.
7.4 Að greiða kostnað vegna nauðsynlegra breytinga á húsnæði þegar stofnanir á vegum ríkisins eru í hagræðingarskyni færðar milli fasteigna í eigu ríkisins og/eða fasteigna sem ríkið hefur tekið á langtímaleigu.
7.5 Að færa innra leiguverð fasteigna sem færðar verða í umsjón Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna nær leiguverði sambærilegra eigna á sama markaðssvæði og eftir atvikum að undirbúa breytingar á fjárheimildum vegna þessa. Jafnframt að hækka leiguverð fasteigna í umsjón stofnunarinnar í samræmi við kostnað vegna endurbóta á einstökum eignum.
7.6 Að selja eða leigja ferjuna Herjólf III.
7.7 Að heimila sjúkrahúsum og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að taka þátt í eða eiga samstarf við fyrirtæki sem vinna að vísindarannsóknum og þróun nýjunga á sviði heilbrigðismála og læknisfræði. Samningar sem fela í sér fjárskuldbindingar skulu lagðir fyrir ráðherra heilbrigðismála og fjármála til staðfestingar.
7.8 Að afsala, í samráði við utanríkisráðuneyti, flugbrautakerfi, tengdu akbrautakerfi og flughlöðum á Keflavíkurflugvelli, til Isavia ohf. enda verði þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna varnar- og öryggismála tryggðar sem og varnar- og öryggishagsmunir landsins. Hafa skal samráð við fjárlaganefnd og utanríkismálanefnd Alþingis áður en heimildin er nýtt.
7.9 Að ganga til samninga um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum sem myndast hafa í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins vegna starfsemi sjálfseignarstofnana og félagasamtaka sem kostuð eru af ríkissjóði.
7.10 Að ganga til samninga um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum sem myndast hafa í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og lífeyrissjóðum sveitarfélaga vegna samreksturs ríkis og sveitarfélaga.
7.11 Að nýta svigrúm sem kann að myndast vegna óreglulegra tekna ríkissjóðs, jákvæðrar sjóðstöðu eða annarra eigna ríkisins til þess að greiða inn á skuldbindingar ríkissjóðs vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
7.12 Að leggja Seðlabanka Íslands til eigið fé, verði eftir því kallað á grundvelli sérstakrar heimildar í 3. mgr. 40. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands. Eftirstöðvar innkallanlegs eigin fjár færast upp við hver áramót með hækkun á vísitölu neysluverðs.
7.13 Að ganga til samninga við Reykjavíkurborg um nýtt fyrirkomulag eignarhalds og rekstrar fasteignarinnar Hörpu.
7.14 Að heimila Nýsköpunarsjóðnum Kríu, sem er sprota- og nýsköpunarsjóður í eigu ríkisins, að fjárfesta fyrir allt að 1.000 m.kr. í samræmi við fjárfestingaráætlun sjóðsins og að greiða allt að 500 m.kr. vegna innköllunar vegna sjóðafjárfestinga. Jafnframt að ákveða að gengisáhætta Kríu vegna fjárfestingarloforða í erlendri mynt verði hjá ríkissjóði.
7.15 Að auka hlut Íslands í Alþjóðaframfarastofnuninni (IDA) fyrir allt að 749 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar stofnunarinnar um aukin stofnfjárframlög aðildarríkja Alþjóðabankans.
7.16 Að auka hlut Íslands í Norræna þróunarsjóðnum (NDF) fyrir allt að 66 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar sjóðsins.
7.17 Að veita stofnframlag í Nýsköpunarsjóð Atlantshafsbandalagsins fyrir hönd Íslands fyrir allt að 400 m.kr.
7.18 Að veita bakábyrgð vegna þátttöku Íslands í InvestEU fyrir allt að 2,6 ma.kr.
7.19 Að auka við hlut Íslands í Þróunarbanka Evrópuráðsins í samræmi við ákvörðun stjórnar bankans fyrir allt að 81 m.kr.
7.20 Að auka hlut Íslands í Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) fyrir allt að 600 m.kr. í samræmi við ákvörðun stjórnar sjóðsins
7.21 Að kaupa blendingsbréf Alþjóðabanka til enduruppbyggingar og framþróunar (IBRD) fyrir hönd Íslands fyrir allt að 150 m.kr.
7.22 Að færa eignir og fjárfestingarheimildir sem hafa verið nýttar milli málaflokka á þann fjárlagalið sem til stendur að hagnýta eða varðveita tiltekna eign. Sé um að ræða flutning eigna milli A1-hluta í A2-hluta fjárlaga er heimilt að fella niður fjárveitingu og umbreyta í lán eða eigið fé til hlutaðeigandi umsýsluaðila.
7.23 Að kaupa og selja fasteignir milli eignasafna ríkisins sem falla undir A-hluta með láni eða eigin fé enda hafi það ekki áhrif á samstæðu A-hluta ríkissjóðs.
7.24 Að heimila ráðstöfun á losunarheimildum, í samráði við ráðherra loftslagsmála, sem tilheyra íslenska ríkinu í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda til móts við loftslagsskuldbindingar íslenska ríkisins.
7.25 Að heimila ráðstöfun á losunarheimildum til flugrekenda, í samráði við ráðherra loftslagsmála, sem tilheyra íslenska ríkinu í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda.
7.26 Að standa að stofnun sjóðs um verk Jóns Leifs tónskálds og ráðstöfun eigna og réttinda úr dánarbúi sonar Jóns Leifs til slíks sjóðs sem annars myndu renna til ríkissjóðs.
7.27 Að heimila Jarðasjóði að ráðstafa brunabótum til viðhalds eða endurbóta á mannvirkjum á ríkisjörðum eða spildum þar sem brunatjón hefur orðið.
7.28 Að fella niður bundið eigin fé hjá ríkisaðilum í A1-hluta í samræmi við markmið laga um opinber fjármál.

Gjört á Bessastöðum, 23. desember 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Daði Már Kristófersson.

A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál