Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Landbúnaður, Matvæli, Dýravernd
Undirritunardagur
3. september 2026
Útgáfudagur
14. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 987/2026
3. september 2026
REGLUGERÐ
um merkingar og skráningar dýra.
1. gr.Markmið og gildissvið.
Markmið reglugerðar þessarar er að tryggja rekjanleika búfjárafurða frá upprunahjörð og/eða fæðingu viðkomandi dýrs til sölu afurða og skapa með því grundvöll að markvissu matvæla- og búfjáreftirliti, eftirliti með flutningum dýra, sem og skráningu og meðhöndlun búfjársjúkdóma.
Reglugerðin hefur jafnframt að markmiði að útfæra nánar ákvæði reglugerðar nr. 462/2021, sem innleiðir reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2035 frá 28. júní 2019, og reglugerðar nr. 1607/2022, sem innleiðir reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/520 frá 24. mars 2021, um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar rekjanleika tiltekinna landdýra í haldi.
Reglugerð þessi gildir um merkingar og skráningu nautgripa, sauðfjár, geita, svína, alifugla og hrossa, svo og skyldur umráðamanna dýra, sláturleyfishafa og flutningsaðila að því er varðar rekjanleika dýra.
Reglugerð þessi gildir óháð því hvort dýr eru haldin í atvinnuskyni eða ekki, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
2. gr.Orðskýringar.
Dýraskrá: Er gagnagrunnur sem tilgreindur er í 4. gr.
Landnúmer: Er sex tölustafa númer starfsstöðvarinnar, úthlutað af Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Í Dýraskrá er landnúmer tengt hniti.
Ábúandanúmer: Er tölustafur, einn tölustafur, fyrir hvern ábúanda á starfsstöð úthlutað af Matvælastofnun.
Búsnúmer: Er sjö tölustafa númer, samsett af landnúmeri og ábúandanúmeri.
Bæjarnúmer: Er tilgreint í landsmarkaskrá. Í Dýraskrá er bæjarnúmer tengt landnúmeri.
Kiðamerki: Tímabundið eyrnamerki í kiðum að 9 mánaða aldri, með upplýsingum samkvæmt 3. mgr. 11. gr.
Lambamerki: Tímabundið eyrnamerki í lömbum að 7 mánaða aldri, með upplýsingum samkvæmt 3. mgr. 10. gr.
Plastmerki: Er forprentað hefðbundið eyrnamerki.
Umráðamaður dýra: Eigandi dýrs eða annar aðili sem er ábyrgur fyrir umsjá dýrs.
RML: Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
UELN (Universal Equine Life Number): Alþjóðlegt auðkennisnúmer hesta sem birt er í hestapassa.
3. gr.Stjórnvald og eftirlit.
Matvælastofnun er hið lögbæra yfirvald sem getið er um í reglugerðunum sem taldar eru upp 1. gr. og hefur eftirlit með framkvæmd reglugerðanna auk þessarar reglugerðar.
4. gr.Gagnagrunnar.
Matvælastofnun ber ábyrgð á gerð og rekstri gagnagrunns sem kveðið er á um í 3. gr. (ESB) 2021/520 og nefnist hann „Dýraskrá“. Við hönnun gagnagrunnsins skal tenging tryggð við gagnagrunna einstakra dýrategunda, sem geta verið í eigu 3ja aðila, þannig að skylduskráningar sem fram koma í reglugerðum sem tilgreindar eru 1. gr. geti einnig farið fram í þeim. Tryggja skal að flutningur gagna sé að lágmarki einu sinni á sólarhring á milli Dýraskrár og tilheyrandi gagnagrunna. Að lágmarki skulu eftirtaldir gagnagrunnar tengdir við Dýraskrá:
- MARK (bufe.is).
- Huppa.
- Fjárvís.
- Heiðrún.
- Svínagagnagrunnur.
- WorldFengur.
5. gr.Auðkenniskóði fyrir nautgripi, sauðfé, geitur, svín og hross.
Með vísan til 12. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 skal fyrsti þáttur auðkenniskóða vera landskóði Íslands, sem er „IS“ eða „352“. Annar þáttur auðkenniskóðans skal vera einkvæmur kóði og þannig samansettur:
1. Nautgripir, geitur og svín – samsetning annars þáttar auðkenniskóða, alls 12 tölustafir.
- Búsnúmer starfsstöðvar þar sem gripur er fæddur, alls sjö tölustafir.
- Gripanúmer, alls fimm tölustafir.
Auðkenniskóði í rafrænu eyrnamerki skal vera alls 15 tölustafir sem samanstendur af stafarunu fyrsta og annars þáttar auðkenniskóða.
2. Sauðfé – samsetning annars þáttar auðkenniskóða, alls 8-12 stafliðir.
- Búsnúmer starfsstöðvar þar sem gripur er fæddur eða starfsstöðvar þess sem gripurinn tilheyrir, alls sjö tölustafir. Heimilt er að nota bæjarnúmer í stað búsnúmers eða nota bæði.
- Gripanúmer, alls fimm tölustafir, þar sem fyrsti stafur númersins er síðasti tölustafur fæðingarárs, en síðari fjórir tölustafirnir eru númer grips innan hjarðar.
Auðkenniskóði í rafrænu eyrnamerki skal vera alls 15 tölustafir sem samanstendur af stafarunu fyrsta og annars þáttar auðkenniskóða.
3. Hross – samsetning annars þáttar auðkenniskóða, alls 10 tölustafir.
- Fæðingarár, alls fjórir tölustafir.
- Kyn, alls einn tölustafur, 1 táknar karlkyn og 2 táknar kvenkyn.
- Númer upprunahéraðs/ræktunarnafns samkvæmt viðauka I, alls tveir tölustafir.
- Raðnúmer bús, alls þrír tölustafir.
Auðkenniskóði í rafrænu stunguörmerki skal vera alls 15 tölustafir og skulu fyrstu þrír vera landskóði Íslands í tölustöfum og seinni 12 tölustafir vera einkvæmt númer grips, handahófskennd talnaruna.
Auk auðkenniskóða er sérhverju hrossi sjálfkrafa úthlutað einkvæðu UELN-númeri við grunnskráningu í WorldFeng, alls 15 tölustafir sem samanstendur af eftirfarandi talnarunu:
- „352“ landskóði, þrír tölustafir.
- „002“ númer Bændasamtaka Íslands, það ræktunarsamband hér á landi sem gefur út UELN-númer, þrír tölustafir.
- Síðustu níu tölustafir fæðingarnúmers, alls níu tölustafir.
6. gr.Rafræn eyrnamerki.
Rafræn eyrnamerki skulu fylgja tækniforskriftum sem fram koma í 2. hluta, II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520.
7. gr.Litur merkja, viðbótarmerki og viðbótarupplýsingar á eða í merkjum.
Ekki eru kvaðir um tiltekna liti eyrnamerkja, þó er óheimilt að nota rauð eyrnamerki nema að fyrirmælum yfirdýralæknis.
Með vísan til 3. tl. 1. hluta II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520 er heimilt að nota viðbótar eyrnamerki með valkvæðum upplýsingum eða bæta við upplýsingum í eða á hefðbundið eyrnamerki eða rafrænt eyrnamerki sé það greinilega aðskilið frá skyldumerkingum samkvæmt þessari reglugerð og reglugerðum tilgreindum í 1. gr. Sé viðbótarmerking eða upplýsingar ekki greinilega aðskildar frá skyldumerkingum fer með þau merki samkvæmt 16. gr. Við merkingu á dýrum skal nota aðferðir er valda sem minnstum sársauka og takmarka ekki eðlilegt atferli dýranna eða valda þeim óþarfa álagi meðal annars með því að takmarka fjölda merkja í hvert eyra.
8. gr.Pöntun og skráning merkja.
Umráðamaður nautgripa, sauðfjár og geita skal panta forprentuð plastmerki og rafræn eyrnamerki með auðkenniskóðum samkvæmt 5. gr. í miðlægum gagnagrunni í varðveislu Matvælastofnunar. Gagnagrunnurinn (MARK/bufe.is) skal tengdur við gagnagrunna búfjártegundanna. Matvælastofnun samþykkir framleiðendur merkja og skráir þá í gagnagrunninn.
9. gr.Merking nautgripa.
Með vísan til 13. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 skal umráðamaður merkja nautgripi á fæðingarstað innan 20 daga frá fæðingu, þó með undantekningum sem fram koma í sömu grein, með merkjum í samræmi við 1. og 2. hluta II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520. Merking skal vera í samræmi við 38. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2035. Merking skal vera með einni af eftirfarandi leiðum:
- Forprentuð plastmerki í bæði eyru.
- Forprentað plastmerki í öðru eyra og rafrænt eyrnamerki í hinu eyra.
- Forprentað plastmerki í öðru eyra og stunguörmerki eða vambastautur sett í gripinn.
Á merkjunum skal koma fram auðkenniskóði viðkomandi nautgrips samkvæmt 5. gr.
10. gr.Merkingar sauðfjár.
Með vísan til 14. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 og 48. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2035 skal merkja sauðfé innan 20 daga frá fæðingu með merkjum í samræmi við 1. og 2. hluta II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520. Merking skal vera með annarri af eftirfarandi leiðum:
- Forprentað plastmerki í eyra.
- Rafrænt eyrnamerki í eyra, ef rafrænt eyrnamerki er án forprentaðs auðkenniskóða þá þarf forprentað plastmerki í hitt eyrað.
Á merkjunum skal koma fram auðkenniskóði viðkomandi grips samkvæmt 5. gr.
Heimilt er þó að merkja lömb með forprentuðu lambamerki þar sem aðeins kemur fram bæjarnúmer og gripanúmer án fyrsta tölustafs fæðingarárs, enda fái lamb einkvæmt númer sem myndast sjálfvirkt í Fjárvís sem tryggir rekjanleika gripsins. Í samræmi við 7. gr. er einnig heimilt að nota rafræn eyrnamerki í lömb með búsnúmeri og gripanúmeri án fyrsta tölustafs fæðingarárs eða með handahófskenndri stafarunu svo lengi sem lömbin bera einnig forprentað lambamerki. Lömb sem merkt eru samkvæmt þessari málsgrein ber að merkja fyrir 7 mánaða aldur með auðkenniskóða í samræmi við 5. gr.
Komi aðfluttur gripur í hjörð skal hann endurmerktur innan í 7 daga frá komu, hann skal þá merktur með nýjum auðkenniskóða samkvæmt 5. gr. (nýtt búsnúmer og gripanúmer) enda skal upprunamerking dýrsins tryggð og varðveitt í Fjárvís, samanber 14. gr.
Bannað er að nota gripanúmer samkvæmt 5. gr. sem þegar eru í notkun innan hjarðarinnar.
11. gr.Merking geita.
Með vísan til 14. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 og 48. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2035 skal merkja geitur innan 20 daga frá fæðingu með merkjum í samræmi við 1. og 2. hluta II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520. Merking skal vera með annarri af eftirfarandi leiðum:
- Forprentað plastmerki í eyra.
- Rafrænt eyrnamerki í eyra, ef rafrænt eyrnamerki er án forprentunar þá þarf forprentað plastmerki í hitt eyrað.
Á merkjunum skal koma fram auðkenniskóði fyrir geitur samkvæmt 5. gr.
Heimilt er þó að merkja kið með forprentuðu kiðamerki þar sem aðeins kemur fram bæjarnúmer og gripanúmer, enda fái kið einkvæmt númer í Heiðrúnu sem tryggir rekjanleika gripsins. Í samræmi við 7. gr. er einnig heimilt að nota rafræn eyrnamerki með handahófskenndri stafarunu svo lengi sem kiðin bera einnig forprentað kiðamerki. Kið sem merkt eru samkvæmt þessari málsgrein ber að merkja fyrir 9 mánaða aldur með auðkenniskóða í samræmi við 5. gr.
Komi aðfluttur gripur, sem ekki ber auðkenniskóða upprunabús, í nýja hjörð skal hann merktur með auðkenniskóða upprunabúsins samkvæmt 5. gr. innan 7 daga frá komu, slíkur gripur skal þá einnig merktur í hitt eyrað með búsnúmeri/bæjarnúmeri kaupabæjar og gripanúmeri.
12. gr.Merking svína.
Með vísan til 15. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 skal merkja svín innan 9 mánaða frá fæðingu með merkjum í samræmi við 1. og 2. hluta II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520. Svín skal þó merkja áður en þau fara frá starfsstöð þar sem þau eru fædd eða út úr aðfangakeðjunni. Ætíð skal merkja svín um leið og þau eru meðhöndluð með lyfjum með afurðanýtingarfresti. Merking skal vera með einni af eftirfarandi leiðum:
- Forprentað plastmerki í eyra.
- Rafrænt eyrnamerki í eyra, ef rafrænt eyrnamerki er án forprentunar þá þarf forprentað plastmerki í hitt eyrað.
- Húðflúr.
Á merkjunum skal koma fram auðkenniskóði fyrir svín samkvæmt 5. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. og með vísan til 53. gr. og 55. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2035 er heimilt að flytja ómerkt svín á milli starfsstöðva innan sömu aðfangakeðju sem Matvælastofnun hefur samþykkt og skráð.
Sérhver starfsstöð sem óskar eftir að tilheyra tiltekinni aðfangakeðju skal sækja um samþykki til Matvælastofnunar enda liggur fyrir samkomulag þess efnis á milli starfsstöðva, auk samkomulags við sláturhús ef við á. Í umsókn skal koma fram hvernig rekjanleiki svína er tryggður við flutning á milli starfsstöðva og í sláturhús ef við á. Matvælastofnun er heimilt að takmarka fjölda starfsstöðva innan sömu aðfangakeðju.
Matvælastofnun getur sett skilyrði í samþykki á aðfangakeðjum svo sem varðandi rekjanleikanúmer, fylgiskjöl og fleira sem varðar rekjanleika. Matvælastofnun úthlutar hverri aðfangakeðju einkvæmu númeri og heldur skrá um þær og skal skráin aðgengileg almenningi.
13. gr.Merking hrossa.
Með vísan til 58. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2035 skal merkja ásetningsfolöld við hlið móður með stunguörmerki samkvæmt 5. gr. fyrir 10 mánaða aldur eða fyrr ef folald er flutt frá fæðingarstað og það aðskilið frá móður. Merkið er sett í eða við sinaband undir faxrót vinstra megin á hálsi, um miðjan makka.
Aðeins dýralæknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum dýra (örmerkingamönnum) sem fengið hafa til þess leyfi frá Matvælastofnun er heimilt að setja stunguörmerki í hross. Matvælastofnun setur lágmarkskröfur um þekkingu og þjálfun örmerkingamanna, um forsendu leyfisveitinga og heldur skrá um leyfishafa.
Hvorki er heimilt að setja eyrnamerki í hross né eyrnamarka þau.
14. gr.Merkingar alifugla.
Umráðamaður alifugla á útungunarstöð skal auðkenna hvern alifuglahóp með sérstöku rekjanleikanúmeri, alls 10 tölustafir og þannig samsett:
- Númer framleiðanda sem Matvælastofnun ákveður, alls þrír tölustafir.
- Síðustu tveir stafir fæðingarárs, alls tveir tölustafir.
- Fæðingarvika, alls tveir tölustafir.
- Klaknúmer innan vikunnar, alls einn tölustafur.
- Húsnúmer eldishóps, alls tveir tölustafir.
Húsnúmer í rekjanleikanúmeri alifuglahóps breytist, við flutning, eftir því í hvaða húsi hópurinn er haldinn.
Ekki er skylt að auðkenna alifuglahóp með rekjanleikanúmeri ef hann er eingöngu haldinn til eigin neyslu.
15. gr.Endurmerking.
Með vísan til 19. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 er því aðeins heimilt að endurmerkja dýr sé rekjanleiki tryggður og það skráð í gagnagrunn viðkomandi búfjártegundar. Auðkenniskóði slíkra dýra samkvæmt 5. gr. helst óbreyttur.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að endurmerkja nautgripi með nýjum auðkenniskóða, samkvæmt 5. gr., sem misst hafa merki úr báðum eyrum sé unnt að greina upprunaauðkenni gripsins með nokkurri vissu. Þetta er þó aðeins heimilt ef eldri auðkenniskóði er varðveittur í Huppu og hann samtengdur í gagnagrunninum við nýjan auðkenniskóða. Endurmerking samkvæmt þessari málsgrein er einungis heimil í neyð, sé tími til slátrunar skemmri en afhendingartími nýs merkis með upprunaauðkenni gripsins.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt, með vísan til d-liðar 19. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520, að endurmerkja sauðfé með því að skipta út merkjum með nýjum auðkenniskóða í samræmi við 5. mgr. 10. gr. að því tilskildu að eldri auðkenniskóði sé varðveittur í Fjárvís og hann samtengdur í gagnagrunninum við nýjan auðkenniskóða.
16. gr.Förgun merkja.
Í samræmi við staflið a í 1. tl. í 1. hluta II. viðauka reglugerðar (ESB) 2021/520 skulu hefðbundin eyrnamerki og rafræn eyrnamerki vera einnota. Þetta á við um merki sem skylt er að merkja með og innihalda auðkenniskóða samkvæmt 5. gr. og reglugerðum tilgreindum í 1. gr. Merkjum þessum ber að farga þegar dýr er endurmerkt eða fellt, hvort heldur það er við slátrun eða aflífun utan sláturhúss. Umráðamaður búfjár ber ábyrgð á förgun merkja, en í sláturhúsum ber sláturleyfishafi ábyrgð á söfnun og förgun þessara merkja.
Í samræmi við 7. gr. er heimilt að endurnýta valkvæð merki, þ.m.t. rafræn eyrnamerki, svo lengi sem gripurinn ber einnig auðkenniskóða samkvæmt 5. gr. sem tryggir uppruna hans eða hægt er að aðskilja valkvæða merkið frá auðkenniskóðanum.
17. gr.Skrár og skráningar í gagnagrunna.
Umráðamaður nautgripa, sauðfjár, geita, svína og hrossa ber ábyrgð á að dýr í hans umsjá séu merkt samkvæmt reglugerð þessari og í samræmi við reglugerðir sem tilgreindar eru í 1. gr.
Í samræmi við 3. gr. reglugerðar (ESB) 2021/520 ber að skrá flutning nautgripa, sauðfjár, geita og svína á milli starfsstöðva í Dýraskrá eða miðlægan gagnagrunn dýrategundar innan 7 daga frá flutningi, sömu tímamörk gilda um skráningu á fæðingu og dauða nautgripa. Um tilkynningar og skráningu á flutningi sauðfjár og geita yfir varnarlínur fer samkvæmt reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur, nr. 253/2026.
Umráðamanni nautgripa, sauðfjár, geita, svína og hrossa ber að halda skrá í rauntíma að lágmarki um þær upplýsingar sem kveðið er á um í 19. gr. reglugerðar þessarar og 22. gr., 23. gr., 24. gr., 42. gr., 49. gr., 56. gr. og 64. gr. reglugerðar (ESB) 2019/2035. Einnig ber að skrá kyn og stofn dýrs auk einstaklingsnúmers móður þess.
Önnur atriði, en þau sem getið er um í 2. mgr., skal skrá í Dýraskrá eða miðlæga gagnagrunna hverrar dýrategundar eins fljótt og auðið er og ætíð innan fjögurra mánaða frá atburði.
Að auki ber skráður umráðamaður í WorldFeng ábyrgð á að allar skráningar þar með talið eigandaskipti séu réttar í gagnagrunninum fyrir 1. nóvember ár hvert.
Leyfishafa til stunguörmerkinga hrossa, sbr. 13. gr., er skylt að fylla út þar til gert merkingarvottorð, þar sem fram kemur númer stunguörmerkis og tólf stafa auðkenniskóði hrossins (IS-númer) í samræmi við 5. gr. Vottorðið skal ýmist vera í þríriti eða á öðru formi sem RML hefur samþykkt. Frumrit skal senda RML, eigandi eða umráðamaður gripsins fær eitt afrit og eitt afrit geymir sá aðili sem annast örmerkinguna. Leyfishafi til stunguörmerkinga skal senda RML merkingarvottorðið innan 60 daga frá merkingu og skal RML skrá númer örmerkis í WorldFeng innan 60 daga frá móttöku vottorðs. Nánari útfærsla á skráningum í WorldFeng er í reglugerð um uppruna og ræktun íslenska hestsins, nr. 442/2011.
18. gr.Verklag við rekjanleika sláturdýra.
Sérhverjum sláturleyfishafa og flutningsaðilum sláturdýra ber að koma á skriflegu verklagi um móttöku, flutning og slátrun ómerktra og vanmerktra sláturdýra. Sömu aðilum ber einnig að koma á skriflegu verklagi um móttöku, flutning og slátrun svína sem eru undanskilin merkingum samkvæmt reglugerð þessari þannig að rekjanleiki svína sé tryggður til upprunastarfsstöðvar eða síðustu starfsstöðvar í aðfangakeðju. Óheimilt er að taka við eða slátra dýrum sem um getur í 1. mgr. nema samþykki Matvælastofnunar liggi fyrir um verklagið. Sláturleyfishöfum ber að sækja um samþykki Matvælastofnunar á verklaginu og hefur stofnunin heimild til að skilyrða samþykki sitt, svo sem varðandi merkingar og fylgiskjöl.
Í samræmi við 12. gr., skal rekstraraðili svínastarfsstöðvar/síðustu starfsstöðvar viðkomandi aðfangakeðju, sem hyggst senda sláturhópa með ómerktum svínum sem tilheyra aðfangakeðju, hafa gert samning þess efnis við sláturhús. Skal samningurinn vera samþykktur af Matvælastofnun og áður en fyrsti sláturhópur er afhentur til slátrunar. Samningur skal vera tímabundinn en þó aldrei lengri en til fimm ára í senn.
Folöld, sem slátrað er fyrir 10 mánaða aldur, skulu auðkennd þannig að rekjanleiki til fæðingarstaðar sé tryggður.
19. gr.Upplýsingar um heilsufar dýra.
Umráðamaður dýra ber ábyrgð á að upplýsingar um heilsufar dýra í hans umsjá, þ.m.t. um sjúkdóma, meðhöndlun þeirra og fyrirbyggjandi aðgerðir, séu skráðar á réttan og rekjanlegan hátt í viðeigandi gagnagrunn eða á annan hátt sem Matvælastofnun viðurkennir, svo sem í tölvukerfi mjaltakerfa og eigin bústjórnarkerfa. Umráðamaður ber þó ekki ábyrgð á skráningum dýralækna. Dýralæknar skulu skrá í miðlægan gagnagrunn (bufjarheilsa.is) sjúkdómsgreiningar, meðhöndlun búfjár með lyfjum og afhendingu lyfja í samræmi við reglugerð um rafrænar skráningar dýralækna á dýrasjúkdómum og lyfjameðhöndlun, nr. 303/2012.
Umráðamaður dýra ber að skrá samdægurs í gagnagrunn búfjártegundarinnar meðhöndli hann dýr sitt með lyfjum með afurðanýtingarfresti.
Við flutning dýra milli starfsstöðva, einnig innan sömu aðfangakeðju, skal tryggt að viðeigandi upplýsingar um heilsufar fylgi dýrinu með rafrænum hætti eða á annan sannanlegan hátt sem Matvælastofnun samþykkir.
Umráðamaður dýra skal varðveita upplýsingar samkvæmt þessari grein í a.m.k. 10 ár, einnig eftir að framleiðslu er hætt.
20. gr.Kostnaður.
Umráðamaður dýra ber kostnað af merkingum og skráningum samkvæmt reglugerð þessari, nema annað sé sérstaklega ákveðið.
21. gr.Undanþágur.
Matvælastofnun er heimilt að veita undanþágur frá ákvæðum reglugerðar þessarar í samræmi við ákvæði þess efnis í innleiddum gerðum sem fram koma í 1. gr.
22. gr. Viðurlög.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum skv. 14. gr. laga um búfjárhald, nr. 38/2013, X. kafla laga um velferð dýra, nr. 55/2013, 19. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, og 30. gr. laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, og XI. og XII. kafla laga um matvæli, nr. 93/1995.
23. gr.Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 13. gr. laga um búfjárhald, nr. 38/2013, 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, búvörulög, nr. 99/1993, og31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 916/2012.
Ákvæði til bráðabirgða.
Dýraskrá samkvæmt 4. gr. tekur gildi 1. janúar 2028. Fram að því fara skráningar fram í miðlægum gagnagrunnum búfjártegundanna þ.e. Huppu, Fjárvís, Heiðrúnu og WorldFeng auk upplýsinga sem skrá á í gagnagrunnana Mark og Bústofn.
Upplýsingar er varða svín og skrá skal í Dýraskrá samkvæmt reglugerð þessari skulu skráðar tímabundið rafrænt hjá sérhverri starfsstöð og aðgengilegt Matvælastofnun í tengslum við eftirlit þar.
Ákvæði 18. gr. er varðar samþykki Matvælastofnunar á verklagi sláturleyfishafa tekur gildi 1. janúar 2027.
Ákvæði um skyldu umráðamanna sauðfjár og geita samkvæmt 8. gr. tekur gildi 1. janúar 2028.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 3. september 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Donika Kolica.
B deild — Útgáfudagur: 14. september 2026