Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Snæfellsbær
Málaflokkur
Opinberir starfsmenn, Verkföll og vinnudeilur, Snæfellsbær
Undirritunardagur
10. janúar 2023
Útgáfudagur
24. janúar 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 31/2023
10. janúar 2023
AUGLÝSING
um skrá yfir þau störf hjá Snæfellsbæ sem eru undanþegin verkfallsheimild.
Eftirfarandi er skrá Snæfellsbæjar yfir starfsheiti starfsmanna sem undanþegnir eru verkfallsheimild samkvæmt 2. mgr. 19. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986, með síðari breytingum, og 2. gr. laga nr. 129/2020 um skrá yfir störf hjá sveitarfélögum sem heimild til verkfalls nær ekki til:
Snæfellsbær:
| Bæjarstjóri | 1,0 stöðugildi | |
| Bæjarritari | 1,0 stöðugildi | |
| Yfirmaður tæknideildar | 1,0 stöðugildi | |
| Slökkviliðsstjóri og aðstoðarslökkviliðsstjóri | 0,3 stöðugildi | |
| Varðstjóri slökkviliðs | 0,1 stöðugildi | |
| Skólastjóri grunnskóla | 1,0 stöðugildi | |
| Deildarstjóri grunnskóla | 1,0 stöðugildi | |
| Skólastjóri leikskóla | 1,0 stöðugildi | |
| Deildarstjóri Lýsuhólsskóla | 1,0 stöðugildi | |
| Aðstoðarleikskólastjóri | 1,0 stöðugildi | |
| Launafulltrúi | 1,0 stöðugildi | |
| Verkstjóri í áhaldahúsi | 1,0 stöðugildi | |
| Hafnarstjóri | 1,0 stöðugildi | |
| Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi | 1,0 stöðugildi | |
| Skólastjóri tónlistarskóla | 1,0 stöðugildi | |
| Forstöðumaður bókasafns | 0,7 stöðugildi | |
| Upplýsinga- og kynningarfulltrúi | 1,0 stöðugildi | |
| Forstöðumaður félagsheimila | 0,7 stöðugildi |
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga:
| Forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga | 1,0 stöðugildi |
Búsetuþjónusta vegna fatlaðra:
| Forstöðuþroskaþjálfi | 1,0 stöðugildi | |
| Forstöðumaður búsetuþjónustu | 1,0 stöðugildi | |
| Starfsmaður (Stykkishólmur/Snæfellsbær) | 6,0 stöðugildi |
Þjónustuíbúðir fatlaðra í Ólafsvík:
| Forstöðuþroskaþjálfi | 1,0 stöðugildi | |
| Starfsmaður | 9,0 stöðugildi |
Dvalarheimilið Jaðar:
| Forstöðumaður | 1,0 stöðugildi | |
| Hjúkrunarfræðingur | 1,0 stöðugildi | |
| Sjúkraliðar | 1,4 stöðugildi | |
| Ófaglærðir í umönnun | 9,2 stöðugildi | |
| Mötuneyti | 0,8 stöðugildi |
Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.
F.h. bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, 10. janúar 2023,
Lilja Ólafardóttir bæjarritari.
B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2023