Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjarðabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Fjarðabyggð, Mannvirki

Undirritunardagur

22. apríl 2026

Útgáfudagur

29. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 410/2026

22. apríl 2026

GJALDSKRÁ

skipulags- og byggingarmála í Fjarðabyggð.

1. gr. Byggingarleyfisgjöld.

1.1 Byggingarleyfi og gjald vegna tilkynningarskyldra bygginga.
  Byggingarleyfisgjaldi vegna nýbyggingar stærri en 15 m² er skipt í fast gjald og gjald fyrir hvern rúmmetra byggingar.
  Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingarleyfisskyldra erinda, lóðarblað, yfirferð teikninga, útsetning lóðar og byggingarreits húss, öryggis- og lokaúttekt (eitt skipti á hvora) og eftirlit byggingarfulltrúa skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012.
  Rúmmetragjald fyrir byggingar stærri en 15 m² 236 kr./m³
  Byggingar 15-60 m² 124.293 kr.
  Byggingar stærri en 60 m² 217.509 kr.
  Yfirferð teikninga og umsýsla (undanþegin leyfisgjaldi í lið 1.1) 15.538 kr./klst.
  Vinna byggingarfulltrúa (t.d. ef vinna er umfram innheimt leyfisgjald) 22.294 kr./klst.
  Gjöld vegna aðkeyptrar yfirferðar séruppdrátta samkvæmt reikningi
  Meiri háttar framkvæmdir undanþegnar hefðbundinni gjaldtöku. 65.027 kr.
  Niðurrif mannvirkja 31.072 kr.
  Breyting á skráningu byggingar 31.072 kr.
  Lágmarksgjald vegna móttöku byggingarleyfisumsóknar 15.537 kr.
  Greiða skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja byggingarleyfisumsókn sem tekin er til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
  Gjöld skv. 1. gr. eru óendurkræf þótt lóðarúthlutun og byggingarleyfi falli úr gildi.
1.2 Gjöld vegna stöðuleyfa.
  Stöðuleyfisgjöld eru miðuð við hvern fermetra lausafjármunar. Lágmarksviðmunarstærð stöðuleyfisgjalda er miðuð við 15 m². Gjald miðar við útgáfu stöðuleyfis. Stöðuleyfi eru að hámarki veitt til 12 mánaða í senn.
  Stöðuleyfisgjald lausafjármuna 3.550 kr./m²
1.3 Leigugjöld á skipulögðum gámasvæðum, iðnaðarlóðum og dreifbýli
  Leigugjald fyrir 0-15 m² eða minna (jafngildir 20 feta gámi) veitt til eins árs í senn 59.184 kr. á ári. Miðað er við almanaksár.
  Leigugjald fyrir 16-30 m² (jafngildir 40 feta gámi), veitt til eins árs í senn 98.639 kr. á ári. Miðað er við almanaksár.

2. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

2.1 Leyfisveitingar og úttektir.  
  Aðrar leyfisveitingar, úttektir og vottorð (vínveitingaleyfi, húsaleiguúttektir, umsagnir vegna rekstrarleyfa o.fl.) 31.071 kr.
  Úttektir vegna byggingarstjóraskipta 31.071 kr.
  Úttektir vegna meistaraskipta 31.071 kr.
  Stöðuúttektir (undanþegnar leyfisgjaldi í lið 1.1) 31.071 kr.
  Lágmarksgjald vegna annarra leyfisveitinga 15.537 kr.
2.2 Afgreiðslur.  
  Afgreiðslur eignaskiptayfirlýsinga 62.147 kr.
  Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga skv. reikningi Þjóðskrár
  Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðarhafa 62.147 kr.
  Umsýslugjald vegna lóðarúthlutuna 56.861 kr.
  Umsýslugjald vegna stofnunar lóða 31.071 kr.
  Gjald vegna kostnaðar Þjóðskrár Íslands vegna stofnunar lóðar samkvæmt reikningi
  Umsýslugjald vegna útsetningar lóðarmarka að beiðni lóðarhafa 15.537 kr.
  Gjald vegna kostnaðar við lóðarútsetningu samkvæmt reikningi
  Efnistökuleyfi 40.440 kr.
  Lágmarksgjald vegna annarra afgreiðslna 15.537 kr.

3. gr. Meginreglur vegna breytinga á aðal- og/eða deiliskipulagi.

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

Ef kostnaður vegna vinnu skipulags- og byggingarfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er, vegna umfangs, verulega umfram viðmiðunargjald verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulags- og byggingarfulltrúa sem er 15.537 kr./klst. eða gjald skv. reikningi.

Skilgreiningar:

Umsýslu- og auglýsingakostnaður: kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu umsóknar, birtingar auglýsinga og annarrar umsýslu.

Breytingarkostnaður: kostnaður sem fellur til innan sveitarfélagsins við gerð nýs deiliskipulags eða breytingar á gildandi aðal- eða deiliskipulagsuppdrætti.

3.1 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga.  
  Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr., aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. 83.125 kr.
3.2 Kostnaður vegna deiliskipulags.  
  Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr., aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
  Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr., aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
  Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr., aðkeypt vinna samkvæmt reikningi
  Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. og 1. og 2. mgr. 43. gr. 83.125 kr.
3.3 Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.  
  Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, viðmiðunargjald 179.553 kr.
  Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir 74.801 kr.
  Framkvæmdaleyfi – aðrar minni framkvæmdir 31.073 kr.
  Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 15.537 kr.
  Lágmarksgjald vegna annars kostnaðar við leyfisveitingar 15.537 kr.

4. gr. Einingarverð og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi 1. maí 2026.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1351/2025.

Fjarðabyggð, 22. apríl 2026.

Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 29. apríl 2026

Tengd mál