Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

28. maí 2021

Útgáfudagur

31. maí 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 623/2021

28. maí 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 180/2014 um áhöfn í almenningsflugi.

1. gr. Innleiðing.

Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2193 frá 16. desember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar kröfur um hæfi og þjálfunaraðferðir fyrir flugliða og að því er varðar tilkynningu atvika í almenningsflugi og greiningu og eftirfylgni með þeim, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 150/2021 frá 23. apríl 2021, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 271.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 47. gr., 47. gr. a. og 31. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 28. maí 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. maí 2021

Tengd mál