Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
27. apríl 2026
Útgáfudagur
12. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 480/2026
27. apríl 2026
REGLUR
um verðbréfun.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 71/2025 um verðbréfun sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012 (hér eftir STSR), hvað varðar:
- kröfuna um eftirhald áhættu, skv. 7. mgr. 6. gr. STSR;
- upplýsingar sem upphafsaðila, umsjónaraðila og sérstökum verðbréfunaraðila ber að veita til að uppfylla skyldur sínar skv. 1. mgr. 7. gr., skv. 3. mgr. 7. gr. STSR;
- framsetningu upplýsinga sem upphafsaðila, umsjónaraðila og sérstökum verðbréfunaraðila ber að veita til að uppfylla skyldur sínar skv. 1. mgr. 7. gr., skv. 4. mgr. 7. gr. STSR;
- lista yfir lögmætan tilgang endurverðbréfunar skv. 3. mgr. 8. gr., skv. 5. mgr. 8. gr. STSR;
- umsókn um skráningu sem verðbréfunarskrá og verklagsreglur sem verðbréfunarskrár skulu beita til að sannreyna heilleika og samkvæmni upplýsinga sem þeim eru gerðar tiltækar, skv. 7. mgr. 10. gr. STSR;
- framsetningu umsóknar um skráningu verðbréfunarskrár, skv. 8. mgr. 10. gr. STSR;
- upplýsingagjöf upphafsaðila, umsjónaraðila og sérstaks verðbréfunaraðila og tiltækileika gagna í vörslu verðbréfunarskrár, skv. 2. mgr. 17. gr. STSR;
- stöðluð sniðmát sem upphafsaðilinn, umsjónaraðilinn eða sérstaki verðbréfunaraðilinn skulu nota til að veita upplýsingar skv. 1. mgr. 17. gr., skv. 3. mgr. 17. gr. STSR;
- hvaða undirliggjandi áhættuskuldbindingar skv. 8. mgr. 20. gr. teljast einsleitar, skv. 14. mgr. 20. gr. STSR;
- efni, aðferðir og framsetningu upplýsinga skv. 4. mgr. 22. gr., að því er varðar sjálfbærnivísa í tengslum við skaðleg áhrif á loftslagið og önnur skaðleg umhverfis-, félags- og stjórnunartengd áhrif, skv. 6. mgr. 22. gr. STSR;
- hvaða undirliggjandi áhættuskuldbindingar skv. 15. mgr. 24. gr. teljast einsleitar, skv. 21. mgr. 24. gr. STSR;
- hvaða undirliggjandi áhættuskuldbindingar skv. 8. mgr. 26. gr. b teljast einsleitar, skv. 13. mgr. 26. gr. b STSR;
- lýsingu og, ef við á, kvörðun afkomutengdra virkjandi atburða, skv. 5. mgr. 26. gr. c STSR;
- efni, aðferðir og framsetningu upplýsinga skv. 4. mgr. 26. gr. d, að því er varðar sjálfbærnivísa í tengslum við skaðleg áhrif á loftslagið og önnur skaðleg umhverfis-, félags- og stjórnunartengd áhrif, skv. 6. mgr. 26. gr. d STSR;
- upplýsingar sem veita ber í STS-tilkynningum og sniðmát sem nota skal við STS-tilkynningar, skv. 6. og 7. mgr. 27. gr. STSR;
- upplýsingar sem veita á Fjármálaeftirlitinu í umsókn um starfsleyfi þriðja aðila, skv. 4. mgr. 28. gr. STSR;
- almenna samstarfsskyldu, upplýsingaskipti og tilkynningarskyldu að því er viðkemur Fjármálaeftirlitinu, Eftirlitsstofnun EFTA og evrópsku eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, skv. 8. mgr. 36. gr. STSR.
2. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2024 , sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 3. október 2024, bls. 50, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/885 frá 5. febrúar 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir upplýsingar sem ber að senda lögbæru yfirvaldi í umsókn um starfsleyfi fyrir þriðja aðila til að meta hvort farið sé að STS-kröfunum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 97-104.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1851 frá 28. maí 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um einsleitni undirliggjandi áhættuskuldbindinga í verðbréfun. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 105-109.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1224 frá 16. október 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina upplýsingarnar og einstök atriði varðandi verðbréfun sem upphafsaðili, umsjónaraðili og sérstakur verðbréfunaraðili eiga að láta í té. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 110-325.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1226 frá 12. nóvember 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 og um tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina upplýsingarnar sem á að leggja fram í samræmi við kröfur um STS-tilkynningar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 326-355.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1229 frá 29. nóvember 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um rekstrarstaðla fyrir gagnasöfnun verðbréfunarskrár, söfnun, samanburð, aðgengi og sannprófun á heilleika og samræmi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 356-365.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1230 frá 29. nóvember 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina upplýsingarnar sem skulu vera í umsókn um skráningu sem verðbréfunarskrá og upplýsingarnar í einfaldaðri umsókn um framlengingu skráningar viðskiptaskrár. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 366-384.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1415 frá 5. maí 2021 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um samvinnu, upplýsingaskipti og tilkynningarskyldu milli lögbærra yfirvalda og Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 385-397.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2175 frá 7. júlí 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina nánar kröfuna um eftirhald áhættu fyrir upphafsaðila, umsjónaraðila, upphaflega lánveitendur og umsýslustofnanir. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 398-410.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1228 frá 29. nóvember 2019 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar snið umsókna um skráningu sem verðbréfunarskrá eða um framlengingu skráningar viðskiptaskrár samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 494-498.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1225 frá 29. október 2019 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar snið og stöðluð sniðmát sem upphafsaðili, umsjónaraðili og sérstakur verðbréfunaraðili skulu nota til að gera upplýsingar og einstök atriði um verðbréfun aðgengilegar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 19. mars 2026, bls. 411-478.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1227 frá 12. nóvember 2019 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sniðmát fyrir veitingu upplýsinga í samræmi við kröfur um STS-tilkynningar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 19. mars 2026, bls. 479-493.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1929 frá 31. mars 2022 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1227 að því er varðar sniðmát fyrir upplýsingamiðlun í samræmi við kröfur um STS-tilkynningar um tilbúnar verðbréfanir í efnahagsreikningi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 19. mars 2026, bls. 499-510.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2024, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 3. október 2024, bls. 25, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1301 frá 31. mars 2022 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) 2020/1226 að því er varðar upplýsingarnar sem á að leggja fram í samræmi við kröfur um STS-tilkynningar um tilbúnar verðbréfanir í efnahagsreikningi. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 19. mars 2026, bls. 511-552.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 216/2024, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 19. desember 2024, bls. 60, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/920 frá 13. desember 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina nánar afkomutengda virkjandi atburði og viðmið fyrir kvörðun slíkra atburða. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 556-561.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 244/2024, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 20. febrúar 2025, bls. 25, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1700 frá 5. mars 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina, fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun án eignatryggðra skammtímaskuldabréfa og fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun í efnahagsreikningi, innihald, aðferðafræði og framsetningu á upplýsingum í tengslum við helstu neikvæðu áhrif eigna sem fjármagnaðar eru með undirliggjandi áhættuskuldbindingum á sjálfbærniþætti. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 19. mars 2026, bls. 562-569.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 148/2024, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 3. október 2024, bls. 50, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/584 frá 7. nóvember 2023 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) 2019/1851 að því er varðar einsleitni undirliggjandi áhættuskuldbindinga í einfaldri, gagnsærri og staðlaðri verðbréfun. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 19. mars 2026, bls. 553-555.
3. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 15. gr. laga um verðbréfun, nr. 71/2025, taka gildi þegar í stað.
Seðlabanka Íslands, 27. apríl 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 12. maí 2026