Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Þingeyjarsveit
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Þingeyjarsýslur
Undirritunardagur
11. desember 2025
Útgáfudagur
29. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1481/2025
11. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir fráveitugjöld í Þingeyjarsveit.
Gjaldskrá fráveitugjalda er byggð á lögum nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna.
1. gr. Fráveitugjöld.
Fráveitugjald skal vera 0,184% af fasteignamati.
2. gr. Gjalddagar fráveitugjalds.
Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist fráveitugjald með fasteignasköttum.
3. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og var staðfest á fundi hennar 11. desember 2025 er sett með tilvísun í 15. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009. Gjaldskráin öðlast þegar gildi og jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir fráveitugjöld í Þingeyjarsveit, nr. 1751/2024.
Þingeyjarsveit, 11. desember 2025.
Gerður Sigtryggsdóttir sveitarstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025