Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Neytendastofa

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Textílvörur

Undirritunardagur

18. febrúar 2015

Útgáfudagur

4. mars 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 220/2015

18. febrúar 2015

REGLUR

um heiti og merkingu textílvara.

1. gr.

Innleiðing.

Með reglum þessum öðlast gildi eftirfarandi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun I og öðrum ákvæðum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993, með áorðnum breytingum:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1007/2011 frá 27. september 2011 um heiti textíltrefja og viðkomandi merkimiða og merkingar varðandi trefjasamsetningu textílvara og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 73/44/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 96/73/EB og 2008/121/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2012 frá 28. september 2012, birt í EES-viðbæti nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 937.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 286/2012 frá 27. janúar 2012 um breytingu á I. viðauka, til að fella inn nýtt heiti textíltrefja, og VIII. og IX. viðauka, í þeim tilgangi að laga þá að tækniframförum, reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1007/2011 um heiti textíltrefja og viðkomandi merkimiða og merkingar varðandi trefjasamsetningu textílvara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2012 frá 7. desember 2012, birt í EES-viðbæti nr. 16 frá 14. mars 2013, bls. 84.

2. gr.

Tungumál.

Merkingar textílvöru samkvæmt reglugerð þessari skulu vera á íslensku, ensku eða Norðurlandamáli, öðru en finnsku.

Neytendastofu er þrátt fyrir ákvæði þessarar greinar heimilt að krefjast þess að vara sem getur verið hættuleg við tiltekin skilyrði eða tiltekna notkun sé merkt með upplýsingum á íslensku um þá hættu, sbr. lög nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu.

3. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglum þessum fer samkvæmt ákvæðum IX. kafla laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

4. gr.

Gildistaka og brottfall.

Reglur þessar, sem innleiða framangreindar reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1007/2011 og nr. 286/2012 eru settar með heimild í 18. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, öðlast gildi við birtingu. Jafnframt eru felldar úr gildi reglur nr. 408/2007 um aðferðir við magngreiningu textíltrefjablandna og reglur nr. 295/2010

Neytendastofu, 18. febrúar 2015.

Tryggvi Axelsson.

Þórunn Anna Árnadóttir.

B deild - Útgáfud.: 4. mars 2015

Tengd mál