Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
22. apríl 2026
Útgáfudagur
8. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 466/2026
22. apríl 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Norður-Nýibær, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 11. mars 2026 tillögu að deiliskipulagi fyrir nýtt íbúðarhverfi í Norður-Nýjabæ. Heildarstærð svæðis er um 25 ha og hluti þess verður skilgreindur sem íbúðarbyggð. Fyrirhugað er að hluti íbúðarlóða verði 1,1 ha að jafnaði og að heimilt verði að reisa íbúðarhús og bílskúr auk gestahúsa til útleigu allt árið um kring fyrir ferðamenn. Heimild yrði til lítilsháttar reksturs innan svæðis að auki á sérlóð næst aðkomu inn á svæðið. Gert er ráð fyrir aðkomu að norðanverðu inn á spilduna af Þykkvabæjarvegi. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 22. apríl 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 8. maí 2026