Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

11. desember 2018

Útgáfudagur

17. desember 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1140/2018

11. desember 2018

REGLUR

ríkisskattstjóra um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2019.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2019 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2019.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2019 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 90 pr. lítra
Egg 493 pr. kg
Kartöflur 97 pr. kg
Rófur 183 pr. kg
Gulrætur 353 pr. kg
Lambakjöt 354 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 150 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 103 pr. kg
Ungnautakjöt 662 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 400 pr. kg
Folaldakjöt 285 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 104 pr. kg
Grísakjöt 417 pr. kg
Annað svínakjöt 212 pr. kg
Kjúklingar 376 pr. kg
Annað fuglakjöt 616 pr. kg
Lax og silungur 673 pr. kg
Annar fiskur 311 pr. kg

Reykjavík, 11. desember 2018.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 17. desember 2018

Tengd mál