Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

17. apríl 2026

Útgáfudagur

5. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 440/2026

17. apríl 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Bláskógabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Tungurimi 27, L238278, Reykholt, hreinsistöð og nýting jarðhita.

Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi sem tekur til þéttbýlisins í Reykholti. Suðaustan við íbúðarbyggðina við Tungurima hefur verið reist hreinsistöð fyrir fráveitu og borað eftir heitu vatni. Sveitarfélagið hyggst nýta vatnið fyrir ört stækkandi byggð í Reykholti og mögulega bora fleiri holur í framtíðinni ef þörf verður á meira af heitu vatni. Í breyttu deiliskipulagi er núverandi lóð fyrir hreinsivirkið stækkuð og heimilað að nýta jarðhita innan hennar og vera með þau mannvirki sem þarf í tengslum við þá vinnslu.

Samþykkt í sveitarstjórn 4. mars 2026.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 17. apríl 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 5. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi