Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ríkisskattstjóri
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
19. desember 2019
Útgáfudagur
30. desember 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1246/2019
19. desember 2019
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um reikning fyrninga og vaxta vegna fjármögnunarleigu fólksbifreiða.
Útreikningur frádráttarbærs hluta leigugreiðslna rekstrarárið 2019 vegna fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 menn, þó að undanskildum leigubifreiðum skv. 4. tölul. 50. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal vera sem hér segir:
- Fyrningargrunnur telst vera kaupverð bifreiðar eins og það er ákveðið við kaup leigusala (fjármögnunarleigufyrirtækis) á viðkomandi bifreið að frádregnum áður fengnum fyrningum.
- Til frádráttar hjá leigutaka á rekstrarárinu 2019 telst 20% fyrning af fyrningargrunni skv. 1. tölul. hér að framan, að viðbættum 5,7% vöxtum reiknuðum hlutfallslega miðað við upphaf eða lok leigutíma á árinu 2019. Vextir reiknast af fyrningargrunni.
- Fyrning skv. 2. tölul. hér að framan er heimil að fullu rekstrarárið 2019, hvort sem leigutímabilið hefst eða því lýkur á því ári.
Reykjavík, 19. desember 2019.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 30. desember 2019