Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvegaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður
Undirritunardagur
23. mars 2026
Útgáfudagur
10. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 349/2026
23. mars 2026
REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 203/2023 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 4. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/973 frá 23. maí 2025 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/1165 um að leyfa tilteknar vörur og efni til notkunar við lífræna framleiðslu og koma á fót skrám yfir þau. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 265/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 280.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og II. kafla laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Matvælastofnun er heimilt að framselja opinbert eftirlit með lífrænni framleiðslu og merkingu lífrænna vara til faggildra vottunarstofa, sbr. 23. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Eftirlit með smásölu lífrænna vara er í höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, sbr. 6. gr. k laga um matvæli, nr. 93/1995.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. j laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. mars 2026.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Donika Kolica.
B deild — Útgáfudagur: 10. apríl 2026