Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Happdrætti
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
16. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1388/2025
15. desember 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 500/2020.
1. gr.
1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Verð hlutamiða er 2.300 kr. í hverjum mánaðarlegum útdrætti.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin „mánaðarlegum útdráttum stakra milljónavinninga og í“ í 1. mgr. falla brott.
- Liður II, Útdráttur stakra milljónavinninga, fellur brott og breytast númer liða sem á eftir koma samkvæmt því.
- Í stað „10 milljóna“ í þriðja lið sem verður annar liður kemur: 15 milljóna.
- Í stað „10 milljóna“ í fjórða lið sem verður þriðji liður kemur: 15 milljóna.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 5. gr. laga um Happdrætti Háskóla Íslands, nr. 13/1973, öðlast gildi 1. janúar 2026.
Dómsmálaráðuneytinu, 15. desember 2025.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Bryndís Helgadóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025