Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Lyf

Undirritunardagur

19. ágúst 2026

Útgáfudagur

31. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 938/2026

19. ágúst 2026

REGLUGERÐ

um (8.) breytingu á reglugerð nr. 441/2006 um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs.

1. gr.

Við 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður sem verður svohljóðandi:

Að blóðgjöfum sé ekki mismunað á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, s.s. kyns, kynhneigðar, uppruna eða stöðu að öðru leyti.

2. gr.

Við 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður sem verður svohljóðandi:

Áhættusamt kynlíf: Kynlíf sem eykur verulega líkur á að fá alvarlega smitsjúkdóma sem berast með blóði. Hér undir fellur til dæmis kynlíf þar sem verjur eru ekki notaðar og aðilar eru ekki í langtíma stöðugu sambandi eða stunda kynlíf út fyrir sambandið, kynlíf með mörgum einstaklingum með eða án notkunar verja, kynlíf án notkunar verja með einstaklingi sem stundar áhættusamt kynlíf, kynlíf án notkunar verja með einstaklingi sem sprautar fíkniefnum í æð eða hefur gert slíkt og kynlíf með eða án notkunar verja sem stundað er gegn greiðslu.

3. gr.

Viðmiðun um kynhegðun sem varanlega frávísun gjafa blóðeininga sem gefa á öðrum, sbr. lið 2.1 í viðauka IV, fellur brott.

4. gr.

Við lið 2.2.4 í viðauka IV, um aðrar viðmiðanir fyrir tímabundna frávísun gjafa blóðeininga sem gefa á öðrum, bætist nýr liður sem verður svohljóðandi:

Áhættusamt kynlíf: 4 mánuðir hjá einstaklingum sem hafa stundað áhættusamt kynlíf.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 109. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, öðlast gildi 1. september 2026.

Heilbrigðisráðuneytinu, 19. ágúst 2026.

Alma D. Möller.

Guðríður Bolladóttir.

B deild — Útgáfudagur: 31. ágúst 2026

Tengd mál