Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Orkuveita Reykjavíkur

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Akranes

Undirritunardagur

22. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1471/2025

22. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir fráveitu á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu, Akraneskaupstaður.

Félagsfundur Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf. hefur samþykkt eftirfarandi gjaldskrá fyrir fráveitu og birtir hana í umboði bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar:

1. gr. Álögð fráveitugjöld.

Sveitarfélag

Fast gjald
kr./matseiningu

Breytilegt gjald
kr./fermetra

Veitusvæði II - Akranes 14.065 542,87

Fyrir fasteignir í landi Krosslands í Hvalfjarðarsveit gildir verð skv. veitusvæði II – Akranes.

Heimilt er að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum þar sem tenging er fyrir hendi við mörk fasteignar. Fráveitugjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og fermetragjaldi eftir stærð samkvæmt fasteignamati. Heimilt er að reiknað sé af flatarmáli allra mannvirkja á fasteign.

Heimilt er Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu að gjaldfella álagningu ársins verði greiðslufall á einum eða fleiri reikningum vegna álagningarinnar.

Heimilt er að innheimta sérstakt aukagjald ef frárennsli frá gjaldskyldum aðila er svo mengað að það leiði til sérstakra aðgerða fráveitunnar, svo sem sértækrar hreinsunar eða breytinga í kerfinu. Er þá innheimtur raunkostnaður sem hlýst af viðkomandi aðgerð.

2. gr. Tengigjöld.

Svæði Tengigjald¹ Grunnur
Ný hverfi, þar sem tengingar eru ekki til staðar inn á lóð 606.242 kr./lóð

¹ Verð miðast við tvöfalda 150 mm tengingu við lóðarmörk og fyrstu tengingu inn á lóð, lóðarhafar greiða raunkostnað fyrir umframtengingar og stærri tengingar.

Fyrir stakar lóðir, þar sem tenging er ekki til staðar t.d. vegna þéttingar byggðar, greiðir lóðarhafi raunkostnað af nýrri tengingu við virkt fráveitukerfi.

Hafi lóðarhafi eða verktaki á hans vegum lagt tengingu undir eftirliti Orkuveitunnar greiðir hann fyrir tengistút við safnkerfi kr. 116.211.

Tengigjöldin miðast við byggingarvísitölu í nóvember 2025 og uppfærast 1. hvers mánaðar miðað við þá vísitölu.

3. gr.

Gjaldskrá þessi sem er sett í samræmi við lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009 og reglugerð um fráveitur sveitarfélaga nr. 982/2010 öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1630/2024.

F.h. Orkuveitu Reykjavíkur – vatns- og fráveitu sf., 22. desember 2025.

Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál