Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
19. ágúst 2026
Útgáfudagur
26. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 918/2026
19. ágúst 2026
REGLUGERÐ
um (5.) breytingu á reglugerð um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 162/2021.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna „og nr. 324/2023 frá 8. desember 2023“ í inngangsmálslið greinarinnar kemur: nr. 324/2023 frá 8. desember 2023 og nr. 96/2026 frá 20. mars 2026.
- Á eftir dagsetningunni „22. september 2022“ í 10. tölul. kemur: og þeim breytingum sem leiðir af framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1775 frá 28. ágúst 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2020/1818 að því er varðar skilgreininguna á bönnuðum vopnum, sem er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari.
2. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt fylgiskjal, sem er birt með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í e-lið 1. mgr. 13. gr. laga um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. ágúst 2026.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
B deild — Útgáfudagur: 26. ágúst 2026