Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Múlaþing

Málaflokkur

Félagsmál, Múlaþing

Undirritunardagur

20. apríl 2022

Útgáfudagur

26. apríl 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 467/2022

20. apríl 2022

GJALDSKRÁ

vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna í Múlaþingi.

1. gr.

Múlaþing greiðir stuðningsfjölskyldu þóknun fyrir hvern sólarhring sem barn dvelur hjá fjölskyldunni.

2. gr.

Fjárhæð greiðslna á sólarhring miðast við meðlagsgreiðslur hjá Tryggingastofnun ríkisins á hverjum tíma. Fyrir einn sólarhring er greitt hálft einfalt meðlag, fyrir helgardvöl (2 sólarhringa) er greitt heilt meðlag.

Upphæðir taka breytingum samhliða breytingum hjá Tryggingastofnun (upplýsingar á vefsíðu www.tr.is).

3. gr.

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna eru skattskyldar verktakagreiðslur en draga má frá kostnað samkvæmt reglum ríkisskattstjóra.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 15. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og öðlast þegar gildi. Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 8. desember 2021.

Múlaþingi, 20. mars 2022.

Björn Ingimarsson sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2022

Tengd mál