Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

18. apríl 2026

Útgáfudagur

6. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 447/2026

18. apríl 2026

REGLUR

um breytingu á reglum um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands, nr. 153/2010.

1. gr.

7. gr. reglnanna orðast svo:

Fjöldi nýrra nemenda í meistaranám í hagnýtri sálfræði takmarkast árlega á eftirfarandi hátt:

  1. Á kjörsviði klínískrar sálfræði er tekið við að hámarki 20 nemendum.
  2. Á öðrum kjörsviðum MS-náms í hagnýtri sálfræði er tekið við að hámarki 15 nemendum samtals.

Til þess að umsókn um meistaranám í hagnýtri sálfræði komi til efnislegrar meðferðar þarf umsækjandi að hafa lokið bakkalárgráðu (BA/BS) í sálfræði, að jafnaði með fyrstu einkunn, eða sambærilegu prófi sem sálfræðideild metur gilt. Fullnægjandi inntökuskilyrði veita ekki sjálfkrafa rétt til inngöngu í námið, heldur er ákvörðun um inntöku byggð á
heildstæðu mati inntökunefndar á grundvelli þeirra gagna og viðmiða sem tilgreind eru í 3. og 4. mgr.

Til þess að umsókn teljist gild og komi til mats þurfa eftirfarandi gögn að berast með rafrænum hætti innan tilskilins umsóknarfrests:

  1. Staðfest afrit prófskírteinis og námsferilsyfirlits með árangursröðun (e. ranking). Umsækjendur sem lokið hafa grunnnámi frá öðrum háskólum en Háskóla Íslands skulu skila staðfestu námsferilsyfirliti sem inniheldur upplýsingar um árangursröðun (e. ranking) nemandans innan einstakra námskeiða, sé þess kostur að afla slíkra upplýsinga. Geti umsækjandi ekki aflað slíkra upplýsinga skal hann skila inn staðfestingu þess efnis frá viðkomandi háskóla.
  2. Greinargerð um fræðileg og fagleg áform í námi og starfi, þar sem skýrt kemur fram hvaða kjörsvið er sótt um.
  3. Ferilskrá þar sem náms- og starfsferill er rakinn.
  4. Nöfn og samskiptaupplýsingar tveggja meðmælenda. Umsókn telst ekki gild nema tvö meðmælabréf hafi borist með rafrænum hætti beint frá meðmælendum innan umsóknarfrests.
  5. Umsækjandi á kjörsviði klínískrar sálfræði skal leggja fram hreint sakavottorð útgefið ekki síðar en átta vikum fyrir umsóknarfrest.

Hafi öll tilskilin umsóknargögn ekki borist að liðnum umsóknarfresti verður umsókn ekki tekin til efnislegrar meðferðar og telst ógild. Inntökunefnd sálfræðideildar metur allar gildar umsóknir til að kanna hæfni umsækjenda til að stunda námið með fullnægjandi árangri. Sé fjöldi hæfra umsækjenda meiri en nemendafjöldi skv. 1. mgr. heimilar, skal inntökunefnd raða þeim í forgangsröð á grundvelli heildarmats á eftirfarandi þáttum:

  1. Námsárangur í grunnnámi, þar með talið einkunnir og innbyrðis árangursröðun (e. ranking) innan námskeiða.
  2. Viðtöl við umsækjendur, ef viðtöl eru tekin.
  3. Viðeigandi menntun önnur en grunnnám í sálfræði.
  4. Rannsóknareynsla og birtingar í ritrýndum tímaritum.
  5. Viðeigandi starfsreynsla.
  6. Gæði greinargerðar um náms- og starfsáform.
  7. Efni tveggja meðmælabréfa.

Inntökunefnd sálfræðideildar annast mat umsókna og gerir rökstudda tillögu til deildarforseta um inntöku nemenda.

2. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði Háskóla Íslands með heimild í 18. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, sbr. 47. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 18. apríl 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 6. maí 2026

Tengd mál