Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður
Undirritunardagur
14. nóvember 2023
Útgáfudagur
23. nóvember 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1242/2023
14. nóvember 2023
REGLUGERÐ
um innleiðingu framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1450 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar notkun á ólífrænu prótínfóðri til framleiðslu á lífrænt öldu búfé vegna innrásar Rússlands í Úkraínu.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1450 frá 27. júní 2022 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar notkun á ólífrænu prótínfóðri til framleiðslu á lífrænt öldu búfé vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 235/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, frá 3. nóvember 2022, bls. 166.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og II. kafla laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Emilía Madeleine Heenen.
B deild - Útgáfud.: 23. nóvember 2023