Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsrn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

14. janúar 2025

Útgáfudagur

28. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 77/2025

14. janúar 2025

AUGLÝSING

um álagningu opinberra gjalda á árinu 2025.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 30. maí 2025 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2025. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 14. janúar 2025.

F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. janúar 2025

Tengd mál