Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki

Undirritunardagur

28. maí 2026

Útgáfudagur

29. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 603/2026

28. maí 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.

1. gr.

Við 1. mgr. 25. gr. a reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, svohljóðandi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/2838 frá 23. október 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1379/2013, (ESB) nr. 167/2013 og (ESB) nr. 168/2013 að því er varðar tilteknar kröfur um skýrslugjöf, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 199/2025, 19. september 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 20. nóvember 2025, bls. 434-436.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1257 frá 24. apríl 2024 um gerðarviðurkenningu vélknúinna ökutækja og hreyfla og kerfa, íhluta og aðskilinna tæknieininga sem ætluð eru fyrir slík ökutæki, með tilliti til losunar frá þeim og endingar rafgeyma (Euro 7), um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/858 og niðurfellingu á reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 715/2007 og (EB) nr. 595/2009, reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 582/2011, reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1151, reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2400 og framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1362, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 201/2025, 19. september 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 80 frá 18. desember 2025, bls. 307-355.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1871 frá 23. júlí 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/758 að því er varðar staðla sem varða eCall-neyðarsímtal og um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2017/79 að því er varðar tæknilegar kröfur og prófunaraðferðir vegna viðurkenningar á vélknúnum ökutækjum sem eru búin eCall-kerfi sem er tengt 112, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2026, 6. febrúar 2026, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 19-35.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1455 frá 23. júlí 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 44/2014 að því er varðar tæknilegar kröfur og prófunaraðferðir varðandi vernd ökutækja í flokki L gegn netárásum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2026, 6. febrúar 2026, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 9. apríl 2026, bls. 212-215.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1122 frá 5. júní 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2144 til að taka tillit til þróunar á sviði reglusetningar að því er varðar breytingar á reglugerðum Sameinuðu þjóðanna nr. 25, 34, 79, 100, 117, 127 og 152 og nýjar reglugerðir Sameinuðu þjóðanna nr. 167, 169 og 171 sem Alþjóðaráðið um samhæfingu reglugerða um ökutæki innan ramma efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu samþykkti, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2026, 20. mars 2026, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 7. maí 2026, bls. 95-99.

2. gr.

Viðauki IV við reglugerðina breytist þannig:

  1. Undir fyrirsögninni „Bifreiðir og eftirvagnar“:
    Undir tölulið 45zzk reglugerð nr. 595/2009/EB (í reitina „Síðari viðbætur“, „Stjórnartíðindi EB“ og „EES-birting“) kemur:
    2025/258/ESB L 2025/258, 20.2.2025 Birt í EES-viðbæti nr. 17, frá 19. mars 2026, bls. 588-692.
  1. Undir fyrirsögninni „Dráttarvélar“:
  1. Undir tölulið 37 við reglugerð 2015/68/ESB (í reitina „Síðari viðbætur“, „Stjórnartíðindi EB“ og „EES-birting“) kemur:
    2025/1117/ESB L 2025/1117, 12.6.2025 Birt í EES-viðbæti nr. 30, frá 7. maí 2026, bls. 100-104.
  1. Undir tölulið 38 við reglugerð 2015/208/ESB (í reitina „Síðari viðbætur“, „Stjórnartíðindi EB“ og „EES-birting“) kemur:
    2025/1117/ESB L 2025/1117, 12.6.2025 Birt í EES-viðbæti nr. 30, frá 7. maí 2026, bls. 100-104.

3. gr.

Með reglugerð þessari eru innleiddar reglugerðir: 2024/2838/ESB, 2025/258/ESB, 2024/1257/ESB, 2025/1871/ESB, 2025/1455/ESB, 2025/1122/ESB og 2025/1117/ESB.

4. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 69. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 28. maí 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Gauti Daðason.

B deild — Útgáfudagur: 29. maí 2026

Tengd mál