Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
19. ágúst 2026
Útgáfudagur
2. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 949/2026
19. ágúst 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.
1. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
7.43 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/508 frá 23. apríl 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.43.
8.34 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/506 frá 23. apríl 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.34.
2. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 19. ágúst 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/508
frá 23. apríl 2026
um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi
aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 31. júlí 2014 samþykkti ráðið ákvörðun 2014/512/SSUÖ (1).
2) Sambandið styður enn staðfastlega fullveldi og landamærahelgi Úkraínu.
3) Í ályktunum sínum frá 19. desember 2024 ítrekaði leiðtogaráðið einbeitta fordæmingu sína á árásarstríði Rússlands gegn Úkraínu, sem er augljóst brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna, og áréttaði áframhaldandi staðfasta skuldbindingu Sambandsins til að halda áfram að veita Úkraínu og úkraínsku þjóðinni pólitískan, fjárhagslegan, efnahagslegan, mannúðlegan, hernaðarlegan og diplómatískan stuðning.
4) Svo lengi sem ólögmætar aðgerðir Rússneska sambandsríkisins halda áfram að brjóta gegn grundvallarreglum þjóðaréttar, þ.m.t. einkum banninu við valdbeitingu sem er að finna í 4. mgr. 2. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna, eða alþjóðlegum mannúðarrétti þykir rétt að láta allar ráðstafanir sem Sambandið hefur gert gilda áfram og gera viðbótarráðstafanir ef nauðsyn krefur.
5) Í ljósi áframhaldandi og stigvaxandi árása Rússneska sambandsríkisins á Úkraínu, einkum nýlegrar hrottalegrar hernaðaraðgerðar sem beinist vísvitandi gegn borgaralegum innviðum, þ.m.t. orkuverum, vatnsveitum og heilbrigðisstofnunum, sem hefur valdið almennum borgurum miklum þjáningum og sem miðar að því að grafa undan viðnámsþrótti Úkraínu, telur ráðið nauðsynlegt að samþykkja frekari þvingunaraðgerðir.
6) Einkum ætti að bæta 60 rekstrareiningum á skrána yfir lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir, sem sett er fram í IV. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, þ.e. skrána yfir aðila, rekstrareiningar og stofnanir sem styðja við hergagnaiðnað í Rússlandi í árásarstríði þess gegn Úkraínu, sem eru látin sæta þrengri takmörkunum á útflutningi að því er varðar vörur og tækni með tvíþætt notagildi, sem og vörur og tækni sem kunna að stuðla að tæknilegri eflingu í varnar- og öryggismálum Rússlands. Þessar rekstrareiningar taka m.a. til tiltekinna rekstrareininga í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, sem stuðla óbeint að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Rússlands og gera þannig sniðgöngu útflutningstakmarkana mögulega, þ.m.t. á tölvustýringarvélum, örrásartækni, íhlutum í ómönnuð loftför, örrásartæknivörum, búnaði um borð í skipum og íhlutum fyrir önnur ökutæki og vélbúnað.
7) Rétt þykir að auka við skrána yfir hluti sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Rússlands eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála með því að bæta við hlutum sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hlutum sem stuðla að þróun eða framleiðslu hernaðarkerfa þess, þ.m.t. glervörur fyrir rannsóknarstofur, tiltekin háþróuð smurefni og íblöndunarefni þeirra og orkurík efni.
8) Auk þess er talið rétt að leggja frekari innflutningshöft á vörur sem afla umtalsverðra tekna fyrir Rússland og gera því þannig kleift að halda áfram árásarstríði sínu gegn Úkraínu, þ.m.t. á tiltekin hráefni, málma, tiltekin jarðefni, brotastál og aðra málma, íðefni, vörur úr súlfuðu gúmmíi og á sútað loðskinn.
9) Til að lágmarka hættu á sniðgöngu þvingunaraðgerða þykir rétt að auka enn frekar við skrána yfir vörur og tækni sem falla undir bann við umflutningi um yfirráðasvæði Rússlands.
10) Einnig þykir rétt að leggja frekari útflutningshöft á vörur sem gætu stuðlað að því að auka getu Rússlands á sviði iðnaðar, s.s. íðefni, gúmmí og vörur úr súlfuðu gúmmíi, vörur úr stáli, verkfæri til málmframleiðslu og iðnaðardráttarvélar.
11) Réttmætt þykir að víkka út gildandi bann við útsendingum þannig að það takmarki einnig útsendingar og aðgengi að útsendingum í Sambandinu á efni frá rekstrareiningum sem spegla efni frá öðrum rekstrareiningum sem falla þegar undir bannið, til að bregðast við tilraunum til að sniðganga þvingunaraðgerðina. Í samræmi við grundvallarréttindi og frelsi sem viðurkennd eru í sáttmálanum um grundvallarréttindi, einkum réttinn til tjáningar- og upplýsingafrelsis, frelsis til atvinnurekstrar og eignarréttinn eins og hann er viðurkenndur í 11., 16. og 17. gr. sáttmálans, kemur þessi ráðstöfun ekki í veg fyrir að þessir fjölmiðlar, sem sæta banni við útsendingu, og starfsfólk þeirra stundi aðra starfsemi í Sambandinu en útvarpsrekstur eins og rannsóknir og viðtöl. Einkum breytir þessi ráðstöfun ekki þeirri skyldu að virða þau réttindi, frelsi og meginreglur sem um getur í 6. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, þ.m.t. í sáttmálanum um grundvallarréttindi og stjórnarskrám aðildarríkjanna, á viðkomandi gildissviðum þeirra.
12) Rétt þykir að leggja bann við því að veita rússneskum rekstrareiningum, eða rekstrareiningum sem eru í eigu eða undir stjórn rússneskra ríkisborgara eða rekstraraðila, þjónustu birgðastöðva fyrir fljótandi jarðgas. Viðkomandi samningar um hlutaðeigandi þjónustu birgðastöðva fyrir fljótandi jarðgas ættu sjálfkrafa að falla úr gildi 1. janúar 2027.
13) Rétt þykir að breyta verðþakinu á rússneskri hráolíu og jarðolíuafurðum. Upplýsa ætti ráðið eins fljótt og auðið er um hvers konar samkomulag Verðþaksbandalagsins og umræður G7-hópsins og ráðið ætti að taka ákvörðun, á grundvelli sameiginlegrar tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum, um beitingu á verðþaki fyrir olíu með þeim áhrifum að allsherjarbann á þjónustu á sviði sjóflutninga sem varða rússneska hráolíu og jarðolíuafurðir myndi taka gildi.
14) Rétt þykir að breyta skyldunni til að afhenda sönnunargögn, byggð á rekjanleika, með því að krefjast þess að innflytjendur á slípuðum demöntum, þ.m.t. demantar sem slípaðir eru í þriðju löndum, leggi fram áreiðanleikakönnunaryfirlýsingu sem staðfestir að demantarnir hafi ekki verið unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi.
15) Ríkisstjórn Rússneska sambandsríkisins hefur sett ólögmæta, svokallaða „tímabundna stjórnun“ á fasteignir á yfirráðasvæði Rússneska sambandsríkisins sem tilheyra erlendum aðilum sem tengjast svokölluðum „óvinveittum, erlendum ríkjum“, þ.e. ríkjum sem hafa innleitt þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi. Þessi svokallaða „tímabundna stjórnun“ jafngildir eignarnámi. Með þessum aðferðum fjarlægir ríkisstjórn Rússneska sambandsríkisins aðila frá Sambandinu, sem veita rússneskum fyrirtækjum samkeppni, af rússneska markaðnum og veitir þeim síðarnefndu efnahagslegt forskot á þessa samkeppnisaðila frá Sambandinu og aðra erlenda samkeppnisaðila og styrkir þannig viðnámsþrótt rússneska hagkerfisins gagnvart þvingunaraðgerðum sem hafa áhrif á það. Í sumum tilvikum er hin svokallaða „tímabundna stjórnun“ jafnvel veitt rússneskum samkeppnisaðilum rekstrareininga Sambandsins, sem veitir þeim beint efnahagslegt forskot á þessa samkeppnisaðila frá Sambandinu. Til að styrkja ramma þvingunaraðgerða Sambandsins er réttlætanlegt að gera ráðinu kleift að taka saman skrá yfir rússnesk fyrirtæki sem sæta viðskiptabanni og sem njóta góðs af slíkri ólögmætri svokallaðri „tímabundinni stjórnun“, einkum með því að taka „tímabundið“ yfir umsjón með eignum og rekstrareiningum í Rússlandi, sem eru í eigu eða undir stjórn rekstrareininga með staðfestu í Sambandinu, eða með því að starfa á sama markaðssviði og þær sem eru í eigu eða undir stjórn rekstrareininga í Sambandinu. Í sérstökum tilvikum ætti að kveða á um undantekningar.
16) Sambandið hefur gert ákveðnar ráðstafanir til að auðkenna rekstrareiningar sem greiða fyrir áframhaldandi fjárhagslegri líflínu fyrir árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, hvort sem það er með því að tengjast sendingakerfi seðlabanka Rússlands fyrir fjármálaskilaboð („SPFS“) eða með því að gera kleift að sniðganga þvingunaraðgerðir Sambandsins og til að banna hvers konar viðskipti milli þessara rekstrareininga og rekstraraðila Sambandsins. Af þeim rekstrareiningum sem tilgreindar eru hafa fimm gert ráðstafanir til að loka smugum og binda enda á viðkomandi ólöglega starfsemi. Því er réttlætanlegt að fjarlægja skráningar þessara fimm rekstrareininga úr viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ. Auk þess eru vísbendingar um að aðrar slíkar rekstrareiningar í þriðju löndum haldi áfram að gera Rússlandi kleift að stunda ólöglega starfsemi. Fjórar fjármálastofnanir voru tilgreindar. Banna ætti viðskipti milli þeirra og aðila sem staðsettir eru í Sambandinu með því að færa þessar fjórar fjármálastofnanir á skrá í viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ.
17) Seðlabanki Rússneska sambandsríkisins er að hleypa af stokkunum stafrænni rúblu, sem búist er við að verði algengur greiðslumáti á næstu árum meðal rússneskra fyrirtækja, einstaklinga og lána- og fjármálastofnana, og einnig milli þeirra og rekstraraðila í þriðju löndum. Þótt stafræna rúbluverkefnið sé enn á undirbúningsstigi er því m.a. ætlað að vera greiðslukerfi sem hlífir rússneskum aðilum við áhrifum þvingunaraðgerða sem t.d. er kveðið á um í ákvörðunum 2014/512/SSUÖ og 2014/145/SSUÖ (2), og í reglugerðum ráðsins (ESB) nr. 833/2014 (3) og (ESB) 269/2014 (4). Því er viðeigandi að banna þátttöku, með beinum eða óbeinum hætti, í hvers kyns viðskiptum sem varða seðlabankarafeyri, svo sem stafrænu rúbluna, eða að styðja við þróun slíkra verkefna. Einnig ætti að kveða á um takmarkaðan tíma til að gera kleift að slíta gildandi samningum með skipulegum hætti.
18) Rétt þykir að auka við skrána yfir sýndareignir sem bannað er að nota í viðskiptum, þar sem viðkomandi sýndareignir skapa hættu á að bönnin, sem m.a. er mælt fyrir um í ákvörðunum 2014/512/SSUÖ og 2014/145/SSUÖ og í reglugerðum (ESB) nr. 833/2014 og (ESB) nr. 269/2014, verði sniðgengin. Einnig ætti að kveða á um takmarkaðan tíma til að gera kleift að slíta gildandi samningum með skipulegum hætti.
19) Í febrúar 2025 var rússneska rafmyntakauphöllin Garantex færð á skrá í viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/145/SSUÖ og reglugerð (ESB) 269/2014 fyrir að veita öðrum skráðum aðilum aðgang að alþjóðlega fjármálakerfinu. Sönnunargögn úr borgaralegum rannsóknum sýna að þessi starfsemi Garantex hefur verið flutt til annarra rekstrareininga með staðfestu í Rússlandi, til að komast hjá þvingunaraðgerðum Sambandsins. Allar frekari skráningar á einstökum þjónustuveitendum sýndareigna eða á dreifstýrðum vettvöngum, sem heimila skipti eða millifærslu á sýndareignum, eru því líklegar til að leiða til þess að nýjar skráningar verði stofnaðar til að sniðganga þessar skráningar. Til að tryggja að þvingunaraðgerðir Sambandsins hafi tilætluð áhrif þykir rétt að leggja bann við samskiptum við þjónustuveitanda sýndareigna sem hefur staðfestu í Rússlandi og að nota vettvang staðsettan í Rússlandi sem auðveldar millifærslu og viðskipti með sýndareignir.
20) Rétt þykir að bæta 20 lána- eða fjármálastofnunum á skrána yfir lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem falla undir viðskiptabann. Viðskiptabannið nær til tiltekinna rússneskra lána- eða fjármálastofnana eða annarra rekstrareininga, þ.m.t. þeirra sem eru áskrifendur að sendingarþjónustu á sviði fjármála eða rússneskra dótturfyrirtækja lána- eða fjármálastofnana í þriðju löndum, sem skipta máli fyrir rússneska fjármála- og bankakerfið og eru annaðhvort stórir eða mikilvægir svæðisbundnir bankar, sem greiða af þeim sökum fyrir svæðisbundnum og alríkistengdum fjármálum og viðskiptum, eða bankar sem greiða fyrir framkvæmd greiðslna yfir landamæri og efla þannig rússneska hagkerfið og atvinnulíf þess, bankar sem grafa undan landamærahelgi Úkraínu með því að starfa á hernumdum svæðum í Úkraínu eða með því að veita fjármálaþjónustu á hernumdum svæðum í Úkraínu, bankar sem veita herstarfsliði í rússneska heraflanum fjármálaþjónustu eða bankar sem falla þegar undir þvingunaraðgerðir Sambandsins eða samstarfslanda þess. Auk þess er nauðsynlegt að breyta undanþágu sem krafist er vegna viðtöku greiðslna og efnda fyrri skuldbindinga af hálfu lögaðila, rekstrareininga eða stofnana, sem um getur í VIII. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, og að bæta við undanþágu vegna greiðslu hæfilegrar þóknunar fyrir sérfræðistörf eða endurgreiðslu kostnaðar vegna lögfræðiþjónustu, ásamt undanþágu varðandi þarfir ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi.
21) Réttmætt þykir að setja viðbótartakmarkanir á veitingu þjónustu til ríkisstjórnar Rússlands, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana með staðfestu í Rússlandi, sem stuðlar að því að efla tæknilega getu Rússlands, einkum veitingu stýrðrar öryggisþjónustu.
22) Rétt þykir að innleiða undanþágu frá kröfunni um fyrirframheimild fyrir þjónustu sem veitt er ríkisstjórn Rússlands, sem fellur ekki þegar undir þvingunaraðgerðirnar sem settar eru fram í ákvörðun 2014/512/SSUÖ eða reglugerð (ESB) nr. 833/2014, þegar sú þjónusta er bráðnauðsynleg vegna starfsemi ræðis- eða sendiskrifstofu Rússlands sem staðsett er í aðildarríki.
23) Nauðsynlegt er að víkka út gildandi bann við því að þiggja fjármögnun, framlög eða annan efnahagslegan ávinning eða stuðning frá Rússlandi, hvort sem er með beinum eða óbeinum hætti, með því að víkka það út þannig að það nái til opinberra eða einkarekinna rannsóknarstofnana, háskóla, æðri menntastofnana, rannsóknar- og tæknistofnana, frjálsra félagasamtaka, opinberra aðila og stofnana, til fyrirtækja og annarra rekstrareininga í iðnaðar- og verslunargeirunum, þ.m.t. örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki sem framkvæma rannsóknar- og nýsköpunaraðgerðir, og til einstaklinga sem tengjast slíkum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum. Að þiggja opinbert fjármagn frá Rússlandi getur leitt til beins eða óbeins stuðnings við rússneska einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir vegna tengdrar yfirfærslu þekkingar, aðgangs að innviðum, þjálfunar og annarrar starfsemi sem fram fer í tengslum við rannsóknir og nýsköpun. Enn fremur gætu núverandi áætlanir gert ráð fyrir að rannsóknir verði áfram í Rússlandi. Þessa starfsemi er hægt að nota til að hafa áhrif á herferðir og til að ýta undir villandi upplýsingar sem miða að því að grafa undan landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu og til að ýta undir áróður Rússa, sem beinist að því að réttlæta og styðja árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu. Því er rétt að leggja bann við fjármögnun frá Rússlandi og fulltrúum þess til aðila í Sambandinu sem framkvæma rannsóknar- og nýsköpunaraðgerðir.
24) Rétt þykir að skýra að kvaðir um skýrslugjöf varðandi upplýsingar sem myndu greiða fyrir framkvæmd ákvörðunar 2014/512/SSUÖ og reglugerðar (ESB) nr. 833/2014, ættu að fela í sér skyldu til að tilkynna um aðila sem taka þátt í tilraunum til að sniðganga kerfi, eða um viðskipti sem teljast grunsamleg.
25) Sambandið hefur lagt á umtalsverðar þvingunaraðgerðir á sviði siglinga gagnvart Rússlandi, einkum að því er varðar flota tankskipa, sem er þekktur sem „skuggaflotinn“, sem stundar ólögmæta og áhættusama sjóflutninga, eins og sett er fram í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar nr. A.1192(33). Til að tryggja að skip sem rekstraraðilar Sambandsins selja gerist ekki aðilar að skuggaflotanum eða styðji við hann ætti að herða skilyrðin sem gilda um sölu tankskipa til rekstraraðila í þriðju löndum, með því að kveða á um sérstaka áreiðanleikakönnun og ófrávíkjanlegt ákvæði í sölusamningum um tankskip, en í samræmi við þá samninga er ekki heimilt að selja skipin áfram eða færa þau yfir á einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar í Rússlandi. Slík áreiðanleikakönnun ætti að vera hófleg og fela í sér skimun allra aðila að viðskiptunum. Þegar seljandi í Sambandinu hefur framkvæmt viðeigandi áreiðanleikakönnun, með tilliti til sölu tankskipa, og hefur gengist undir tilskildar samningsskuldbindingar ætti hann ekki að bera ábyrgð á síðara broti kaupandans á þessum skuldbindingum, að því tilskildu að seljandinn í Sambandinu hafi gengið fram í góðri trú og ekki búið yfir upplýsingum sem bentu til þess að ætlunin hafi verið að sniðganga aðgerðirnar. Bótaábyrgð vegna slíks brots ætti að hvíla á þeim aðila í þriðja landi sem virðir ekki samningsbundna bannið.
26) Með tilliti til þess að mörg skip, sem ráðið hefur fært á skrá sem skip sem tilheyra skuggaflotanum, hafa náð þeim aldri að þau ætti að endurvinna og til að hvetja til endurvinnslu þeirra frekar en áframhaldandi starfsemi og gera rekstraraðilum í Sambandinu kleift að taka þátt í endurvinnslutengdri starfsemi, ætti ný undanþága frá þvingunaraðgerðum Sambandsins að auðvelda endurvinnslu slíkra skipa.
27) Réttmætt þykir að setja nýjar takmarkanir á ísbrjóta sem starfræktir eru í Rússlandi vegna þess að þessi skip eru mikilvægur þáttur í því að styðja við útflutning olíu og gass frá nyrstu svæðum Rússlands. Auk þess ætti að setja takmarkanir á þjónustu við tankskip með fljótandi jarðgas sem sigla undir rússneskum fána, eru í rússneskri eigu eða starfrækt af Rússum.
28) Sem stendur geta lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem ekki eru frá Rússlandi, aðilar aðrir en þeir sem eru á skrá í ákvörðun 2014/512/SSUÖ og í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 eða aðilar aðrir en þeir sem koma fram fyrir þeirra hönd eða starfa eftir fyrirmælum þeirra, lagt fram kröfur gegn fyrirtækjum í Sambandinu sem fara að þvingunaraðgerðum, t.d. þegar rekstraraðilar í Sambandinu hætta afhendingu til einstaklinga og lögaðila í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, á vörum sem bannað er að flytja út til Rússlands. Því er rétt að efla ramma Sambandsins um þvingunaraðgerðir með því að víkka út gildissvið bannsins um fullnustu slíkra krafna í tengslum við samning eða viðskipti sem þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa haft áhrif á, með beinum eða óbeinum hætti, að hluta til eða að öllu leyti. Því ætti einnig að víkka út gildissvið bannsins um fullnustu slíkra krafna til að ná yfir kröfur sem einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi og samstarfslöndum þess sem eru á skrá í viðkomandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, leggja fram þegar þessir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir selja, afhenda, flytja til eða flytja út vörur, tækni eða þjónustu sem bannað er að selja, afhenda, flytja til eða flytja út samkvæmt ákvörðun 2014/512/SSUÖ og reglugerð (ESB) nr. 833/2014, hvort sem vörurnar, tæknin eða þjónustan er upprunnin í Sambandinu eða ekki.
29) Rússland hefur samþykkt löggjöf, einkum tilskipun forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 122 frá 15. febrúar 2024 og tilskipun ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins nr. 1767 frá 18. október 2021, eins og henni var breytt með ályktun ríkisstjórnarinnar nr. 380 frá 27. mars 2024, sem heimilar rússneskum stjórnvöldum að ákveða, að beiðni rússnesks lögaðila sem rússneska ríkið, rússneskur lögaðili eða rússneskur ríkisborgari á beint eða óbeint meira en 75% af hlutafé í, um notkun á uppfinningu, nytjamynstri eða iðnhönnun án samþykkis rétthafa, sem einungis þarf að greiða táknrænar bætur fyrir inn á sérstakan bankareikning í rúblum. Löggjöfin beinist einkum að rétthöfum sem eru í eigu eða undir stjórn einstaklinga og lögaðila sem eru staðsettir í eða eru skráðir samkvæmt þarlendum lögum, löndum sem leggja þvingunaraðgerðir á Rússland í árásarstríðinu gegn Úkraínu, þ.m.t. aðila og fyrirtækja í aðildarríkjum. Löggjöfin sviptir í raun rétthafa í Sambandinu lögmætri vernd hugverkaréttinda sinna og viðskiptaleyndarmála í Rússlandi og veitir þannig fyrirtækjum í rússneskri eigu efnahagslegan ávinning og eflir að lokum rússneskan iðnað. Enn fremur stuðlar löggjöfin beinlínis að því að efla viðnámsþol hagkerfis Rússlands og stríðsrekstur þess, einkum þegar uppfinningar, nytjamynstur eða hönnun á sviði iðnaðar sem um er að ræða eru notaðar á sviði varnarmála eða fyrir vörur með tvíþætt notagildi. Því er rétt að gera ráðinu kleift að leggja viðskiptabann á rekstrareiningar sem eru skráðar samkvæmt rússneskum lögum, sem nota hugverkaréttindi sem tilheyra dótturfélögum fyrirtækja í Sambandinu sem skráð eru í Rússlandi, án þeirra samþykkis. Til þess að auðvelda auðkenningu rekstrareininga sem nota hugverkaréttindi og viðskiptaleyndarmál rétthafa í Sambandinu án þeirra samþykkis á þann hátt er nauðsynlegt að viðkomandi rétthafar í Sambandinu upplýsi viðkomandi aðildarríki um slíka notkun.
30) Nauðsynlegt er að breyta kerfi fyrirframtilkynninga fyrir rússneska stjórnar- og ræðiserindreka, sem og fyrir skrifstofu- og tæknistarfsmenn eða þjónustulið sendi- og ræðisskrifstofa í Rússlandi og aðstandendur þeirra, þegar þeir ferðast til annars aðildarríkis annars en þar sem þeir eru viðurkenndir eða hafa búsetu.
31) Það er áfram forgangsatriði að koma í veg fyrir og berjast gegn því að þvingunaraðgerðir Sambandsins í og af hálfu þriðju landa séu sniðgengnar. Ráðist hefur verið í verulegt átak til að koma í veg fyrir endurútflutning til Rússlands á vörum og tækni sem eru upprunnar í Sambandinu og hafa tvíþætt notagildi, þ.m.t. almennar vörur með mikinn forgang (e. Common High Priority items) sem eru á skrá í VII. og XL. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, til Rússlands. Framkvæmdastjórnin vaktar viðskiptaflæði þessara vara og alþjóðlegur, sérstakur erindreki vegna framkvæmdar refsiaðgerða ESB (e. International Special Envoy for the Implementation of EU Sanctions) tekur þátt í samstarfi við þriðju lönd þar sem grunsamlegt viðskiptaflæði hefur greinst.
32) Réttmætt þykir að bæta tveimur númerum úr sameinuðu nafnaskránni (SN) og Kirgiska lýðveldinu við skrána yfir vörur og tækni og lönd, sem sett eru fram í XIV. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ. Á grundvelli fyrirliggjandi viðskiptagagna fyrir fyrstu tíu mánuði ársins 2025 var innflutningur á almennum vörum með mikinn forgang frá Sambandinu til Kirgiska lýðveldisins næstum 800% meiri en áður en árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu hófst. Á sama tímabili var útflutningur almennra vara með mikinn forgang frá Kirgiska lýðveldinu til Rússlands 1200% meiri en áður en árásarstríð Rússlands hófst. Skrárnar varða vélsmíðamiðstöðvar til að vinna málm (SN-númer 8457 10) og vélar til móttöku, umbreytingar og sendingar eða endurnýjunar á máli, myndum eða öðrum gögnum, þ.m.t. skiptistöðvar og beiningarbúnaður (SN-númer 8517 62). Þessi SN-númer eru skráð í viðeigandi viðaukum við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, þar eð hægt er að nota vörurnar til að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Rússlands eða að þróun í varnar- og öryggismálum Rússlands. Vélsmíðamiðstöðvar eru mikið notaðar við framleiðslu varnarvara þar sem þær geta framleitt hárnákvæma málmíhluti sem eru nauðsynlegir fyrir hergagnaframleiðslu. Vélar til mál- og gagnasendinga eru m.a. notaðar fyrir fjarskiptanet á vettvangi og fjarmælingar dróna. Mikill innflutningur slíkra hluta til Kirgiska lýðveldisins frá Sambandinu í samanburði við tölur frá því fyrir stríð sýnir fram á áframhaldandi og sérstaklega mikla hættu á sniðgöngu með síðari sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi á vörunum frá Kirgiska lýðveldinu til Rússlands.
33) Alþjóðlegur, sérstakur erindreki vegna framkvæmdar þvingunaraðgerða ESB hefur átt virk samskipti við Kirgiska lýðveldið og Sambandið hefur einnig átt í tæknilegum viðræðum við yfirvöld í Kirgistan. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og margvísleg samskipti hefur Kirgiska lýðveldið hvorki samþykkt né framfylgt ráðstöfunum sem nægja til að tryggja að almennar vörur með mikinn forgang sem eru upprunnar í Sambandinu séu ekki fluttar aftur út til Rússlands og eykur því umtalsvert hættuna á að lögsaga þess sé notuð til að sniðganga þvingunaraðgerðir Sambandsins. Því ber að skilgreina Kirgiska lýðveldið sem lögsögu þar sem kerfisbundin og viðvarandi hætta er á sniðgöngu og þar sem yfirvöldum tekst ekki að koma í veg fyrir sölu, afhendingu, flutning eða útflutning til Rússlands á vörum og tækni, sem eru á skrá í XIV. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ og fluttar eru út frá Sambandinu.
34) Rétt þykir að auka við skrána yfir samstarfslönd vegna innflutnings á jarðolíuafurðum.
35) Einnig þykir rétt að bæta tveimur höfnum og skipastigum í Rússlandi og einni höfn og skipastiga í þriðja landi öðru en Rússlandi, sem notuð eru til að sniðganga verðþak á olíu með því að skip stundi ólögmæta og áhættusama sjóflutninga, í viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ. Þetta varðar olíubirgðastöðina Karimun í Indónesíu.
36) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda tilteknum ráðstöfunum í framkvæmd.
37) Því ætti að breyta ákvörðun 2014/512/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun 2014/512/SSUÖ er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 1. gr. ae er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr.:
„d) er ekki lána- eða fjármálastofnun eða rekstrareining sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða greiðsluþjónustu og býður upp á þjónustu sem gerir kleift að stunda alþjóðleg viðskipti, þ.m.t. í gegnum greiðslur af reikningum í öðrum löndum en Rússlandi, með jöfnun, skuldajöfnun, afstemmingu eða uppgjöri sem raska tilganginum með bönnunum í ákvörðunum 2014/512/SSUÖ og 2014/145/SSUÖ og í reglugerðum (ESB) nr. 833/2014 og (ESB) nr. 269/2014, eins og skráð er í D-hluta XIX. viðauka við þessa ákvörðun.“ ,
b) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Bönnin sem um getur í 1. mgr. gilda einnig að því er varðar:
a) lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum rekstrareiningar sem um getur í a-, b-, c- eða d-lið 1. mgr.,
b) rekstrareiningu sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða greiðsluþjónustu og starfar sem spegilrekstrareining eða rekstrareining (e. mirror or successor entity) sem tekur við af rekstrareiningunni sem um getur í a- eða b-lið 1. mgr.,
c) rekstrareiningu sem býður upp á stoðþjónustu sem er jafngild þeirri sem veitt er af aðilum sem um getur í d-lið 1. mgr.“,
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„2b. Að því er varðar c-lið 2. mgr. er jafngild stoðþjónusta talin vera þjónusta sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
a) þjónustan er veitt af rekstrareiningu sem er hvorki lánastofnun, fjármálastofnun né rekstrareining sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða greiðsluþjónustu,
b) þjónustan beinist að rússneskum viðskiptavinum og hefur þann yfirlýsta tilgang að gera viðskipti yfir landamæri möguleg, þ.m.t. með greiðslum af reikningum í öðrum löndum en Rússlandi, með jöfnun, skuldajöfnun, afstemmingu eða uppgjöri,
c) þjónustan undanskilur engin viðskipti sem eru bönnuð samkvæmt þessari ákvörðun og ákvörðun 2014/145/SSUÖ eða samkvæmt reglugerðum (ESB) nr. 833/2014 og (ESB) nr. 269/2014.“ ,
2) Ákvæðum 1. gr. af er breytt sem hér segir:
a) Í stað c-liðar 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„c) til að flytja á sjó hráolíu eða jarðolíuafurðir sem eru á skrá í XIII. viðauka, eða jarðefni, sem er upprunnið í Rússlandi eða flutt þaðan út, með skipum sem stunda ólögmæta og áhættusama sjóflutninga eins og fram kemur í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar nr. A.1192(33),“.
b) Eftirfarandi lið er bætt við í 3. mgr.:
„h) um viðskipti við höfnina sem er skráð undir færslunúmerinu 7 í A-hluta XXI. viðauka vegna kaupa, innflutnings eða tilflutnings á vörum sem falla undir SN-númer 7207 12 10 og 7224 90, nema annað sé bannað samkvæmt þessari ákvörðun.“ ,
3) Eftirfarandi greinum er bætt við:
„1. gr. aj
1. Lagt er bann við því að eiga, með beinum eða óbeinum hætti, viðskipti við lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem um getur í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 7. gr. þessarar ákvörðunar, sem hefur notið ávinnings, þ.m.t. með starfsemi í sama markaðsgeira, af ákvörðun samkvæmt tilskipun forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 302 frá 25. apríl 2023 með síðari breytingum, samkvæmt alríkislögum nr. 470-FZ frá 4. ágúst 2023 með síðari breytingum, eða samkvæmt tengdri eða jafngildri rússneskri löggjöf, eins og skráð er í XXVII. viðauka.
2. Nema þau séu bönnuð með öðrum hætti gilda bönnin í 1. mgr. ekki um viðskipti sem eru:
a) nauðsynleg vegna kaupa, innflutnings eða flutnings á lyfjum, lækningavörum, landbúnaðarafurðum og matvælum, þ.m.t. hveiti og áburði, sem heimilt er að kaupa, flytja inn og flytja samkvæmt þessari ákvörðun og reglugerð (ESB) nr. 833/2014,
b) algerlega nauðsynleg til að tryggja aðgang að dóms-, stjórnsýslu- eða gerðardómsmeðferðum í aðildarríki og viðurkenningu á eða fullnustu dómsúrskurða eða úrskurða gerðardóms sem falla í aðildarríki, að því tilskildu að slík viðskipti séu í samræmi við markmið þessarar ákvörðunar og ákvörðunar 2014/145/SSUÖ og reglugerða (ESB) nr. 833/2014 og (ESB) nr. 269/2014,
c) með fyrirvara um b-lið þessarar málsgreinar, algjörlega nauðsynleg til að fá skaðabætur samkvæmt:
i. 11. gr. a eða 11. gr. b reglugerðar (ESB) nr. 833/2014, eða
ii. 11. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 269/2014.
1. gr. ak
1. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem leitar eða hefur samstarf um fullnustu dómsúrskurða utan Sambandsins, sem efna kröfur sem um getur í 1. mgr. 11. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 833/2014, eða við einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga eða stjórna þessum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, að undanskildum lögfræðingum og dómurum, eins og skráð er í A-hluta XXVIII. viðauka.
2. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem leitar eða hefur samstarf um fullnustu, utan Sambandsins, ákvarðana sem um getur í 1. mgr. 11. gr. b reglugerðar (ESB) nr. 833/2014, eða við einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga eða stjórna þessum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, að undanskildum lögfræðingum og dómurum, eins og skráð er í B-hluta XXVIII. viðauka.
3. Nema þau séu bönnuð með öðrum hætti gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um viðskipti sem eru:
a) nauðsynleg vegna kaupa, innflutnings eða flutnings á lyfjum, lækningavörum, landbúnaðarafurðum og matvælum, þ.m.t. hveiti og áburði, sem heimilt er að kaupa, flytja inn og flytja samkvæmt þessari ákvörðun eða reglugerð (ESB) nr. 833/2014,
b) algerlega nauðsynleg til að tryggja aðgang að dóms-, stjórnsýslu- eða gerðardómsmeðferðum í aðildarríki og viðurkenningu á eða fullnustu dómsúrskurða eða úrskurða gerðardóms sem falla í aðildarríki, að því tilskildu að slík viðskipti séu í samræmi við markmið þessarar ákvörðunar og ákvörðunar 2014/145/SSUÖ og reglugerða (ESB) nr. 833/2014 og (ESB) nr. 269/2014,
c) með fyrirvara um b-lið þessarar málsgreinar, algjörlega nauðsynleg til að fá skaðabætur samkvæmt:
i. 11. gr. a eða 11. gr. b reglugerðar (ESB) nr. 833/2014, eða
ii. 11. gr. a reglugerðar (ESB) nr. 269/2014.“ ,
4) Í stað 1. gr. ba kemur eftirfarandi:
„1. gr. ba
Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, sem fela í sér sýndareignir eða seðlabankarafeyri sem er á skrá í XXVI. viðauka, eða styðja á nokkurn hátt við þróun slíkra sýndareigna eða seðlabankarafeyris.“ ,
5) Eftirfarandi grein er bætt við:
„1. gr. bb
1. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða er vettvangur sem gerir skipti eða millifærslu sýndareigna mögulega og er með staðfestu í Rússlandi.
2. Bannið í 1. mgr. gildir ekki um viðskipti:
a) sem eru nauðsynleg vegna starfsemi sendi- og ræðisskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna eða samstarfslanda í Rússlandi, þ.m.t. sendinefnda, sendiráða og fastanefnda, eða alþjóðastofnana í Rússlandi sem njóta friðhelgi að þjóðarétti,
b) af hálfu ríkisborgara aðildarríkis sem eru búsettir í Rússlandi og voru það fyrir 24. febrúar 2022.
3. Þrátt fyrir 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, viðskipti sem eru algerlega nauðsynleg til þess að losa um fjárfestingar í Rússlandi eða slíta þar atvinnustarfsemi.
4. Bannið í 1. mgr. gildir frá 24. maí 2026.“ ,
6) Ákvæðum 1. gr. e er breytt sem hér segir:
a) Í stað f-liðar 1. mgr. a kemur eftirfarandi:
„f) nauðsynleg vegna viðtöku greiðslna sem lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem um getur í VIII. viðauka, ber að inna af hendi samkvæmt samningum og skuldbindingum sem gerð voru fyrir 24. apríl 2026,“.
b) Eftirfarandi liðum er bætt við í 1. mgr. a:
„i) algerlega nauðsynleg til að greiða hæfilega þóknun fyrir sérfræðistörf eða til endurgreiðslu kostnaðar vegna lögfræðiþjónustu,
j) nauðsynleg vegna starfsemi ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi.“ ,
7) Ákvæðum 1. gr. k er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr.:
„i) stýrð öryggisþjónusta.“ ,
b) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„4a. Ákvæði 4. mgr. skulu ekki gilda um veitingu þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, sem ekki fellur undir 1. eða 2. mgr., til ræðis- eða sendiskrifstofu Rússneska sambandsríkisins sem staðsett er í aðildarríki, ef slík þjónusta er algerlega nauðsynleg vegna starfsemi hennar.“ ,
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„8d. Ákvæði i-liðar 1. mgr. skulu koma til framkvæmda frá 25. maí 2026“.
8) Eftirfarandi grein er bætt við:
„1. gr. oa
1. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem, samkvæmt tilskipun forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 122 frá 15. febrúar 2024, tilskipun ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins nr. 1767 frá 18. október 2021, eins og henni var breytt með ályktun ríkisstjórnarinnar nr. 380 frá 27. mars 2024, eða í samræmi við tengda eða jafngilda rússneska löggjöf eða í samræmi við lögbann, úrskurð, réttarúrræði, dóm eða aðra ákvörðun rússnesks dómstóls, hefur notað eða notar hugverkaréttindi eða viðskiptaleyndarmál í eigu eða sem eru skráð á lögaðila í Rússlandi, sem er í eigu eða undir yfirráðum einstaklings frá aðildarríki eða lögaðila sem stofnaður er samkvæmt lögum aðildarríkis, án samþykkis rétthafans, eins og skráð er í XXIX. viðauka.
2. Með fyrirvara um 6. gr. b í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 skulu einstaklingar í aðildarríki eða lögaðilar sem eru stofnaðir samkvæmt lögum aðildarríkis, sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar, upplýsa lögbært yfirvald þess aðildarríkis um alla notkun samkvæmt rússneskri löggjöf sem um getur í þeirri málsgrein og án samþykkis rétthafa á hugverkaréttindum eða viðskiptaleyndarmálum sem eru í eigu eða eru skráð á lögaðila sem þeir eiga eða stjórna í Rússlandi.
3. Aðildarríki, sem rétthafar upplýsa í samræmi við 2. mgr., skulu síðan upplýsa framkvæmdastjórnina um notkun hugverkaréttinda eða viðskiptaleyndarmála án samþykkis.“ ,
9) Eftirfarandi liðir bætast við í 2. mgr. 1. gr. p:
„e) opinberar og einkareknar rannsóknarstofnanir, háskóla, æðri menntastofnanir, rannsóknar- og tæknistofnanir, frjáls félagasamtök, opinbera aðila og stofnanir, svo og fyrirtæki og aðra aðila í iðnaði og viðskiptum, þ.m.t. örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki, sem framkvæma rannsóknar- og nýsköpunaraðgerðir, eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/695 (5)“;
f) einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem um getur í e-lið.
10) Ákvæðum 2. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað 4. liðar kemur eftirfarandi:
„4. Bönnin í 3. mgr. skulu ekki hafa áhrif á:
a) framkvæmd samninga sem gerðir voru fyrir 1. ágúst 2014 eða fylgisamninga sem eru nauðsynlegir fyrir framkvæmd slíkra samninga, eða
b) útvegun varahluta og nauðsynlegrar þjónustu vegna viðhalds og öryggis fyrirliggjandi getu í Sambandinu eða
c) hernaðarlega réttarfræðilega greiningu á munum sem eru upprunnir í Rússlandi og hafa verið endurheimtir frá Úkraínu.“ ,
b) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„8. Bönnin í 1. og 2. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara og tækni sem um getur í 1. mgr. b í 4. gr. m eða veitingu tengdrar fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar, tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, til annarra nota en hernaðarlegra nota eða til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, vegna neyðarástands í heilbrigðismálum, til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.
9. Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara og tækni sem eru á skrá í 1. mgr. b í 4. gr. m. eða veitingu tengdrar fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar, tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, eftir að hafa gengið úr skugga um að slíkar vörur eða tækni eða veiting tengdrar fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar, tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu sé nauðsynleg:
a) vegna lækninga eða lyfja eða í mannúðarskyni, s.s. til að veita, eða greiða fyrir því að veitt sé, aðstoð, þ.m.t. sjúkragögn, matvæli eða tilflutningur starfsmanna hjálparstofnana og tengd aðstoð, eða vegna brottflutnings,
b) til einkanota og undir fullu eftirliti aðildarríkisins sem veitir heimildina og til að uppfylla viðhaldsskyldur sínar á svæðum sem falla undir langtímaleigusamning milli þess aðildarríkis og Rússneska sambandsríkisins,
c) til að koma á fót kjarnorkugetu til borgaralegra nota, til reksturs hennar, viðhalds, eldsneytisafhendingar og -endurmeðhöndlunar og öryggis hennar, og til að halda áfram hönnun, byggingu og gangsetningu sem þarf til að ljúka við kjarnorkustöðvar til borgaralegra nota, til afhendingar forefna til framleiðslu á geislavirkum samsætum til lækninga og svipaðrar læknisfræðilegrar notkunar, eða mikilvægrar tækni til vöktunar á geislun í umhverfinu, sem og til samstarfs um kjarnorku til borgaralegra nota, einkum á sviði rannsókna og þróunar, eða
d) vegna framleiðslu títaníumvara sem flugiðnaðurinn þarfnast þar sem ekki liggja fyrir aðrir kostir.
10. Ákvæði 8. og 9. mgr. hafa ekki áhrif á þær undanþágur og frávik sem mælt er fyrir um í 4. gr. m, einkum í 4. mgr. aa, 4. mgr. b og 5. mgr. hennar.“ ,
11) Ákvæðum 3. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað h-liðar 4. mgr. kemur eftirfarandi:
„h) að tryggja netöryggi og upplýsingaöryggi fyrir lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir í Rússlandi, sem eru í eigu eða lúta einvörðungu eða sameiginlegri stjórn lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis,“
b) Eftirfarandi kemur í stað iii. liðar í 7. mgr.:
„iii. sala, afhending, tilflutningur eða útflutningur á vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar, eða veiting tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, sé ætlað fyrir orkugeirann nema slík sala, afhending, tilflutningur eða útflutningur, eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð, sé heimil samkvæmt þeim undanþágum sem um getur í 3.–6. mgr. 4. gr. og 4. mgr. aa í 4. gr. m.“ ,
12) Í stað h-liðar 4. mgr. 3. gr. a kemur eftirfarandi:
„h) að tryggja netöryggi og upplýsingaöryggi fyrir lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir í Rússlandi, sem eru í eigu eða lúta einvörðungu eða sameiginlegri stjórn lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis,“.
13) Ákvæðum 4. gr. er breytt sem hér segir:
a) Ákvæði 1. mgr. falla brott.
b) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Lagt er bann við því að:
a) veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, sem tengist hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. a og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þennan hugbúnað, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
b) veita fjármögnun eða fjárhagsaðstoð, sem tengist hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. a vegna sölu, afhendingar, tilflutnings eða útflutnings þessa hugbúnaðar eða veita tengda tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
c) selja, veita leyfi fyrir eða framselja með öðrum hætti hugverkarétt eða viðskiptaleyndarmál, sem og að veita rétt til aðgangs að eða endurnotkunar á hvers kyns efni eða upplýsingum sem njóta verndar hugverkaréttar eða sem fela í sér viðskiptaleyndarmál, sem tengjast hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. a og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þennan hugbúnað, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi.“ ,
c) Eftirfarandi kemur í stað inngangsorðanna í 3. mgr.:
„3. Bönnin í 2. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á hugbúnaði, eða veitingu tækni- eða fjárhagsaðstoðar, sem er nauðsynleg fyrir:“ ,
d) Ákvæði 3. mgr. a falla brott.
e) Eftirfarandi kemur í stað inngangsorðanna í 6. mgr.:
„6. Þrátt fyrir 1. mgr. a og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning og veitingu tækni- eða fjárhagsaðstoðar, eftir að hafa ákvarðað að:“ ,
14) Eftirfarandi málsgrein er bætt við í 4. gr. g:
„1a. Bannið í 1. mgr. skal einnig gilda um efni á netinu frá lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem starfar sem spegileining lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, sem um getur í 1. mgr., þegar a.m.k. tvö eftirfarandi viðmiða eru uppfyllt:
a) í meginatriðum sama inntak eða gagnastreymi,
b) samfella í vörumerkjastjórnun, hönnun eða notendaviðmóti,
c) skörun á eignarhaldi, yfirráðum eða stjórnun,
d) notendum er vísað aftur til eða þeir fluttir frá lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem um getur í 1. mgr.,
e) samfella tæknilegra innviða, m.a. notkun sama kóðagrunns, léna eða hugbúnaðar.“ ,
15) Í stað b-liðar 5. mgr. a í 4. gr. ha kemur eftirfarandi:
„b) aðgangurinn sé nauðsynlegur vegna verkefna sem eru bráðnauðsynleg til að ljúka verkefnum varðandi endurnýjanlega orku í Sambandinu.“ ,
16) Ákvæðum 4. gr. k er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„3be. Að því er varðar vörur, sem falla undir SN-númer 2501, 2517, 2519, 2522, 2530, 2601, 2619, 2620, 2621, 2804 61, 2804 69, 2815, 2816, 2825 20, 2833, 2849, 2910, 2916, 2926, 4016, 4302, 7110 11, 7110 19, 7110 31, 7110 39, 7110 41, 7110 49, 7204, 7401, 7402, 7403 (að undanskildu 7403 19), 7404, 7406, 7503, 7504, 7505, 7602, 7603, 7610, 7612, 8102, 8104 og 8105 skulu bönnin í 1. og 2. mgr. ekki gilda fyrr en 25. júlí 2026 um efndir á samningum sem gerðir voru fyrir 24. apríl 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.
3bf. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 7403 19 skulu bönnin í 1. og 2. mgr. ekki gilda fyrr en 25. janúar 2027 um efndir á samningum sem gerðir voru fyrir 24. apríl 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“ ,
b) Ákvæði 3. mgr. cc og 3. mgr. cd falla brott.
c) Í stað 3. mgr. e kemur eftirfarandi:
„3e. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld heimilað kaup, innflutning eða tilflutning vara sem falla undir SN-númer 7007, 7019, 8424 10 00, 8479, 8481, 8483, 8487, 8504, 8516 29 91, 8517, 8525, 8531, 8536, 8537, 8538, 8539, 8542, 8543 og 8603, sem eru á skrá í XXI. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, eða veitingu tengdrar tækni- og fjárhagsaðstoðar, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að það sé nauðsynlegt vegna reksturs, viðhalds eða viðgerða á lestarvögnum á línu 3 í neðanjarðarlestarkerfi Búdapest sem voru afhentir 2018, til uppfyllingar á ábyrgð sem nær yfir endingartíma sem Metrowagonmash lagði fram fyrir 24. júní 2023.“ ,
d) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„3h. Frá og með 24. apríl 2026 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um innflutning, kaup eða flutning, eða tengda tækniaðstoð eða fjárhagsaðstoð sem telst nauðsynleg vegna innflutnings inn í Sambandið á 688 000 tonnum af vörum sem falla undir SN-númer 2814 frá 24. apríl á tilteknu ári og til 23. apríl árið þar á eftir.
3i. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld heimilað kaup, innflutning eða tilflutning, til 25. apríl 2031, á vörum sem falla undir SN-númer 7007, 7019, 8471, 8479, 8481, 8482, 8483, 8487, 8504, 8517, 8523, 8525, 8531, 8536, 8537, 8538, 8539, 8542, 8543, 8603, 9030, 9031, 9032 og 9405, sem eru á skrá í XXI. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, eða veitingu tengdrar tækni- og fjárhagsaðstoðar samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að það sé nauðsynlegt vegna öryggis reksturs, viðhalds eða viðgerða á lestarvögnum á línu 1, 2 og 4 í neðanjarðarlestarkerfi Sofíu, sem voru framleiddir og afhentir til 2017.“ ,
e) Í stað 5. mgr. kemur eftirfarandi:
„5. Framkvæmdastjórnin og aðildarríkin skulu stýra magni innflutningskvóta, sem sett er fram í 3. mgr. cg, 3. mgr. ch, 3. mgr. h og 4. mgr. þessarar greinar, í samræmi við stjórnunarkerfið fyrir tollkvóta sem kveðið er á um í 49.–54. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2447.“ ,
f) Í stað 6. mgr. kemur eftirfarandi:
„6. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 3. mgr. ab, 3. mgr. c, 3. mgr. ce, 3. mgr. e, 3. mgr. g eða 3. mgr. i innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“ ,
17) Ákvæðum 4. gr. m er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„1b. Með fyrirvara um 1. mgr. er lagt bann við sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi, með beinum eða óbeinum hætti, á vörum sem falla undir SN-númer 7304 11 00, 7304 19 10, 7304 19 30, 7304 19 90, 7304 22 00, 7304 23 00, 7304 29 10, 7304 29 30, 7304 29 90, 7305 11 00, 7305 12 00, 7305 19 00, 7305 20 00, 7306 11, 7306 19, 7306 21 00, 7306 29 00, 8207 13 00, 8207 19 10, 8413 50, 8413 60, 8413 82 00, 8413 92 00, 8430 49 00, 8431 39 00, 8431 43 00, 8431 49, 8705 20 00, 8905 20 00 eða 8905 90 10, sem eru á skrá í XXIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014 til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi, þ.m.t. í sérefnahagslögsögu þess og á landgrunni þess, eða til notkunar í Rússlandi, þ.m.t. í sérefnahagslögsögu þess og á landgrunni þess.“ ,
b) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Lagt er bann við því að:
a) veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, sem tengist vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. og 1. mgr. b, og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þessar vörur og tækni, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
b) veita fjármögnun eða fjárhagsaðstoð, sem tengist vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. og 1. mgr. b, vegna sölu, afhendingar, tilflutnings eða útflutnings þessara vara og tækni eða vegna veitingar tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
c) selja, veita leyfi fyrir eða framselja með öðrum hætti hugverkarétt eða viðskiptaleyndarmál, sem og að veita rétt til aðgangs að eða endurnotkunar á hvers kyns efni eða upplýsingum sem njóta verndar hugverkaréttar eða sem fela í sér viðskiptaleyndarmál, sem tengjast vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. og 1. mgr. b og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þessar vörur og tækni, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi.“ ,
c) Ákvæði 3. mgr. ah, 3. mgr. ai og 3. mgr. aj falla brott.
d) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3al. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númerin á skrá í XXIIIH. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014 skulu bönnin í 1. og 2. mgr. ekki gilda fyrr en 25. júlí 2026 um efndir á samningum sem gerðir voru fyrir 24. apríl 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“ ,
e) Í stað f-liðar 4. mgr. a kemur eftirfarandi:
„f) vörur sem falla undir SN-númer 3916 20 þegar slíkt er algerlega nauðsynlegt vegna sölu á PVC-gólfefnum eða gluggum.“ ,
f) Eftirfarandi lið er bætt við í 4. mgr. a:
„g) vörur sem falla undir SN-númer 3920431099, 3925 90 10, 3925908000 eða 8302 41 50 sem eru algerlega nauðsynlegar vegna sölu á gluggum.“ ,
g) Í stað 4. mgr. aa kemur eftirfarandi:
„4aa. Bönnin í 1. mgr., 1. mgr. a, 1. mgr. b og 2. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara og tækni sem um getur í 1. mgr. eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, til annarra nota en hernaðarlegra nota eða til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, vegna neyðarástands í heilbrigðismálum, til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.“ ,
h) Í stað 4. mgr. b kemur eftirfarandi:
„4b. Þrátt fyrir 1. mgr., 1. mgr. b og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara sem falla undir SN-kafla 72, 84, 85 og 90, sem eru á skrá í XXIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, eða veitingu tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu, fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar eftir að hafa ákvarðað að það sé algerlega nauðsynlegt vegna framleiðslu títaníumvara sem flugiðnaðurinn þarfnast þar sem ekki liggja fyrir aðrir kostir.“
i) Í stað 5. mgr. aa kemur eftirfarandi:
„5aa. Lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna geta heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara sem falla undir SN-númer 2835 22 00, 2920 90, 3917 10 og 3920 62 eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur séu seldar, afhentar, fluttar til eða fluttar út eingöngu í þágu matvælaframleiðslu til manneldis í Rússlandi.“
j) Í stað 5. mgr. b kemur eftirfarandi:
„5b. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 4. mgr. a, 4. mgr. b, 4. mgr. c, 4. mgr. d, 4. mgr. g, 5. mgr., 5. mgr. aa, 5. mgr. h, 5. mgr. i og 5. mgr. j innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“
k) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5j. Þrátt fyrir 1. mgr. a geta lögbær stjórnvöld heimilað umflutning um yfirráðasvæði Rússlands á vörum og tækni sem falla undir SN-númer 3403 19 80, sem eru á skrá í XXXVII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, sem eru flutt út frá Ungverjalandi eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða tækni séu á leið til Aserbaísjan.“
18) Ákvæðum 4. gr. o er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„2a. Frá og með 1. janúar 2027 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. um jarðgasþétti í undirlið SN 2709 00 10 frá framleiðslustöðvum fyrir fljótandi jarðgas.“
19) Ákvæðum 4. gr. p er breytt sem hér segir:
a) Ákvæðum 6. mgr. er breytt sem hér segir:
i. Ákvæði b- og c-liðar falla brott.
ii. Í lok málsgreinarinnar er eftirfarandi texta bætt við sem ónúmeraðri málsgrein sem er ekki hluti af e-lið:
„Ráðið skal einróma, að fenginni tillögu frá æðsta fulltrúa, án ótilhlýðilegrar tafar, á grundvelli fullrar samræmingar og að teknu tilliti til umræðna innan G7-hópsins og Verðþaksbandalagsins, taka ákvörðun um beitingu og undanþágur frá bönnunum í 1. og 4. mgr. að því er varðar viðskipti með hráolíu eða jarðolíuafurðir sem eru undir verðþakinu.“
b) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„6b. Bönnin í 1. og 4. mgr. gilda ekki:
a) um hráolíu eða jarðolíuafurðir sem eru á skrá í XIII. viðauka þegar þessar vörur eru upprunnar í þriðja landi og eru einungis settar um borð í skip í Rússlandi, fluttar þaðan eða um það, að því tilskildu að hvorki séu þær vörur rússneskar að uppruna né eigandi þeirra rússneskur,
b) um flutninga, eða um tækniaðstoð, miðlunarþjónustu, fjármögnun eða fjárhagsaðstoð sem tengist slíkum flutningum, á vörunum sem um getur í XII. viðauka til þeirra þriðju landa sem þar eru nefnd, á því tímabili sem tilgreint er í þeim viðauka.
6c. Frá og með 1. janúar 2027 gilda bönnin í 1. og 4. mgr. um jarðgasþétti í undirlið SN 2709 00 10 frá framleiðslustöðvum fyrir fljótandi jarðgas.“
20) Í stað inngangsorðanna í 1. mgr. 4. gr. pa kemur eftirfarandi:
„1. Þrátt fyrir 3. gr., 3. gr. a, 4. gr., 4. gr. h og 4. gr. m geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning, útflutning eða umflutning um Rússland á vörum og tækni sem um getur í þessum greinum, eða veitingu tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu eða fjármögnun eða fjárhagsaðstoð, vegna reksturs og viðhalds á leiðslum Caspian Pipeline Consortium (CPC) og tengdum grunnvirkjum sem eru nauðsynleg fyrir flutning á vörum sem falla undir SN-númer 2709 00 og eru upprunnar í Kasakstan og þar sem Rússland er aðeins fermingar-, brottfarar- eða umflutningsstaður, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að:“.
21) Ákvæðum 4. gr. u er breytt sem hér segir:
a) Í stað 8. mgr. kemur eftirfarandi:
„8. Að því er varðar 3. og 4. mgr. þessarar greinar skulu vörur, sem falla undir SN-númer 7102 31 00 og 7102 10 00 og fluttar eru inn í Sambandið, tafarlaust lagðar fram til sannprófunar, ásamt vottorði samkvæmt reglugerð ráðsins (EB) nr. 2368/2002 (6)“ þar sem upprunalegt námuland eða -lönd koma skýrt fram, hjá stjórnvaldi sem er tilgreint í viðauka XXXVIIIB við reglugerð (ESB) nr. 833/2014. Aðildarríkið þar sem þessar vörur eru fluttar inn á tollsvæði Sambandsins skal tryggja að þær séu lagðar fram hjá stjórnvaldinu sem tilgreint er í viðauka XXXVIIIB við reglugerð (ESB) nr. 833/2014. Heimilt er að veita leyfi fyrir tollmeðferð við umflutning í þessu skyni. Ef veitt er leyfi fyrir tollmeðferð við umflutning skal fresta sannprófuninni, sem kveðið er á um í þessari málsgrein, uns stjórnvaldið sem tilgreint er í viðauka XXXVIIIB við reglugerð (ESB) nr. 833/2014 hefur tekið við vörunum. Innflytjandinn skal vera ábyrgur fyrir réttum flutningi varanna og bera kostnað af honum. Framlagning til þess stjórnvalds er ekki nauðsynleg að því tilskildu að vörurnar hafi áður farið í gegnum sannprófunarferlið, sem kveðið er á um í þessari málsgrein, og að því tilskildu að það sé sannað með sönnunargögnum, byggðum á rekjanleika, þ.m.t. samsvarandi vottorði sem staðfestir að demantarnir hafi ekki verið unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi, eins og kveðið er á um í 10. mgr.
b) Í stað 10. mgr. kemur eftirfarandi:
„10. Að því er varðar 3. og 4. mgr. skulu innflytjendur leggja fram sönnun við innflutning um upprunaland demantanna eða varanna sem innihalda demanta sem eru notaðir sem ílag við vinnslu framleiðsluvörunnar í þriðja landi.
Frá og með 1. mars 2025 skulu sönnunargögn, byggð á rekjanleika, fyrir vörur á skrá í A-hluta viðauka XXXVIIIA við reglugerð (ESB) nr. 833/2014 sem falla undir SN-númer 7102 10 00 og 7102 31 00 innihalda samsvarandi vottorð sem staðfestir að hafi ekki verið unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 7102 39 00, eins og tilgreint er í A-hluta í viðauka XXXVIIIA við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, gildir skyldubundin notkun sönnunargagna, byggðum á rekjanleika, þ.m.t. áreiðanleikakönnunaryfirlýsing um að demantar hafi ekki verið unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi, frá og með 24. apríl 2026.“
22) Í stað 4. gr. v kemur eftirfarandi:
„4. gr. v
1. Lagt er bann við því að ríkisborgarar aðildarríkis, einstaklingar sem eru búsettir í aðildarríki og lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í Sambandinu selji eða yfirfæri með öðrum hætti eignarhald, með beinum eða óbeinum hætti, á tankskipum til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XIII. viðauka og sem falla undir ST-númer úr 8901 20, til einstaklings eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi eða til nota þar í landi, hvort sem þessar afurðir eru upprunnar í Sambandinu eða ekki.
2. Með fyrirvara um bannið í 1. mgr. skulu ríkisborgarar aðildarríkis, einstaklingar sem eru búsettir í aðildarríki og lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í Sambandinu sem selja eða yfirfæra með öðrum hætti eignarhald, með beinum eða óbeinum hætti, til aðila, rekstrareininga og stofnana í þriðja landi, á tankskipum til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XIII. viðauka og sem falla undir ST-númer úr 8901 20, hvort sem þessar afurðir eru upprunnar í Sambandinu eða ekki:
a) gera viðeigandi ráðstafanir, sem hæfa eðli þeirra og umfangi, til að greina og meta áhættu af endurflutningi til Rússlands eða til notkunar í Rússlandi og tryggja að þetta áhættumat sé skjalfest og uppfært,
b) koma á viðeigandi stefnum, eftirliti og verklagsreglum, sem hæfa eðli þeirra og umfangi, til að milda og stýra með skilvirkum hætti áhættu af endurflutningi til Rússlands eða af notkun í Rússlandi.
3. Einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem um getur í 2. mgr. sem kaupa skipin skulu veita allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að ljúka við skrefin sem um getur í a-lið 2. mgr.
4. Tilkynna skal lögbærum stjórnvöldum aðildarríkis þar sem eigandi tankskips er ríkisborgari, hefur búsetu eða staðfestu, tafarlaust um sölu, eða annað fyrirkomulag sem felur í sér yfirfærslu á eignarhaldi, til þriðja lands af hálfu ríkisborgara aðildarríkis, einstaklings sem hefur búsetu í aðildarríki eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar með staðfestu í Sambandinu á tankskipum til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XIII. viðauka og sem falla undir ST-númer úr 8901 20, að undanskilinni sölu eða annarri yfirfærslu á eignarhaldi sem bönnuð er skv. 1. mgr.
Tilkynningin til lögbæra stjórnvaldsins skal innihalda a.m.k. eftirfarandi upplýsingar: hver seljandi og kaupandi eru og, þar sem við á, stofnsamþykktir seljanda og kaupanda, þ.m.t. hlutafjáreign og stjórnendur, auðkennisnúmer Alþjóðasiglingamálastofnunar fyrir skipið og kallmerki skipsins.
5. Sala eða annað fyrirkomulag ríkisborgara aðildarríkis, einstaklings sem er búsettur í aðildarríki eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar með staðfestu í Sambandinu, um yfirfærslu eignarhalds á tankskipi til þriðja lands, til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XIII. viðauka og falla undir ST-númer úr 8901 20, skal innihalda skriflegt, samningsbundið bann um frekari endursölu eða tilfærslu skipsins til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi eða til notkunar í Rússlandi.
6. Salan eða fyrirkomulagið sem um getur í 5. mgr. skal einnig innihalda skrifleg samningsákvæði sem kveða á um að aðilinn í þriðja landi sem kaupir skipið:
i. skuldbindi sig til að endurspegla bannið í 5. mgr. við hvers kyns frekari endursölu eða tilfærslu sem það kann að ráðast í og
ii. skuldbindi kaupanda skipsins, við frekari endursölu eða yfirfærslu, til að setja skrifleg samningsákvæði sem eru jafngild þeim sem krafist er í 5. mgr. og í þessari málsgrein.
7. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja tilkynningu skv. 4. mgr. innan tveggja vikna frá því að hún er gerð.“
23) Eftirfarandi grein er bætt við:
„4. gr. wb
Frá og með 1. janúar 2027 er lagt bann við því að veita, með beinum eða óbeinum hætti, einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í Sambandinu sem er meira en 50% í eigu eða undir stjórn rússnesks ríkisborgara eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi, þjónustu birgðastöðva fyrir fljótandi jarðgas.
Lagt er bann við því að viðhalda samningum sem varða þjónustu fyrir fljótandi jarðgas samkvæmt þessari grein eftir 1. janúar 2027.“
24) Ákvæðum 4. gr. x er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3a. Þrátt fyrir 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað framkvæmd þeirra aðgerða sem um getur í a- til g-lið 1. mgr. að því er varðar skip sem er á skrá í XVI. viðauka eftir að hafa ákvarðað að:
a) skipið sé ætlað til endurvinnslu og
b) viðkomandi aðgerðir séu nauðsynlegar til að skipið komist til endurvinnslustöðvarinnar, vegna hvers kyns viðkomandi starfsemi endurvinnslustöðvarinnar í tengslum við skipið eða vegna greiðslna sem tengjast endurvinnslunni.“ ,
b) Í stað 5. mgr. kemur eftirfarandi:
„5. Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 3. mgr. a og 4. mgr. innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“
25) Eftirfarandi grein er bætt við:
„4. gr. xa
1. Lagt er bann við því að veita, með beinum eða óbeinum hætti, tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða fjármögnun eða fjárhagsaðstoð í tengslum við ísbrjóta sem falla undir SN-númer úr 8906 90 eða við tankskip fyrir fljótandi jarðgas (LNG) sem falla undir SN-númer úr 8901 20, þegar skipið er skráð undir fána Rússlands, er vottað af Rússnesku skipaskránni, er í eigu eða umsjón rússnesks einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, er starfrækt í Rússlandi eða er til notkunar í Rússlandi.
2. Ákvæði 1. mgr. gilda einungis frá 25. apríl 2026 um tankskip fyrir fljótandi jarðgas sem falla undir SN-númer úr 8901 20 og skráð eru undir fána Rússlands, sem hafa fengið vottun Rússnesku skipaskrárinnar eða eru í eigu eða undir stjórn rússnesks einstaklings, lögaðila, rekstraraðila eða stofnunar.
3. Ákvæði 1. mgr. gilda einungis frá 1. janúar 2027 um tankskip fyrir fljótandi jarðgas sem falla undir SN-númer úr 8901 20, sem starfrækt eru í Rússlandi eða til notkunar í Rússlandi, önnur en þau sem eru skráð undir fána Rússlands, vottuð af Rússnesku skipaskránni, eða eru í eigu eða undir stjórn rússnesks einstaklings, lögaðila, rekstraraðila eða stofnunar.
4. Ákvæði 1. mgr. gilda ekki ef um er að ræða skip sem þarfnast aðstoðar í leit að skipaafdrepi, neyðarviðkomu í höfn vegna siglingaöryggis eða björgun mannslífa á sjó eða til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.“
26) Ákvæðum 5. gr. d er breytt sem hér segir:
a) Í stað 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Rússneskir ríkisborgarar, sem eru starfsmenn sendi- eða ræðisskrifstofa Rússlands, skrifstofu- og tæknistarfsmenn eða þjónustulið sendi- eða ræðisskrifstofa í Rússlandi, eða aðstandendur þeirra, handhafar gilds dvalarleyfis, þ.m.t. diplómatískra skilríkja, eða gildrar vegabréfsáritunar, sem annað ríki hefur gefið út, sem ætla sér að ferðast til eða fara í gegnum yfirráðasvæði aðildarríkis, á grundvelli þess dvalarleyfis eða þeirrar vegabréfsáritunar, skulu tilkynna hlutaðeigandi aðildarríki eða aðildarríkjum um ferðina eigi síðar en á síðasta virka deginum í því aðildarríki eða þeim aðildarríkjum, hvort heldur ber fyrr að, fyrir fyrirhugaðan komudag inn á yfirráðasvæði þeirra og í öllum tilvikum eigi síðar en 24 klukkustundum fyrir komudag.“
b) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„1a. Rússneskir ríkisborgarar sem falla undir skylduna í 1. mgr. skulu hafa meðferðis afrit af tilkynningunni og framvísa því, sé þess óskað, til yfirvalda í því aðildarríki eða þeim aðildarríkjum sem ferðast er til.“
27) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr. 7. gr.:
„d) einstaklingi frá þriðja landi, sem er ekki ríkisborgari Rússlands, og lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í þriðja landi öðru en Rússlandi, að undanskildum samstarfslöndunum sem eru á skrá í VII. viðauka við þessa ákvörðun, sem selur, afhendir, flytur til eða flytur út vörur, tækni og þjónustu, sem bannað er að selja, afhenda, flytja til eða flytja út samkvæmt þessari ákvörðun eða samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 833/2014, hvort sem þær eða hún eru upprunnin í Sambandinu eða ekki, til aðila, rekstrareininga eða stofnana sem um getur í a-, b- eða c-lið þessarar málsgreinar eða til notkunar í Rússlandi.“ ,
28) Í stað 8. gr. c kemur eftirfarandi:
„8. gr. c
Ráðið skal, einróma á grundvelli 29. og 30. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, gera breytingar á I., II., III., IV., V., VI., VIII., IX., X., XI., XIV., XVI., XVII., XVIII., XIX., XX., XXI., XXII., XXIII., XXIV., XXV., XXVI., XXVII., XXVIII. og XXIX. viðauka.“
29) Viðaukunum við ákvörðun 2014/512/SSUÖ er breytt eins og fram kemur í viðaukanum við þessa ákvörðun.
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 23. apríl 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. RAOUNA
(1) Ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 13, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/512/oj).
(2) Ákvörðun ráðsins 2014/145/SSUÖ frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 16, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/145(1)/oj).
(3) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/833/oj).
(4) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars 2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 6, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/269/oj).
(5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/695 frá 28. apríl 2021 um að koma á fót Horizon Europe - rammaáætlun um rannsóknir og nýsköpun, um reglur hennar um þátttöku og miðlun og um niðurfellingu reglugerða (ESB) nr. 1290/2013 og (ESB) nr. 1291/2013 (Stjtíð. ESB L 170, 12.5.2021, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2021/695/oj).“
(6) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 2368/2002 frá 20. desember 2002 um framkvæmd á vottunarkerfi Kimberley-ferlisins vegna alþjóðlegra viðskipta með óslípaða demanta (Stjtíð. EB L 358, 31.12.2002, bls. 28, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2002/2368/oj).“
VIÐAUKI
Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/508/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/506
frá 23. apríl 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi
aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/508 frá 23. apríl 2026 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 31. júlí 2014 samþykkti ráðið reglugerð (ESB) nr. 833/2014 (2).
2) Með reglugerð (ESB) nr. 833/2014 koma til framkvæmda tilteknar ráðstafanir sem kveðið er á um í ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ (3).
3) Hinn 23. apríl 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 sem breytir ákvörðun 2014/512/SSUÖ.
4) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er 60 rekstrareiningum bætt við skrána yfir lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir, sem sett eru fram í IV. viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, þ.e. skrána yfir aðila, rekstrareiningar og stofnanir sem styðja við hergagnaiðnað í Rússlandi í árásarstríði þess gegn Úkraínu, sem eru látin sæta þrengri takmörkunum á útflutningi að því er varðar vörur og tækni með tvíþætt notagildi, sem og vörur og tækni sem kunna að stuðla að tæknilegri eflingu í varnar- og öryggismálum Rússlands. Meðal rekstrareininga sem ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 færir á þá skrá eru tilteknar rekstrareiningar í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, sem stuðla óbeint að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Rússlands og gera þannig sniðgöngu útflutningstakmarkana mögulega, þ.m.t. á tölvustýringarvélum, örrásartækni, íhlutum í ómönnuð loftför, örrásartæknivörum, búnaði um borð í skipum og íhlutum fyrir ökutæki og vélbúnað.
5) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er talið rétt að auka við skrána yfir hluti sem kunna að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Rússlands eða þróun þess á sviði varnar- og öryggismála með því að bæta við hlutum sem Rússland hefur notað í árásarstríði sínu gegn Úkraínu og hlutum sem stuðla að þróun eða framleiðslu hernaðarkerfa þess, þ.m.t. glervörur fyrir rannsóknarstofur, tiltekin háþróuð smurefni og íblöndunarefni þeirra og orkurík efni.
6) Auk þess er með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 talið rétt að leggja frekari innflutningshöft á vörur sem afla umtalsverðra tekna fyrir Rússland og gera því þannig kleift að halda áfram árásarstríðinu gegn Úkraínu, þ.m.t. höft á tiltekin hráefni, málma, tiltekin jarðefni, brotastál og aðra málma, íðefni, vörur úr súlfuðu gúmmíi og á sútað loðskinn.
7) Til að lágmarka hættu á sniðgöngu þvingunaraðgerða er með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 talið rétt að auka frekar við skrána yfir vörur og tækni sem falla undir bann við umflutningi um yfirráðasvæði Rússlands.
8) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er talið rétt að leggja frekari útflutningshöft á vörur sem gætu stuðlað að því að auka getu Rússlands á sviði iðnaðar, s.s. íðefni, gúmmí og vörur úr súlfuðu gúmmíi, vörur úr stáli, verkfæri til málmframleiðslu og iðnaðardráttarvélar.
9) Ákvörðun (ESB) 2026/508 víkkar út gildandi bann við útsendingum þannig að það takmarki einnig útsendingar og aðgengi að útsendingum í Sambandinu á efni frá rekstrareiningum sem endurspegla efni frá öðrum rekstrareiningum sem falla þegar undir bannið, til að bregðast við tilraunum til að sniðganga þvingunaraðgerðina. Í samræmi við grundvallarréttindi og frelsi sem viðurkennd eru í sáttmálanum um grundvallarréttindi, einkum réttinn til tjáningar- og upplýsingafrelsis, frelsis til atvinnurekstrar og eignarréttinn, eins og hann er viðurkenndur í 11., 16. og 17. gr. sáttmálans, kemur þessi ráðstöfun ekki í veg fyrir að þessir fjölmiðlar, sem sæta banni við útsendingu, og starfsfólk þeirra stundi aðra starfsemi í Sambandinu en útvarpsrekstur, eins og rannsóknir og viðtöl. Einkum breytir þessi ráðstöfun ekki þeirri skyldu að virða þau réttindi, frelsi og meginreglur sem um getur í 6. gr. sáttmálans um Evrópusambandið, þ.m.t. í sáttmálanum um grundvallarréttindi og stjórnarskrám aðildarríkjanna, á viðkomandi gildissviðum þeirra.
10) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er lagt bann við því að veita rússneskum rekstrareiningum eða rekstrareiningum sem eru í eigu eða undir stjórn rússneskra ríkisborgara eða rekstraraðila, þjónustu birgðastöðva fyrir fljótandi jarðgas. Viðkomandi samningar um hlutaðeigandi þjónustu birgðastöðva fyrir fljótandi jarðgas skulu sjálfkrafa falla úr gildi 1. janúar 2027.
11) Ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 breytir verðþakinu á rússneskri hráolíu og jarðolíuafurðum. Í ákvörðuninni er einnig kveðið á um að upplýsa skuli ráðið eins fljótt og auðið er um hvers konar samkomulag Verðþaksbandalagsins og umræður G7-hópsins og það sé ráðsins að taka ákvörðun, á grundvelli sameiginlegrar tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórninni, um beitingu á verðþaki fyrir olíu, með þeim áhrifum að allsherjarbann á þjónustu á sviði sjóflutninga sem varða rússneska hráolíu og jarðolíuafurðir myndi taka gildi.
12) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er skyldunni til að afhenda sönnunargögn, byggðum á rekjanleika, breytt með því að krefjast þess að innflytjendur á slípuðum demöntum, þ.m.t. demantar sem slípaðir eru í þriðju löndum, leggi fram áreiðanleikakönnunaryfirlýsingu sem staðfestir að demantarnir hafi ekki verið unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi.
13) Ríkisstjórn Rússneska sambandsríkisins hefur sett ólögmæta, svokallaða „tímabundna stjórnun“ á fasteignir á yfirráðasvæði Rússneska sambandsríkisins sem tilheyra erlendum aðilum sem tengjast „óvinveittum, erlendum ríkjum“, þ.e. ríkjum sem hafa innleitt þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi. Þessi svokallaða „tímabundna stjórnun“ jafngildir eignarnámi. Með þessum aðferðum fjarlægir ríkisstjórn Rússneska sambandsríkisins aðila frá Sambandinu, sem veita rússneskum fyrirtækjum samkeppni, af rússneska markaðnum og veitir þeim síðarnefndu efnahagslegt forskot á þessa samkeppnisaðila frá Sambandinu og aðra erlenda samkeppnisaðila og styrkir þannig viðnám rússneska hagkerfisins gagnvart þvingunaraðgerðum sem hafa áhrif á það. Í sumum tilvikum er hin svokallaða „tímabundna stjórnun“ jafnvel veitt rússneskum samkeppnisaðilum rekstrareininga Sambandsins, sem veitir þeim beint efnahagslegt forskot á þessa samkeppnisaðila innan Sambandsins. Til að styrkja ramma þvingunaraðgerða af hálfu Sambandsins gerir ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 ráðinu kleift að taka saman skrá yfir rússnesk fyrirtæki, sem sæta viðskiptabanni og sem njóta góðs af slíkri ólögmætri, svokallaðri „tímabundinni stjórnun“, einkum með því að taka „tímabundið“ yfir stjórn eigna og rekstrareininga í Rússlandi, sem eru í eigu eða undir stjórn rekstrareininga með staðfestu í Sambandinu, eða með því að starfa á sama markaðssviði og þær sem eru í eigu eða undir stjórn rekstrareininga í Sambandinu. Ákvörðun (ESB) 2026/508 kveður einnig á um undanþágur.
14) Sambandið hefur gert ákveðnar ráðstafanir til að auðkenna rekstrareiningar sem greiða fyrir áframhaldandi fjárhagslegri líflínu fyrir árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, hvort sem það er með því að tengjast sendingakerfi seðlabanka Rússlands fyrir fjármálaskilaboð („SPFS“) eða með því að gera kleift að sniðganga þvingunaraðgerðir Sambandsins og til að banna hvers konar viðskipti milli þessara rekstrareininga og rekstraraðila Sambandsins. Af þeim rekstrareiningum sem tilgreindar eru hafa fimm gert ráðstafanir til að loka smugum og binda enda á viðkomandi ólöglega starfsemi. Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 eru því skráningar þessara fimm rekstrareininga fjarlægðar úr viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ. Auk þess eru vísbendingar um að aðrar slíkar rekstrareiningar í þriðju löndum haldi áfram að gera Rússlandi kleift að stunda ólöglega starfsemi. Í ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 eru því tilgreindar fjórar fjármálastofnanir með það í huga að banna viðskipti milli þeirra og aðila í Sambandinu með því að færa þessar fjórar fjármálastofnanir á skrá í viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ. Þessar breytingar á skráningunum ættu einnig að endurspeglast í viðkomandi viðaukum við reglugerð (ESB) nr. 833/2014.
15) Seðlabanki Rússneska sambandsríkisins er að hleypa af stokkunum stafrænni rúblu, sem búist er við að verði algengur greiðslumáti á næstu árum meðal rússneskra fyrirtækja, einstaklinga og lána- og fjármálastofnana, og einnig milli þeirra og rekstraraðila í þriðju löndum. Þótt stafræna rúbluverkefnið sé enn á undirbúningsstigi er því m.a. ætlað að vera greiðslukerfi sem hlífir rússneskum aðilum við áhrifum þvingunaraðgerða sem kveðið er á um í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 og í reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 (4). Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er því lagt bann við þátttöku, með beinum eða óbeinum hætti, í viðskiptum sem varða seðlabankarafeyri, eins og stafrænu rúbluna eða veita stuðning við þróun slíkra verkefna. Í ákvörðuninni er einnig kveðið á um takmarkaðan tíma til að gera það mögulegt að slíta gildandi samningum á skipulegan hátt.
16) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er aukið við skrána yfir sýndareignir sem bannað er að nota í viðskiptum, þar sem viðkomandi sýndareignir skapa hættu á að bönnin, sem m.a. er mælt fyrir um í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 og reglugerð (ESB) nr. 269/2014, verði sniðgengin. Í ákvörðuninni er einnig kveðið á um takmarkaðan tíma til að gera kleift að slíta gildandi samningum með skipulegum hætti.
17) Í febrúar 2025 var rússneska rafmyntakauphöllin Garantex færð á skrá í reglugerð (ESB) nr. 269/2014 fyrir að veita öðrum aðilum á skrá aðgang að alþjóðlega fjármálakerfinu. Sönnunargögn úr borgaralegum rannsóknum sýna að þessi starfsemi Garantex hefur verið flutt til annarra rekstrareininga með staðfestu í Rússlandi, til að komast hjá þvingunaraðgerðum Sambandsins. Allar frekari skráningar á einstökum þjónustuveitendum sýndareigna eða á dreifstýrðum vettvöngum, sem heimila skipti eða millifærslu á sýndareignum, eru því líklegar til að leiða til þess að nýjar skráningar verði stofnaðar til að sniðganga þessar skráningar. Til að tryggja að þvingunaraðgerðir Sambandsins hafi tilætluð áhrif er í ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 lagt bann við samstarfi við þjónustuveitanda sýndareigna sem hefur staðfestu í Rússlandi og að nota vettvang sem er með staðfestu í Rússlandi, sem auðveldar millifærslu og viðskipti með sýndareignir.
18) Þar eð þvingunaraðgerðir, sem Sambandið og samstarfslönd grípa til, takmarka verulega getu Rússlands til aðgangs að alþjóðamörkuðum og til að kaupa herbúnað, sem og möguleika aðila sem eru á skrá til að annast fjármálaviðskipti, hafa nýjar aðferðir til sniðgöngu komið fram. Slíkar aðferðir fela í sér að rekstraraðilar utan fjármálageirans bjóði aðgang að greiðslum frá þriðju löndum fyrir milligöngu lögaðila undir þeirra stjórn eða samsekra milliliða, ásamt starfsemi rekstraraðila sem bjóða þjónustu til að greiða fyrir aðgangi að kerfum sem gera það mögulegt að stunda alþjóðleg viðskipti án greiðslna yfir landamæri, í stað þess að nota aðra valkosti á borð við skuldajöfnun, jöfnun, afstemmingu eða uppgjör. Banna ætti hvers konar viðskipti við rekstraraðila sem eru skilgreindir sem þjónustuaðilar til að gera alþjóðleg viðskipti, sem sniðganga takmarkandi ráðstafanir, möguleg og til að tryggja að slíkir viðskiptahættir, sem byggjast á sniðgöngu, séu ekki skilvirkir. Rétt þykir að skýra að eðlis síns vegna geta undanþágur sem veittar eru með reglugerð (ESB) nr. 833/2014 eða með reglugerð (ESB) nr. 269/2014, ekki talist vera sniðganga á þeim bönnum sem er að finna í þessum réttargerðum. Viðskipti sem fara fram í samræmi við þessar undantekningar og undanþágur teljast því ekki vera alþjóðaviðskipti sem sniðganga þvingunaraðgerðir.
19) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er bætt við 20 lána- eða fjármálastofnunum á skrána yfir lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem falla undir viðskiptabann. Viðskiptabannið nær til tiltekinna rússneskra lána- eða fjármálastofnana eða annarra rekstrareininga, þ.m.t. þeirra sem eru áskrifendur að sendingarþjónustu á sviði fjármála, eða rússneskra dótturfyrirtækja lána- eða fjármálastofnana í þriðju löndum, sem skipta máli fyrir rússneska fjármála- og bankakerfið og eru annaðhvort stórir eða mikilvægir svæðisbundnir bankar, sem greiða af þeim sökum fyrir svæðisbundnum og alríkistengdum fjármálum og viðskiptum, eða bankar sem greiða fyrir framkvæmd greiðslna yfir landamæri og efla þannig rússneska hagkerfið og atvinnulíf þess, bankar sem grafa undan landamærahelgi Úkraínu með því að starfa á hernumdum svæðum í Úkraínu eða með því að veita fjármálaþjónustu á hernumdum svæðum í Úkraínu, eða bankar sem veita herstarfsliði í rússneska heraflanum fjármálaþjónustu, eða bankar sem falla þegar undir þvingunaraðgerðir Sambandsins eða samstarfslanda þess. Auk þess breytir ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 undanþágu sem er nauðsynleg til þess að taka við gjaldföllnum greiðslum og til þess að lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem um getur í viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ, geti uppfyllt fyrri skuldbindingar. Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er einnig bætt við undanþágu vegna greiðslu hæfilegrar þóknunar fyrir sérfræðistörf eða endurgreiðslu kostnaðar vegna lögfræðiþjónustu, ásamt undanþágu varðandi þarfir ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi.
20) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 eru settar viðbótartakmarkanir á veitingu þjónustu til ríkisstjórnar Rússlands, lögaðila, rekstrareininga eða stofnana með staðfestu í Rússlandi sem stuðlar að því að efla tæknilega getu Rússlands, einkum það að veita stýrða öryggisþjónustu.
21) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er innleidd undanþága frá kröfunni um fyrirframheimild fyrir þjónustu sem veitt er ríkisstjórn Rússlands, sem fellur ekki þegar undir þvingunaraðgerðirnar sem settar eru fram í reglugerð (ESB) nr. 833/2014, þegar þessi þjónusta er bráðnauðsynleg fyrir starfsemi ræðis- eða sendiskrifstofu Rússlands sem staðsett er í aðildarríki.
22) Ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 víkkar út gildandi bann við því að þiggja fjármögnun, framlög eða annan efnahagslegan ávinning eða stuðning frá Rússlandi, hvort sem er með beinum eða óbeinum hætti, með því að víkka það út þannig að það nái til opinberra og einkarekinna rannsóknarstofnana, háskóla, æðri menntastofnana, rannsóknar- og tæknistofnana, frjálsra félagasamtaka, opinberra aðila og stofnana, til fyrirtækja og annarra rekstrareininga í iðnaðar- og verslunargeirunum, þ.m.t. örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki sem framkvæma rannsóknar- og nýsköpunaraðgerðir, og til einstaklinga sem tengjast slíkum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum. Að þiggja opinbert fjármagn frá Rússlandi getur leitt til beins eða óbeins stuðnings við rússneska einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir vegna tengdrar yfirfærslu þekkingar, aðgangs að innviðum, þjálfunar og annarrar starfsemi sem fram fer í tengslum við rannsóknir og nýsköpun. Enn fremur gætu núverandi áætlanir gert ráð fyrir að rannsóknir verði áfram í Rússlandi. Þessa starfsemi er hægt að nota til að hafa áhrif á herferðir og til að ýta undir villandi upplýsingar sem miða að því að grafa undan landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu og til að ýta undir áróður Rússa, sem beinist að því að réttlæta og styðja árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu. Því er rétt að leggja bann við fjármögnun frá Rússlandi og fulltrúum þess til aðila í Sambandinu sem framkvæma rannsóknar- og nýsköpunaraðgerðir.
23) Í ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er skýrt að kvaðir um skýrslugjöf varðandi upplýsingar sem myndu greiða fyrir framkvæmd ákvörðunar 2014/512/SSUÖ og reglugerðar (ESB) nr. 833/2014, ættu að fela í sér skyldu til að tilkynna um aðila sem taka þátt í tilraunum til að sniðganga kerfi, eða um viðskipti sem teljast grunsamleg.
24) Ákvæði gr. 248.1 og gr. 248.2 í reglum Rússneska sambandsríkisins um gerðardómsmeðferð gera aðilum kleift að leggja fram kröfu fyrir tilteknum rússneskum dómstólum, sem fara síðan með lögsögu í deilumálum gegn félögum í Sambandinu varðandi samninga sem þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa áhrif á, þótt þeim valdheimildum ætti að úthluta til dómstóla eða gerðardóma sem ekki eru rússneskir. Samkvæmt þessum ákvæðum geta rússneskir dómstólar lagt verulegar fjársektir á fyrirtæki í Sambandinu sem fallast ekki á þá fullyrðingu þeirra að þeir hafi lögsögu. Því er rétt að gera dómstólum í Sambandinu kleift að gefa út fyrirmæli um að hefja ekki eða hætta málarekstri og beita viðurlögum, að beiðni aðila í Sambandinu. Til að tryggja varnaðaráhrif skulu viðurlög vera viðeigandi. Breyta ætti ákvæðum um lögsögu vegna nauðsynjar í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 til samræmis við það.
25) Einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, eða aðilar, rekstrareiningar eða stofnanir í þeirra eigu eða undir þeirra stjórn, gætu leitað fullnustu ákvarðana rússneskra dómstóla og stjórnvalda í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi. Slíkar tilraunir geta byggt á kröfum í tengslum við samninga sem þvingunaraðgerðir eða ólöglegt eignarnám, eða svokölluð „tímabundin stjórnun“ ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins, hafa áhrif á. Því er rétt að rýmka möguleika einstaklinga eða lögaðila í Sambandinu á að fara fram á skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum og stofnunum sem leita fullnustu þessara ákvarðana frá Rússlandi í þriðju löndum öðrum en Rússlandi, eða sem hafa samstarf um fullnustu þeirra, sem og frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í þeirra eigu eða undir þeirra stjórn. Einnig þykir rétt að gera ráðinu kleift að leggja viðskiptabann á einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem leita eða hafa samstarf um fullnustu ákvarðana frá Rússlandi, sem byggjast á kröfum í tengslum við samninga sem þvingunaraðgerðir eða ólöglegt eignarnám, eða svokölluð „tímabundin stjórnun“ ríkisstjórnar Rússlands hafa áhrif á, sem og viðskiptabann á einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga eða stjórna viðkomandi lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum.
26) Sambandið hefur lagt á umtalsverðar þvingunaraðgerðir á sviði siglinga gagnvart Rússlandi, einkum að því er varðar flota tankskipa, sem er þekktur sem „skuggaflotinn“, sem stundar ólögmæta og áhættusama sjóflutninga, eins og sett er fram í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar nr. A.1192(33). Til að tryggja að skip sem rekstraraðilar Sambandsins selja gerist ekki aðilar að skuggaflotanum eða styðji við hann ætti að herða skilyrðin sem gilda um sölu tankskipa til rekstraraðila í þriðju löndum, með því að kveða á um sérstaka áreiðanleikakönnun og ófrávíkjanlegt ákvæði í sölusamningum um tankskip, en í samræmi við þá samninga er ekki heimilt að selja skipin áfram eða færa þau yfir á einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar í Rússlandi. Slík áreiðanleikakönnun ætti að vera hófleg og fela í sér skimun allra aðila að viðskiptunum. Þegar seljandi í Sambandinu hefur framkvæmt viðeigandi áreiðanleikakönnun, með tilliti til sölu tankskipa, og hefur gengist undir tilskildar samningsskuldbindingar ætti hann ekki að bera ábyrgð á síðara broti kaupandans á þessum skuldbindingum, að því tilskildu að seljandinn í Sambandinu hafi gengið fram í góðri trú og ekki búið yfir upplýsingum sem bentu til þess að ætlunin hafi verið að sniðganga aðgerðirnar. Bótaábyrgð vegna slíks brots ætti að hvíla á þeim aðila í þriðja landi sem virðir ekki samningsbundna bannið.
27) Með tilliti til þess að mörg skip, sem ráðið hefur fært á skrá sem skip sem tilheyra skuggaflotanum, hafa náð þeim aldri að þau ætti að endurvinna og til að hvetja til endurvinnslu þeirra frekar en áframhaldandi starfsemi og gera rekstraraðilum í Sambandinu kleift að taka þátt í endurvinnslutengdri starfsemi, ætti ný undanþága frá þvingunaraðgerðum Sambandsins að auðvelda endurvinnslu slíkra skipa.
28) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 eru settar nýjar takmarkanir á ísbrjóta sem starfræktir eru í Rússlandi vegna þess að þessi skip eru mikilvægur þáttur í því að styðja við útflutning olíu og gass frá nyrstu svæðum Rússlands. Auk þess ætti að takmarka þjónustu við tankskip með fljótandi jarðgas sem sigla undir rússneskum fána, eru í rússneskri eigu eða starfrækt af Rússum.
29) Sem stendur geta lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir, sem ekki eru frá Rússlandi, aðilar aðrir en þeir sem eru á skrá í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 eða aðilar aðrir en þeir sem koma fram fyrir þeirra hönd eða starfa eftir fyrirmælum þeirra, lagt fram kröfur gegn fyrirtækjum í Sambandinu sem fara að þvingunaraðgerðum, t.d. þegar rekstraraðilar í Sambandinu hætta afhendingu til einstaklinga og lögaðila í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, á vörum sem bannað er að flytja út til Rússlands. Þannig styrkir ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 ramma Sambandsins um þvingunaraðgerðir með því að víkka út gildissvið bannsins um fullnustu slíkra krafna í tengslum við samning eða viðskipti sem þvingunaraðgerðir Sambandsins hafa haft áhrif á, með beinum eða óbeinum hætti, að hluta til eða að öllu leyti. Því ætti einnig að víkka út gildissvið bannsins í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um fullnustu slíkra krafna til að ná yfir kröfur sem einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi og samstarfslöndum þess sem eru á skrá í viðkomandi viðauka, leggja fram þegar þessir einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir selja, afhenda, flytja til eða flytja út vörur, tækni eða þjónustu sem bannað er að selja, afhenda, flytja til eða flytja út samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 833/2014, hvort sem vörurnar, tæknin eða þjónustan er upprunnin í Sambandinu eða ekki.
30) Orðalagið „annars rússnesks aðila, rekstrareiningar eða stofnunar“ í b-lið 1. mgr. 11. gr. reglugerðar (ESB) nr. 833/2014 tekur til Rússneska sambandsríkisins. Ef Rússneska sambandsríkið leggur fram kröfu fyrir rússneskum dómstólum eða dómstólum annars þriðja lands í tengslum við samninga eða viðskipti sem hafa, með beinum eða óbeinum hætti, að hluta til eða að öllu leyti, orðið fyrir áhrifum af aðgerðum sem gripið er til samkvæmt reglugerðum (ESB) nr. 833/2014 og (ESB) nr. 269/2014, kemur Rússneska sambandsríkið fram á viðskiptagrundvelli eða afsalar sér friðhelgi gagnvart lögsögu og fullnustu, þ.m.t. vegna hugsanlegra gagnkrafna, eftir því sem við á. Á grundvelli 11. gr. a í reglugerð (ESB) nr. 833/2014 ættu aðilar í Sambandinu í slíkum tilvikum að geta fengið skaðabætur greiddar í málsmeðferð fyrir dómstólum aðildarríkjanna, að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki á annan hátt greiðan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu.
31) Rússland hefur samþykkt löggjöf, einkum tilskipun forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 122 frá 15. febrúar 2024 og tilskipun ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins nr. 1767 frá 18. október 2021, eins og henni var breytt með ályktun ríkisstjórnarinnar nr. 380 frá 27. mars 2024, sem heimilar rússneskum stjórnvöldum að ákveða, að beiðni rússnesks lögaðila sem rússneska ríkið, rússneskur lögaðili eða rússneskur ríkisborgari á beint eða óbeint meira en 75% af hlutafé í, um notkun á uppfinningu, nytjamynstri eða iðnhönnun án samþykkis rétthafa, sem einungis þarf að greiða táknrænar bætur fyrir inn á sérstakan bankareikning í rúblum. Löggjöfin beinist einkum að rétthöfum, sem eru í eigu eða undir stjórn einstaklinga og lögaðila sem eru staðsettir í eða eru skráðir samkvæmt þarlendum lögum, löndum sem leggja þvingunaraðgerðir á Rússland í árásarstríðinu gegn Úkraínu, þ.m.t. aðila og fyrirtækja í aðildarríkjunum. Löggjöfin sviptir í raun rétthafa í Sambandinu lögmætri vernd hugverkaréttinda sinna og viðskiptaleyndarmála í Rússlandi og veitir þar með fyrirtækjum í eigu Rússlands efnahagslegan ávinning og eflir að lokum rússneskan iðnað. Enn fremur stuðlar löggjöfin beinlínis að því að efla viðnámsþol hagkerfis Rússlands og stríðsrekstur þess, einkum þegar uppfinningar, nytjamynstur eða hönnun á sviði iðnaðar sem um er að ræða eru notaðar á sviði varnarmála eða fyrir vörur með tvíþætt notagildi. Því er rétt að leggja viðskiptabann á rekstrareiningar sem eru skráðar samkvæmt rússneskum lögum og nota hugverkaréttindi sem tilheyra dótturfélögum fyrirtækja í Sambandinu sem skráð eru í Rússlandi, án þeirra samþykkis. Til þess að auðvelda auðkenningu rekstrareininga sem nota hugverkarétt og viðskiptaleyndarmál rétthafa í Sambandinu án þeirra samþykkis á þann hátt er nauðsynlegt að viðkomandi rétthafar Sambandsins upplýsi viðkomandi aðildarríki um slíka notkun.
32) Ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 breytir kerfi fyrirframtilkynninga fyrir rússneska stjórnar- og ræðiserindreka, sem og fyrir skrifstofu- og tæknistarfsmenn eða þjónustulið sendi- og ræðisskrifstofa í Rússlandi og aðstandendur þeirra, þegar þeir ferðast til annars aðildarríkis en þar sem þeir eru viðurkenndir eða hafa búsetu.
33) Það er áfram forgangsatriði að koma í veg fyrir og berjast gegn því að þvingunaraðgerðir Sambandsins í og af hálfu þriðju landa séu sniðgengnar. Ráðist hefur verið í verulegt átak til að koma í veg fyrir endurútflutning til Rússlands á vörum og tækni sem eru upprunnar í Sambandinu og hafa tvíþætt notagildi, þ.m.t. þær almennu vörur með mikinn forgang (e. Common High Priority items) sem eru á skrá í viðeigandi viðaukum við reglugerð (ESB) nr. 833/2014. Framkvæmdastjórnin vaktar viðskiptaflæði þessara vara og alþjóðlegur, sérstakur erindreki vegna framkvæmdar refsiaðgerða ESB (e. International Special Envoy for the Implementation of EU Sanctions) tekur þátt í samstarfi við þriðju lönd þar sem grunsamlegt viðskiptaflæði hefur greinst.
34) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er tveimur númerum úr sameinuðu nafnaskránni (SN) og Kirgiska lýðveldinu bætt við skrána yfir vörur og tækni og lönd, sem sett eru fram í viðeigandi viðauka við ákvörðun 2014/512/SSUÖ. Á grundvelli fyrirliggjandi viðskiptagagna fyrir fyrstu tíu mánuði ársins 2025 var innflutningur á almennum vörum með mikinn forgang (e. CHP items) frá Sambandinu til Kirgiska lýðveldisins næstum 800% meiri en áður en árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu hófst. Á sama tímabili var útflutningur almennra vara með mikinn forgang frá Kirgiska lýðveldinu til Rússlands 1200% meiri en áður en árásarstríð Rússlands hófst. Skrárnar varða vélsmíðamiðstöðvar til að vinna málm (SN-númer 8457 10) og vélar til móttöku, umbreytingar og sendingar eða endurnýjunar á máli, myndum eða öðrum gögnum, þ.m.t. skiptistöðvar og beiningarbúnaður (SN-númer 8517 62). Þessi SN-númer eru á skrá í viðeigandi viðaukum við reglugerð (ESB) nr. 833/2014 þar eð hægt er að nota vörurnar til að stuðla að hernaðarlegri og tæknilegri eflingu Rússlands eða að þróun í varnar- og öryggismálum Rússlands. Vélsmíðamiðstöðvar eru mikið notaðar við framleiðslu varnarvara þar sem þær geta framleitt hárnákvæma málmíhluti sem nauðsynlegir eru fyrir hernaðarframleiðslu. Vélar til mál- og gagnasendinga eru m.a. notaðar fyrir fjarskiptanet á vettvangi og fjarmælingar dróna. Mikill innflutningur slíkra hluta til Kirgiska lýðveldisins frá Sambandinu í samanburði við tölur frá því fyrir stríð sýnir fram á áframhaldandi og sérstaklega mikla hættu á sniðgöngu með síðari sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi á vörunum frá Kirgiska lýðveldinu til Rússlands.
35) Alþjóðlegur, sérstakur erindreki vegna framkvæmdar refsiaðgerða ESB hefur átt virk samskipti við Kirgiska lýðveldið og Sambandið hefur einnig átt í tæknilegum viðræðum við yfirvöld í Kirgistan. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og margvísleg samskipti hefur Kirgiska lýðveldið hvorki samþykkt né framfylgt ráðstöfunum sem nægja til að tryggja að almennar vörur með mikinn forgang sem eru upprunnar í Sambandinu séu ekki fluttar aftur út til Rússlands og eykur því umtalsvert hættuna á að lögsaga þess sé notuð til að sniðganga þvingunaraðgerðir Sambandsins. Því ber að skilgreina Kirgiska lýðveldið sem lögsögu þar sem kerfisbundin og viðvarandi hætta er á sniðgöngu og þar sem yfirvöldum tekst ekki að koma í veg fyrir sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning til Rússlands á vörum og tækni, sem eru á skrá í XXXIII. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 833/2014, sem flutt er út frá Sambandinu.
36) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 er aukið við skrána yfir samstarfslönd vegna innflutnings á jarðolíuafurðum.
37) Með ákvörðun (SSUÖ) 2026/508 eru tvær hafnir og skipastigar í Rússlandi og ein höfn og skipastigi í þriðja landi öðru en Rússlandi, sem notuð eru til að sniðganga verðþak á olíu með því að skip stundi ólögmæta og áhættusama sjóflutninga, færð á skrá. Þetta varðar olíubirgðastöðina Karimun í Indónesíu.
38) Þessar ráðstafanir falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
39) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 833/2014 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Reglugerð (ESB) nr. 833/2014 er breytt sem hér segir:
1) Ákvæðum 1. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað i-liðar í lið zj kemur eftirfarandi:
„i) þjónusta ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjanda, þ.m.t. þjónusta ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda varðandi ferðir farþega og svipuð þjónusta; þjónusta tengd ferðaupplýsingum, -ráðgjöf og -skipulagningu; þjónusta tengd tilhögun ferða, gistingu og flutningi farþega og farangurs; þjónusta við farmiðaútgáfu,“
b) Eftirfarandi liðum er bætt við:
„zk) „þjónusta birgðastöðvar fyrir fljótandi jarðgas“: þjónusta sem kerfisstjórar fyrir fljótandi jarðgas veita viðskiptavinum, einkum afferming, geymsla, útsending, binding (lestun og losun), endurgösun, vökvaþétting fyrir bakflutning (e. backhaul liquefaction), lestun vörubifreiða, taka fljótandi jarðgass sem fellur undir SN-númer 2711 11 00 og þ.m.t. stoðþjónusta og bráðabirgðageymsla sem nauðsynleg er fyrir endurgösunarferlið og síðari afhendingu til flutningskerfisins,
zl) „stýrð öryggisþjónusta“: stýrð öryggisþjónusta, eins og skilgreint er í 14. lið a í 2. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/881 (5).“
2) Ákvæðum 2. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað h-liðar 4. mgr. kemur eftirfarandi:
„h) að tryggja netöryggi og upplýsingaöryggi fyrir lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir í Rússlandi, sem eru í eigu eða undir einni eða sameiginlegri stjórn lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis,“
b) Í stað iii. liðar í 7. mgr. kemur eftirfarandi:
„iii. að sala, afhending, tilflutningur og útflutningur vara og tækni sem um getur í 1. mgr., eða veiting tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, sé ætlað fyrir orkugeirann nema slík sala, afhending, tilflutningur eða útflutningur, eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð, sé heimilt samkvæmt þeim undanþágum sem um getur í 3.–6. mgr. 3. gr. og 4. mgr. a í 3. gr. k.“
3) Ákvæðum 2. gr. a er breytt sem hér segir:
a) Í stað h-liðar 4. mgr. kemur eftirfarandi:
„h) að tryggja netöryggi og upplýsingaöryggi fyrir lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir í Rússlandi, sem eru í eigu eða undir einni eða sameiginlegri stjórn lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem er skráð eða löglega stofnuð samkvæmt lögum aðildarríkis,“
b) Í stað iii. liðar í 7. mgr. kemur eftirfarandi:
„iii. að sala, afhending, tilflutningur og útflutningur vara og tækni sem um getur í 1. mgr., eða veiting tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, sé ætlað fyrir orkugeirann nema slík sala, afhending, tilflutningur eða útflutningur, eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð, sé heimilt samkvæmt þeim undanþágum sem um getur í 3.–6. mgr. 3. gr. og 4. mgr. a í 3. gr. k.“.
4) Eftirfarandi málsgrein er bætt við í 2. gr. f:
„1a. Bannið í 1. mgr. gildir einnig um efni á netinu frá lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem starfar sem spegileining lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar sem um getur í 1. mgr., þegar a.m.k. tvö eftirfarandi viðmiða eru uppfyllt:
a) í meginatriðum sama efni eða vefstraumur,
b) samfella í vörumerkjastjórnun, hönnun eða notendaviðmóti,
c) skörun á eignarhaldi, yfirráðum eða stjórnun,
d) notendum er vísað áfram eða þeir fluttir frá lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem um getur í 1. mgr.,
e) samfella tæknilegra innviða, m.a. notkun sama kóðagrunns, léna eða hugbúnaðar.“.
5) Ákvæðum 3. gr. er breytt sem hér segir:
a) Ákvæði 1. mgr. falla brott.
b) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Lagt er bann við því að:
a) veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, sem tengist hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. a og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þennan hugbúnað, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
b) veita fjármögnun eða fjárhagsaðstoð, sem tengist hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. a vegna sölu, afhendingar, tilflutnings eða útflutnings þessa hugbúnaðar eða veita tengda tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
c) selja, veita leyfi fyrir eða framselja með öðrum hætti hugverkarétt eða viðskiptaleyndarmál, sem og að veita rétt til aðgangs að eða endurnotkunar á hvers kyns efni eða upplýsingum sem njóta verndar hugverkaréttar eða sem fela í sér viðskiptaleyndarmál, sem tengjast hugbúnaði sem um getur í 1. mgr. a og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þennan hugbúnað, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi.“.
c) Í stað inngangsorðanna í 3. mgr. kemur eftirfarandi:
„3. Bönnin í 2. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning á hugbúnaði, eða veitingu tækni- eða fjárhagsaðstoðar, sem er nauðsynleg fyrir:“.
d) Ákvæði 3. mgr. a falla brott.
e) Í stað inngangsorðanna í 6. mgr. kemur eftirfarandi:
„6. Þrátt fyrir 1. mgr. a og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning og veitingu tækni- og fjárhagsaðstoðar, eftir að hafa ákvarðað:“.
6) Í stað b-liðar 5. mgr. a í 3. gr. ea kemur eftirfarandi:
„b) að aðgangurinn sé nauðsynlegur vegna verkefna sem eru bráðnauðsynleg til að ljúka verkefnum varðandi endurnýjanlega orku í Sambandinu.“.
7) Ákvæðum 3. gr. i er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„3be. Að því er varðar vörur, sem falla undir SN-númer 2501, 2517, 2519, 2522, 2530, 2601, 2619, 2620, 2621, 2804 61, 2804 69, 2815, 2816, 2825 20, 2833, 2849, 2910, 2916, 2926, 4016, 4302, 7110 11, 7110 19, 7110 31, 7110 39, 7110 41, 7110 49, 7204, 7401, 7402, 7403 (að undanskildu 7403 19), 7404, 7406, 7503, 7504, 7505, 7602, 7603, 7610, 7612, 8102, 8104 og 8105, gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um efndir fram til 25. júlí 2026 á samningum sem gerðir voru fyrir 24. apríl 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.
3bf. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 7403 19, gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um efndir fram til 25. janúar 2027 á samningum sem gerðir voru fyrir 24. apríl 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“.
b) Ákvæði 3. mgr. cc og 3. mgr. cd falla brott.
c) Í stað 3. mgr. e kemur eftirfarandi:
„3e. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld heimilað kaup, innflutning eða tilflutning vara sem falla undir SN-númer 7007, 7019, 8424 10 00, 8479, 8481, 8483, 8487, 8504, 8516 29 91, 8517, 8525, 8531, 8536, 8537, 8538, 8539, 8542, 8543 og 8603, sem eru á skrá í XXI. viðauka, eða veitingu tengdrar tækni- og fjárhagsaðstoðar, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að það sé nauðsynlegt vegna reksturs, viðhalds eða viðgerða á lestarvögnum á línu 3 í neðanjarðarlestarkerfi Búdapest sem voru afhentir árið 2018, til uppfyllingar á ábyrgð sem nær yfir endingartíma sem Metrowagonmash lagði fram fyrir 24. júní 2023.“.
d) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3h. Frá og með 24. apríl 2026 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um innflutning, kaup eða flutning, eða tengda tækniaðstoð eða fjárhagsaðstoð sem telst nauðsynleg vegna innflutnings inn í Sambandið á 688 000 tonnum af vörum sem falla undir SN-númer 2814 frá 24. apríl á tilteknu ári og til 23. apríl árið þar á eftir.“.
e) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3i. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar geta lögbær stjórnvöld heimilað kaup, innflutning eða tilflutning, til 25. apríl 2031, á vörum sem falla undir SN-númer 7007, 7019, 8471, 8479, 8481, 8482, 8483, 8487, 8504, 8517, 8523, 8525, 8531, 8536, 8537, 8538, 8539, 8542, 8543, 8603, 9030, 9031, 9032 og 9405, sem eru á skrá í XXI. viðauka, eða veitingu tengdrar tækni- og fjárhagsaðstoðar, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að það sé nauðsynlegt fyrir öryggi vegna reksturs, viðhalds eða viðgerða á lestarvögnum á línu 1, 2 og 4 í neðanjarðarlestarkerfi Sofíu sem voru framleiddir og afhentir fram til ársins 2017.“.
f) Í stað 5. mgr. kemur eftirfarandi:
„5. Framkvæmdastjórnin og aðildarríkin skulu stýra magni innflutningskvóta, sem sett er fram í 3. mgr. cg, 3. mgr. ch, 3. mgr. h og 4. mgr. þessarar greinar, í samræmi við stjórnunarkerfið fyrir tollkvóta sem kveðið er á um í 49.–54. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2447.“.
g) Í stað 6. mgr. kemur eftirfarandi:
„6. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 3. mgr. ab, 3. mgr. c, 3. mgr. ce, 3. mgr. e, 3. mgr. g eða 3. mgr. i, innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“.
8) Ákvæðum 3. gr. k er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„1b. Með fyrirvara um 1. mgr. er lagt bann við sölu, afhendingu, tilflutningi eða útflutningi, með beinum eða óbeinum hætti, á vörum sem falla undir SN-númer 7304 11 00, 7304 19 10, 7304 19 30, 7304 19 90, 7304 22 00, 7304 23 00, 7304 29 10, 7304 29 30, 7304 29 90, 7305 11 00, 7305 12 00, 7305 19 00, 7305 20 00, 7306 11, 7306 19, 7306 21 00, 7306 29 00, 8207 13 00, 8207 19 10, 8413 50, 8413 60, 8413 82 00, 8413 92 00, 8430 49 00, 8431 39 00, 8431 43 00, 8431 49, 8705 20 00, 8905 20 00 eða 8905 90 10, sem eru á skrá í XXIII. viðauka til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi, þ.m.t. í sérefnahagslögsögu þess og á landgrunni þess, eða til notkunar í Rússlandi, þ.m.t. í sérefnahagslögsögu þess og á landgrunni þess.“.
b) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Lagt er bann við því að:
a) veita tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða aðra þjónustu, sem tengist vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. og 1. mgr. b, og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þessar vörur og tækni, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
b) veita fjármögnun eða fjárhagsaðstoð, sem tengist vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. og 1. mgr. b, vegna sölu, afhendingar, tilflutnings eða útflutnings þessara vara og tækni eða vegna veitingar tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi,
c) selja, veita leyfi fyrir eða framselja með öðrum hætti hugverkarétt eða viðskiptaleyndarmál, sem og að veita rétt til aðgangs að eða endurnotkunar á hvers kyns efni eða upplýsingum sem njóta verndar hugverkaréttar eða sem fela í sér viðskiptaleyndarmál, sem tengjast vörum og tækni sem um getur í 1. mgr. og 1. mgr. b og því að útvega, framleiða, viðhalda og nota þessar vörur og tækni, með beinum eða óbeinum hætti, til handa einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða til notkunar þar í landi.“.
c) Ákvæði 3. mgr. ah, 3. mgr. ai og 3. mgr. aj falla brott.
d) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3al. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númerin á skrá í XXIIIH. viðauka gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um efndir fram til 25. júlí 2026 á samningum sem gerðir voru fyrir 24. apríl 2026 eða fylgisamningum sem nauðsynlegir eru vegna efnda slíkra samninga.“.
e) Í stað 4. mgr. a kemur eftirfarandi:
„4a. Bönnin í 1. mgr., 1. mgr. a, 1. mgr. b og 2. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara og tækni sem um getur í 1. mgr. eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar, til annarra nota en hernaðarlegra nota eða til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, vegna neyðarástands í heilbrigðismálum, til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.“.
f) Í stað f-liðar 5. mgr. a kemur eftirfarandi:
„f) vörum sem falla undir SN-númer 3916 20 þegar slíkt er algerlega nauðsynlegt vegna sölu á PVC-gólfefnum eða gluggum.“.
g) Eftirfarandi lið er bætt við í 5. mgr. a:
„g) vörur sem falla undir SN-númer 3920431099, 3925 90 10, 3925908000 eða 8302 41 50, sem eru algerlega nauðsynlegar vegna sölu á gluggum.“.
h) Í stað 5. mgr. aa kemur eftirfarandi:
„5aa. Lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna geta heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara sem falla undir SN-númer 2835 22 00, 2920 90, 3917 10 og 3920 62 eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur séu seldar, afhentar, fluttar til eða fluttar út eingöngu í þágu matvælaframleiðslu til manneldis í Rússlandi.“.
i) Í stað 5. mgr. b kemur eftirfarandi:
„5b. Þrátt fyrir 1. mgr., 1. mgr. b og 2. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara sem falla undir SN-kafla 72, 84, 85 og 90, sem eru á skrá í XXIII. viðauka, eða veitingu tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu, fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar eftir að hafa ákvarðað að það sé algerlega nauðsynlegt vegna framleiðslu títaníumvara sem flugiðnaðurinn þarfnast þar sem ekki liggja fyrir aðrir kostir.“.
j) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5j. Þrátt fyrir 1. mgr. a geta lögbær stjórnvöld heimilað umflutning um yfirráðasvæði Rússlands á vörum og tækni sem falla undir SN-númer 3403 19 80, sem eru á skrá í XXXVII. viðauka og sem eru flutt út frá Ungverjalandi, eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða tækni séu á leið til Aserbaísjan.“.
k) Í stað 7. mgr. kemur eftirfarandi:
„7. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 5. mgr., 5. mgr. a, 5. mgr. aa, 5. mgr. b, 5. mgr. c, 5. mgr. d, 5. mgr. g, 5. mgr. h, 5. mgr. i eða 5. mgr. j, innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“.
9) Ákvæðum 3. gr. m er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„2a. Frá og með 1. janúar 2027 gilda bönnin í 1. og 2. mgr. um jarðgasþétti í undirlið SN 2709 00 10 frá framleiðslustöðvum fyrir fljótandi jarðgas.“.
b) Ákvæði 11. og 12. mgr. falla brott.
10) Ákvæðum 3. gr. n er breytt sem hér segir:
a) Ákvæðum 6. mgr. er breytt sem hér segir:
i. Ákvæði b- og c-liðar falla brott.
ii. Í lok málsgreinarinnar er eftirfarandi texta bætt við sem ónúmeraðri undirgrein sem er ekki hluti af d-lið:
„Ráðið skal, að fenginni sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúanum og framkvæmdastjórninni, án ótilhlýðilegrar tafar, á grundvelli fullrar samræmingar og að teknu tilliti til umræðna innan G7-hópsins og Verðþaksbandalagsins, taka ákvörðun um beitingu undanþágu frá bönnunum í 1. og 4. mgr. að því er varðar viðskipti með hráolíu eða jarðolíuafurðir sem eru undir verðþakinu.“.
b) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„6b. Bönnin í 1. og 4. mgr. gilda ekki:
a) um hráolíu eða jarðolíuafurðir sem eru á skrá í XXV. viðauka þegar þessar vörur eru upprunnar í þriðja landi og eru einungis settar um borð í skip í Rússlandi, fluttar þaðan eða um það, að því tilskildu að hvorki séu þær vörur rússneskar að uppruna né eigandi þeirra rússneskur,
b) um flutninga eða um tækniaðstoð, miðlunarþjónustu, fjármögnun eða fjárhagsaðstoð sem tengist slíkum flutningum, á vörunum sem um getur í XXIX. viðauka til þeirra þriðju landa sem þar eru nefnd, á því tímabili sem tilgreint er í þeim viðauka.
6c. Frá og með 1. janúar 2027 gilda bönnin í 1. og 4. mgr. um jarðgasþétti í undirlið SN 2709 00 10 frá framleiðslustöðvum fyrir fljótandi jarðgas.“.
c) Ákvæði 12. og 13. mgr. falla brott.
11) Ákvæðum 3. gr. p er breytt sem hér segir:
a) Í stað 8. mgr. kemur eftirfarandi:
„8. Að því er varðar 3. og 4. mgr. þessarar greinar skulu vörur, sem falla undir SN-númer 7102 31 00 og 7102 10 00 og fluttar eru inn í Sambandið, tafarlaust lagðar fram til sannprófunar, ásamt vottorði samkvæmt reglugerð ráðsins nr. (EB) 2368/2002 (6)“ þar sem upprunalegt námuland eða -lönd koma skýrt fram, hjá stjórnvaldi sem er tilgreint í XXXVIIIB. viðauka. Aðildarríkið þar sem þessar vörur eru fluttar inn á tollsvæði Sambandsins skal tryggja að þær séu lagðar fram hjá stjórnvaldinu sem tilgreint er í XXXVIIIB. viðauka. Heimilt er að veita leyfi fyrir tollmeðferð við umflutning í þessu skyni. Ef veitt er leyfi fyrir tollmeðferð við umflutning skal fresta sannprófuninni, sem kveðið er á um í þessari málsgrein, uns stjórnvaldið sem tilgreint er í XXXVIIIB. viðauka hefur tekið við vörunum. Innflytjandinn skal vera ábyrgur fyrir réttum flutningi varanna og bera kostnað af honum. Framlagning til þess stjórnvalds er ekki nauðsynleg að því tilskildu að vörurnar hafi áður farið í gegnum sannprófunarferlið, sem kveðið er á um í þessari málsgrein, og að því tilskildu að það sé sannað með sönnunargögnum, byggðum á rekjanleika, þ.m.t. samsvarandi vottorði sem staðfestir að demantarnir séu ekki unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi, eins og kveðið er á um í 10. mgr.
b) Í stað 10. mgr. kemur eftirfarandi:
„10. Að því er varðar 3. og 4. mgr. skulu innflytjendur leggja fram sönnun við innflutning um upprunaland demantanna eða varanna sem innihalda demanta sem eru notuð sem ílag við vinnslu framleiðsluvörunnar í þriðja landi.
Frá og með 1. mars 2025 skulu sönnunargögn, byggð á rekjanleika, fyrir vörur á skrá í A-hluta XXXVIIIA. viðauka, sem falla undir SN-númer 7102 10 00 og 7102 31 00, innihalda samsvarandi vottorð sem staðfestir að demantarnir séu ekki unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi. Að því er varðar vörur sem falla undir SN-númer 7102 39 00, á skrá í A-hluta í XXXVIIIA. viðauka, gildir skyldubundin notkun sönnunargagna, byggðra á rekjanleika, þ.m.t. áreiðanleikakönnunaryfirlýsing sem staðfestir að demantarnir hafi ekki verið unnir, meðhöndlaðir eða framleiddir í Rússlandi, frá og með 24. apríl 2026.“.
12) Í stað 3. gr. q kemur eftirfarandi:
„3. gr. q
1. Lagt er bann við því að ríkisborgarar aðildarríkis, einstaklingar sem eru búsettir í aðildarríki og lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í Sambandinu selji eða yfirfæri með öðrum hætti eignarhald, með beinum eða óbeinum hætti, á tankskipum til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XXV. viðauka og sem falla undir ST-númer úr 8901 20, til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi eða til nota þar í landi, hvort sem þessar afurðir eru upprunnar í Sambandinu eða ekki.
2. Með fyrirvara um bannið í 1. mgr. skulu ríkisborgarar aðildarríkis, einstaklingar sem eru búsettir í aðildarríki og lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir með staðfestu í Sambandinu sem selja eða yfirfæra með öðrum hætti eignarhald, með beinum eða óbeinum hætti, til aðila, rekstrareininga og stofnana í þriðja landi, á tankskipum til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XXV. viðauka og sem falla undir ST-númer úr 8901 20, hvort sem þessar afurðir eru upprunnar í Sambandinu eða ekki:
a) gera viðeigandi ráðstafanir, sem hæfa eðli þeirra og umfangi, til að greina og meta áhættu af endurflutningi til Rússlands eða til notkunar í Rússlandi og tryggja að þetta áhættumat sé skjalfest og uppfært,
b) koma á viðeigandi stefnum, eftirliti og verklagsreglum, sem hæfa eðli þeirra og umfangi, til að milda og stýra með skilvirkum hætti áhættu af endurflutningi til Rússlands eða af notkun í Rússlandi.
3. Einstaklingar, lögaðilar, rekstrareiningar eða stofnanir sem um getur í 2. mgr. sem kaupa tankskipið skulu veita allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að ljúka við skrefin sem um getur í a-lið 2. mgr.
4. Tilkynna skal lögbærum stjórnvöldum aðildarríkis þar sem eigandi tankskips er ríkisborgari, hefur búsetu eða staðfestu, tafarlaust um sölu eða annað fyrirkomulag sem felur í sér yfirfærslu á eignarhaldi til þriðja lands, af hálfu ríkisborgara aðildarríkis, einstaklings sem hefur búsetu í aðildarríki eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar með staðfestu í Sambandinu, á tankskipum til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XXV. viðauka og sem falla undir ST-númer úr 8901 20, að undanskilinni sölu eða annarri yfirfærslu á eignarhaldi sem bönnuð er skv. 1. mgr.
Tilkynningin til lögbæra stjórnvaldsins skal innihalda a.m.k. upplýsingar um það hverjir eru seljandi og kaupandi og, þar sem við á, stofnsamþykktir seljanda og kaupanda, þ.m.t. hlutafjáreign og stjórnendur, auðkennisnúmer Alþjóðasiglingamálastofnunar fyrir skipið og kallmerki skipsins.
5. Sala eða annað fyrirkomulag sem felur í sér yfirfærslu á eignarhaldi til þriðja lands, af hálfu einstaklings sem er búsettur í aðildarríki eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar með staðfestu í Sambandinu, á tankskipi til flutninga á hráolíu eða jarðolíuafurðum sem eru á skrá í XXV. viðauka og falla undir ST-númer 8901 20, skal innihalda samningsbundið bann um frekari endursölu eða yfirfærslu á eignarhaldi skipsins til einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi eða til notkunar í Rússlandi.
6. Salan eða fyrirkomulagið sem um getur í 5. mgr. skal einnig innihalda skrifleg samningsákvæði sem kveða á um að kaupandi skipsins í þriðja landi:
i. skuldbindi sig til að endurspegla bannið í 5. mgr. í allri frekari endursölu eða yfirfærslu sem hann kann að annast og
ii. skuldbindi kaupanda skipsins, við frekari endursölu eða yfirfærslu, til að setja skrifleg samningsákvæði sem eru jafngild þeim sem krafist er í 5. mgr. og í þessari málsgrein.
7. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja tilkynningu skv. 4. mgr., innan tveggja vikna frá því að hún er gerð.“.
13) Eftirfarandi grein er bætt við:
„3. gr. rb
Frá og með 1. janúar 2027 er lagt bann við því að veita, með beinum eða óbeinum hætti, einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun í Rússlandi eða lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í Sambandinu sem er meira en 50% í eigu eða undir stjórn rússnesks ríkisborgara eða lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar í Rússlandi, þjónustu birgðastöðva fyrir fljótandi jarðgas.
Lagt er bann við því að viðhalda samningum sem varða bannaða þjónustu fyrir fljótandi jarðgas samkvæmt þessari grein eftir 1. janúar 2027.“.
14) Ákvæðum 3. gr. s er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3a. Þrátt fyrir 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkis heimilað framkvæmd þeirra aðgerða sem um getur í a- til g-lið 1. mgr. að því er varðar skip sem er á skrá í XLII. viðauka eftir að hafa ákvarðað að:
a) skipið sé ætlað til endurvinnslu og
b) viðkomandi aðgerðir séu nauðsynlegar til að skipið komist til endurvinnslustöðvarinnar, vegna hvers kyns viðkomandi starfsemi endurvinnslustöðvarinnar í tengslum við skipið eða vegna greiðslna sem tengjast endurvinnslunni.“.
b) Í stað 5. mgr. kemur eftirfarandi:
„5. Hlutaðeigandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 3. mgr. a og 4. mgr. innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“.
15) Eftirfarandi grein er bætt við:
„3. gr. sa
1. Lagt er bann við því að veita, með beinum eða óbeinum hætti, tækniaðstoð, miðlunarþjónustu eða fjármögnun eða fjárhagsaðstoð í tengslum við ísbrjóta sem falla undir SN-númer úr 8906 90 eða við hvers kyns tankskip fyrir fljótandi jarðgas (LNG) sem falla undir SN-númer úr 8901 20, þegar skipið er skráð undir fána Rússlands, er vottað af Rússnesku skipaskránni, er í eigu eða undir stjórn rússnesks einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, er starfrækt í Rússlandi eða er til notkunar í Rússlandi.
2. Ákvæði 1. mgr. gilda einungis frá 25. apríl 2026 um tankskip fyrir fljótandi jarðgas sem falla undir SN-númer úr 8901 20 og eru skráð undir fána Rússlands, vottuð af Rússnesku skipaskránni eða í eigu eða undir stjórn rússnesks einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar.
3. Ákvæði 1. mgr. gilda einungis frá 1. janúar 2027 um tankskip fyrir fljótandi jarðgas sem falla undir SN-númer úr 8901 20, sem starfrækt eru í Rússlandi eða til notkunar í Rússlandi, önnur en þau sem skráð eru undir fána Rússlands, vottuð af Rússnesku skipaskránni eða í eigu eða undir stjórn rússnesks einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar.
4. Ákvæði 1. mgr. gilda ekki ef um er að ræða skip sem þarfnast aðstoðar í leit að skipaafdrepi, neyðarviðkomu í höfn vegna siglingaöryggis eða björgun mannslífa á sjó eða til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.“.
16) Ákvæðum 4. gr. er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi lið er bætt við í a-lið 2. mgr.:
„iii. hernaðarlega réttarfræðilega greiningu á munum sem eru upprunnir í Rússlandi og hafa verið endurheimtir frá Úkraínu eða“.
b) Ákvæði 3. mgr. falla brott.
c) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„3a. Bönnin í 1. mgr. gilda ekki um sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara og tækni sem um getur í 1. mgr. b í 3. gr. k eða veitingu tengdrar fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar, tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, til annarra nota en hernaðarlegra nota eða til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, vegna neyðarástands í heilbrigðismálum, til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum.
3b. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, sölu, afhendingu, tilflutning eða útflutning vara og tækni sem eru á skrá í 1. mgr. b í 3. gr. k eða veitingu tengdrar fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar, tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu, eftir að hafa gengið úr skugga um að slíkar vörur eða tækni eða veiting tengdrar fjármögnunar eða fjárhagsaðstoðar, tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu sé nauðsynleg:
a) vegna lækninga eða lyfja eða í mannúðarskyni, s.s. til að veita, eða greiða fyrir því að veitt sé, aðstoð, þ.m.t. sjúkragögn, matvæli eða tilflutningur starfsmanna hjálparstofnana og tengd aðstoð, eða vegna brottflutnings,
b) til einkanota og undir fullu eftirliti aðildarríkisins sem veitir heimildina og til að uppfylla framfærsluskyldur sínar á svæðum sem falla undir langtímaleigusamning milli þess aðildarríkis og Rússneska sambandsríkisins,
c) til að koma á fót kjarnorkugetu til borgaralegra nota, til reksturs hennar, viðhalds, eldsneytisafhendingar og -endurmeðhöndlunar og öryggis hennar, og til að halda áfram hönnun, byggingu og gangsetningu sem þarf til að ljúka við kjarnorkustöðvar til borgaralegra nota, til afhendingar forefna til framleiðslu á geislavirkum samsætum til lækninga og svipaðrar læknisfræðilegrar notkunar, eða mikilvægrar tækni til vöktunar á geislun í umhverfinu, sem og til samstarfs um kjarnorku til borgaralegra nota, einkum á sviði rannsókna og þróunar, eða
d) vegna framleiðslu títaníumvara sem flugiðnaðurinn þarfnast þar sem ekki liggja fyrir aðrir kostir.“.
d) Ákvæði 4. mgr. falla brott.
e) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„5. Ákvæði 3. mgr. a og 3. mgr. b gilda með fyrirvara um undanþágur og frávik sem mælt er fyrir um í 3. gr. k og einkum í 4. mgr. a, 5. mgr. og 5. mgr. b í þeirri grein.“.
17) Ákvæðum 5. gr. ad er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr.:
„d) er ekki lána- eða fjármálastofnun eða rekstrareining sem er veitandi þjónustu á sviði sýndareigna eða greiðsluþjónustu og býður upp á þjónustu sem gerir kleift að stunda alþjóðleg viðskipti, þ.m.t. með greiðslum frá reikningum í öðrum löndum en Rússlandi, með jöfnun, skuldajöfnun, afstemmingu eða uppgjöri, sem raska tilganginum með bönnunum í þessari reglugerð eða í reglugerð (ESB) nr. 269/2014, eins og skráð er í D-hluta XLV. viðauka við þessa reglugerð.“.
b) Í stað 2. mgr. kemur eftirfarandi:
„2. Bönnin sem um getur í 1. mgr. gilda einnig að því er varðar:
a) lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun, sem kemur fram fyrir hönd eða starfar eftir fyrirmælum rekstrareiningar sem um getur í a-, b-, c- eða d-lið 1. mgr.,
b) rekstrareiningu sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða greiðsluþjónustu, sem starfar sem spegilrekstrareining eða rekstrareining (e. mirror or successor entity) sem tekur við af rekstrareiningu sem um getur í a-, eða b-lið 1. mgr.,
c) rekstrareiningu sem býður upp á stoðþjónustu sem er jafngild þeirri sem veitt er af aðilum sem um getur í d-lið 1. mgr.“.
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„2b. Að því er varðar c-lið 2. mgr. er jafngild stoðþjónusta þjónusta sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
a) þjónustan er veitt af rekstrareiningu sem er ekki lánastofnun, fjármálastofnun eða rekstrareining sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða greiðsluþjónustu,
b) þjónustan beinist að rússneskum viðskiptavinum og hefur þann yfirlýsta tilgang að gera viðskipti yfir landamæri möguleg, þ.m.t. með greiðslum af reikningum í öðrum löndum en Rússlandi, með jöfnun, skuldajöfnun, afstemmingu eða uppgjöri,
c) þjónustan undanskilur ekki þau viðskipti sem eru bönnuð samkvæmt þessari reglugerð eða reglugerð (ESB) nr. 269/2014.“.
18) Ákvæðum 5. gr. ae er breytt sem hér segir:
a) Í stað c-liðar 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„c) til að flytja á sjó hráolíu eða jarðolíuafurðir sem eru á skrá í XXV. viðauka, eða jarðefni, sem er upprunnið í Rússlandi eða flutt þaðan út með skipum sem stunda ólögmæta og áhættusama sjóflutninga eins og kemur fram í ályktun allsherjarþings Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar nr. A.1192(33),“.
b) Eftirfarandi lið er bætt við í 3. mgr.:
„h) um viðskipti við höfnina sem er skráð undir færslunúmerinu 7 í A-hluta XLVII. viðauka vegna kaupa, innflutnings eða tilflutnings á vörum sem falla undir SN-númer 7202 12 10 og 7224 90, nema annað sé bannað samkvæmt þessari reglugerð.“.
19) Eftirfarandi greinum er bætt við:
„5. gr. ai
1. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem um getur í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 11. gr. þessarar reglugerðar, sem hefur notið ávinnings, þ.m.t. með starfsemi í sama markaðsgeira, af ákvörðun samkvæmt tilskipun forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 302 frá 25. apríl 2023 með síðari breytingum, samkvæmt alríkislögum nr. 470-FZ frá 4. ágúst 2023 með síðari breytingum, eða samkvæmt tengdri eða jafngildri rússneskri löggjöf, eins og skráð er í LIV. viðauka.
2. Nema þau séu bönnuð með öðrum hætti gildir bannið í 1. mgr. ekki um viðskipti sem eru:
a) nauðsynleg vegna kaupa, innflutnings eða flutnings á lyfjum, lækningavörum, landbúnaðarafurðum og matvælum, þ.m.t. hveiti og áburði, sem heimilt er að kaupa, flytja inn og flytja samkvæmt þessari reglugerð,
b) algerlega nauðsynleg til að tryggja aðgang að dóms-, stjórnsýslu- eða gerðardómsmeðferðum í aðildarríki og viðurkenningu á eða fullnustu dómsúrskurða eða úrskurða gerðardóms sem falla í aðildarríki, að því tilskildu að þau viðskipti séu í samræmi við markmið þessarar reglugerðar og reglugerð (ESB) nr. 269/2014,
c) með fyrirvara um b-lið þessarar málsgreinar, algjörlega nauðsynleg til að fá skaðabætur samkvæmt:
i. ákvæðum 11. gr. a eða 11. gr. b í þessari reglugerð eða
ii. ákvæðum 11. gr. a í reglugerð (ESB) nr. 269/2014.
5. gr. aj
1. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem leitar eða hefur samstarf um fullnustu dómsúrskurða utan Sambandsins sem efna kröfur sem um getur í 1. mgr. 11. gr. a, eða við einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga eða stjórna þessum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, að undanskildum lögfræðingum og dómurum, eins og skráð er í A-hluta LV. viðauka.
2. Lagt er bann við því að eiga, með beinum eða óbeinum hætti, viðskipti við einstakling, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem leitar eða hefur samstarf um fullnustu dómsúrskurða utan Sambandsins vegna ákvarðana sem um getur í 1. mgr. 11. gr. b, eða við einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnanir sem eiga eða stjórna þessum lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, að undanskildum lögfræðingum og dómurum, eins og skráð er í B-hluta LV. viðauka.
3. Nema þau séu bönnuð með öðrum hætti gilda bönnin í 1. og 2. mgr. ekki um viðskipti sem eru:
a) nauðsynleg vegna kaupa, innflutnings eða flutnings á lyfjum, lækningavörum, landbúnaðarafurðum og matvælum, þ.m.t. hveiti og áburði, sem heimilt er að kaupa, flytja inn og flytja samkvæmt þessari reglugerð,
b) algerlega nauðsynleg til að tryggja aðgang að dóms-, stjórnsýslu- eða gerðardómsmeðferðum í aðildarríki og viðurkenningu á eða fullnustu dómsúrskurða eða úrskurða gerðardóms sem falla í aðildarríki, að því tilskildu að þau viðskipti séu í samræmi við markmið þessarar reglugerðar og reglugerð (ESB) nr. 269/2014,
c) með fyrirvara um b-lið þessarar málsgreinar, algjörlega nauðsynleg til að fá skaðabætur samkvæmt:
i. ákvæðum 11. gr. a eða 11. gr. b í þessari reglugerð eða
ii. ákvæðum 11. gr. a í reglugerð (ESB) nr. 269/2014.“.
20) Í stað 5. gr. ba kemur eftirfarandi:
„5. gr. ba
Lagt er bann við því að eiga, með beinum eða óbeinum hætti, viðskipti með sýndareignir eða seðlabankarafeyri sem er á skrá í LIII. viðauka, eða styðja á nokkurn hátt við þróun slíkra sýndareigna eða seðlabankarafeyris.“.
21) Eftirfarandi grein er bætt við:
„5. gr. bb
1. Lagt er bann við því að eiga viðskipti, með beinum eða óbeinum hætti, við lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem veitir þjónustu á sviði sýndareigna eða er vettvangur sem gerir skipti eða millifærslu sýndareigna mögulega og er með staðfestu í Rússlandi.
2. Bannið í 1. mgr. gildir ekki um viðskipti:
a) sem eru nauðsynleg vegna starfsemi sendi- og ræðisskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna eða samstarfslanda í Rússlandi, þ.m.t. sendinefnda, sendiráða og fastanefnda, eða alþjóðastofnana í Rússlandi sem njóta friðhelgi að þjóðarétti,
b) af hálfu ríkisborgara aðildarríkis sem eru búsettir í Rússlandi og voru það fyrir 24. febrúar 2022.
3. Þrátt fyrir 1. mgr. geta lögbær stjórnvöld heimilað, með þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, viðskipti sem eru algerlega nauðsynleg til þess að losa um fjárfestingar í Rússlandi eða slíta þar atvinnustarfsemi.
4. Bannið í 1. mgr. gildir frá og með 24. maí 2026.“.
22) Ákvæðum 5. gr. h er breytt sem hér segir:
a) Í stað f-liðar 1. mgr. a kemur eftirfarandi:
„f) sem eru nauðsynleg vegna viðtöku greiðslna sem lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum, sem um getur í XIV. viðauka, ber að inna af hendi samkvæmt samningum og skuldbindingum sem gerð voru fyrir 24. apríl 2026,“.
b) Eftirfarandi liðum er bætt við í 1. mgr. a:
„i) algerlega nauðsynleg til að greiða hæfilega þóknun fyrir sérfræðistörf eða til endurgreiðslu kostnaðar vegna lögfræðiþjónustu,
j) sem eru nauðsynleg vegna þarfa ríkisfjármagnaðra aðila sem miðla menningarstefnu aðildarríkjanna á erlendri grundu í Rússlandi.“.
23) Ákvæðum 5. gr. n er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr.:
„i) stýrð öryggisþjónusta.“.
b) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„4a. Ákvæði 4. mgr. gilda ekki um veitingu þjónustu, með beinum eða óbeinum hætti, sem ekki fellur undir 1. eða 2. mgr., til ræðis- eða sendiskrifstofu Rússneska sambandsríkisins sem staðsett er í aðildarríki, ef slík þjónusta er algerlega nauðsynleg vegna starfsemi hennar.“.
c) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„8d. Ákvæði i-liðar 1. mgr. koma til framkvæmda frá og með 25. maí 2026“.
24) Eftirfarandi liðum er bætt við í 2. mgr. 5. gr. t:
„e) opinberum og einkareknum rannsóknarstofnunum, háskólum, æðri menntastofnunum, rannsóknar- og tæknistofnunum, frjálsum félagasamtökum, opinberum aðilum og stofnunum, svo og fyrirtækjum og öðrum aðilum í iðnaði og viðskiptum, þ.m.t. örfyrirtækjum, litlum, meðalstórum og stórum fyrirtækjum, sem framkvæma rannsóknar- og nýsköpunaraðgerðir, eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/695 (7)“;
f) einstaklingum sem tengjast lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í e-lið.
25) Í stað inngangsorðanna í 1. mgr. 5. gr. q kemur eftirfarandi:
„1. Þrátt fyrir 2. gr., 2. gr. a, 3. gr., 3. gr. f og 3. gr. k geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning, útflutning eða umflutning um Rússland á vörum og tækni sem um getur í þessum greinum, eða veitingu tengdrar tækniaðstoðar, miðlunarþjónustu eða annarrar þjónustu eða fjármögnun eða fjárhagsaðstoð, vegna reksturs og viðhalds á leiðslum Caspian Pipeline Consortium (CPC) og tengdum grunnvirkjum sem eru nauðsynleg fyrir flutning á vörum sem falla undir SN-númer 2709 00 og eru upprunnar í Kasakstan og þar sem Rússland er aðeins fermingar-, brottfarar- eða umflutningsstaður, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi, eftir að hafa ákvarðað að:“.
26) Eftirfarandi grein er bætt við:
„5. gr. sa
1. Lagt er bann við því að eiga, með beinum eða óbeinum hætti, viðskipti við lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem, samkvæmt tilskipun forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 122 frá 15. febrúar 2024, tilskipun ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins nr. 1767 frá 18. október 2021, eins og henni var breytt með ályktun ríkisstjórnarinnar nr. 380 frá 27. mars 2024, eða í samræmi við tengda eða jafngilda rússneska löggjöf eða í samræmi við lögbann, úrskurð, réttarúrræði, dóm eða aðra ákvörðun rússnesks dómstóls, hefur notað eða notar hugverkarétt eða viðskiptaleyndarmál í eigu eða sem eru skráð á lögaðila í Rússlandi, sem er í eigu eða undir stjórn einstaklings frá aðildarríki eða lögaðila sem stofnaður er samkvæmt lögum aðildarríkis, án samþykkis rétthafans, eins og þeir eru skráðir í LVI. viðauka.
2. Með fyrirvara um 6. gr. b þessarar reglugerðar skulu einstaklingar í aðildarríki eða lögaðilar sem eru stofnaðir samkvæmt lögum aðildarríkis, sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar, upplýsa lögbært yfirvald þess aðildarríkis um alla notkun samkvæmt rússneskri löggjöf sem um getur í þeirri málsgrein og án samþykkis rétthafa á hugverkarétti eða viðskiptaleyndarmálum sem eru í eigu eða skráð á lögaðila sem þeir eiga eða stjórna í Rússlandi.
3. Aðildarríki, sem rétthafar upplýsa í samræmi við 2. mgr., skulu síðan upplýsa framkvæmdastjórnina um notkun hugverkaréttinda eða viðskiptaleyndarmála án samþykkis.“.
27) Ákvæðum 5. gr. v er breytt sem hér segir:
a) Í stað 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Rússneskir ríkisborgarar, sem eru starfsmenn sendi- eða ræðisskrifstofa Rússlands, skrifstofu- og tæknistarfsmenn eða þjónustulið sendi- eða ræðisskrifstofa í Rússlandi, eða aðstandendur þeirra, handhafar gilds dvalarleyfis, þ.m.t. diplómatískra skilríkja, eða gildrar vegabréfsáritunar, sem annað ríki hefur gefið út, sem ætla sér að ferðast til eða fara í gegnum yfirráðasvæði aðildarríkis, á grundvelli þess dvalarleyfis eða þeirrar vegabréfsáritunar, skulu tilkynna hlutaðeigandi aðildarríki eða aðildarríkjum um ferðina eigi síðar en á síðasta virka degi í því aðildarríki eða þeim aðildarríkjum, hvort heldur ber fyrr að, fyrir fyrirhugaðan komudag inn á yfirráðasvæði þeirra og í öllum tilvikum eigi síðar en 24 klukkustundum fyrir komudag.“.
b) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„1a. Rússneskir ríkisborgarar sem falla undir skylduna í 1. mgr. skulu hafa meðferðis afrit af tilkynningunni og framvísa því, sé þess óskað, til yfirvalda í því aðildarríki eða þeim aðildarríkjum sem ferðast er til.“.
28) Eftirfarandi lið er bætt við í 1. mgr. 11. gr.:
„d) einstaklingi frá þriðja landi sem er ekki ríkisborgari Rússlands og lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun með staðfestu í þriðja landi öðru en Rússlandi, að undanskildum samstarfslöndunum sem eru á skrá í VIII. viðauka við þessa reglugerð, sem selur, afhendir, flytur til eða flytur út vörur, tækni og þjónustu, sem bannað er að selja, afhenda, flytja til eða flytja út samkvæmt þessari reglugerð, hvort sem þær eða hún eru upprunnin í Sambandinu eða ekki, til aðila, rekstrareininga eða stofnana sem um getur í a-, b- eða c-lið þessarar málsgreinar eða til notkunar í Rússlandi.“.
29) Í stað 11. gr. a kemur eftirfarandi:
„11. gr. a
1. Sérhver aðili, sem um getur í c- eða d-lið 13. gr., skal, við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í d-lið 13. gr., stofnar til vegna krafna sem aðilar, rekstrareiningar og stofnarnir, sem um getur í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 11. gr., leggja fram hjá dómstólum í þriðju löndum í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum af ráðstöfunum, með beinum eða óbeinum hætti, að hluta til eða að öllu leyti, sem gripið er til samkvæmt reglugerð þessari, að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki skilvirkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem um getur í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 11. gr., sem lögðu fram kröfur hjá dómstólum í viðkomandi þriðja landi, eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum rekstrareiningum eða stofnunum.
2. Með fyrirvara um 1. mgr. skal sérhver aðili, sem um getur í c- eða d-lið 13. gr., við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í d-lið 13. gr., stofnar til vegna lögbanns, úrskurða, úrræða, dóma eða annarra ákvarðana dómstóls eða stjórnvalds, sem teknar eru í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, og leitar fullnustu dóma sem staðfesta kröfur sem um getur í 1. mgr., að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki skilvirkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að sækja slíkar skaðabætur frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem leita eða hafa samstarf um fullnustu dóma sem staðfesta kröfur sem um getur í 1. mgr. í þriðja landi, öðru en Rússlandi, eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum rekstrareiningum eða stofnunum, að undanskildum lögfræðingum þeirra og dómurum og að undanskildum aðilum sem um getur í c- eða d-lið 13. gr., eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eru í eigu eða undir stjórn aðilanna sem um getur í d-lið 13. gr., sem dómur hefur verið kveðinn upp gegn vegna staðfestingar krafna sem um getur í 1. mgr.“.
30) Ákvæðum 11. gr. b er breytt sem hér segir:
a) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„1a. Með fyrirvara um 1. mgr. skal sérhver aðili sem um getur í c- eða d-lið 13. gr., við dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga rétt á hvers kyns beinum eða óbeinum skaðabótum, þ.m.t. vegna lögfræðikostnaðar sem sá aðili, eða lögaðili, rekstrareining eða stofnun sem er í eigu eða undir stjórn aðila sem um getur í d-lið 13. gr., stofnar til vegna lögbanns, úrskurða, úrræða, dóma eða annarra ákvarðana dómstóls eða stjórnvalds, sem teknar eru í þriðju löndum, öðrum en Rússlandi, og leitar fullnustu tilskipunar forseta Rússneska sambandsríkisins nr. 302 frá 25. apríl 2023 með síðari breytingum, laga sambandsríkisins nr. 470-FZ frá 4. ágúst 2023 með síðari breytingum eða tengdrar eða jafngildrar rússneskrar löggjafar, að því tilskildu að slík ákvörðun sé ólögleg samkvæmt hefðbundnum reglum þjóðarréttar eða samkvæmt tvíhliða fjárfestingasamningi sem gerður er milli viðkomandi aðildarríkis og viðeigandi lögsögu og að því tilskildu að viðkomandi aðili hafi ekki skilvirkan aðgang að úrræðum í viðkomandi lögsögu. Heimilt er að innheimta slíkar skaðabætur frá aðilunum, rekstrareiningunum eða stofnununum sem leita eða hafa samstarf um fullnustu ákvarðana sem um getur í 1. mgr. í þriðja landi öðru en Rússlandi eða frá aðilum, rekstrareiningum eða stofnunum sem eiga eða stjórna þessum rekstrareiningum eða stofnunum, að undanskildum lögfræðingum þeirra og dómurum.“.
31) Eftirfarandi grein er bætt við:
„11. gr. ca
Ef aðili sem um getur í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 11. gr. þessarar reglugerðar hóf málsmeðferð fyrir rússneskum dómstól í tengslum við samning eða viðskipti sem hafa orðið fyrir áhrifum af ráðstöfunum, með beinum eða óbeinum hætti, að hluta til eða að öllu leyti, sem gerðar eru samkvæmt þessari reglugerð eða samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 269/2014, sem brýtur í bága við óskoraða lögsögu eða gerðardómsákvæði eða á annan hátt skv. gr. 248.1 eða gr. 248.2 í reglum Rússneska sambandsríkisins um gerðardómsmeðferð eða jafngilda rússneska löggjöf, gegn einstaklingi, lögaðila, rekstrareiningu eða stofnun sem um getur í c- eða d-lið 13. gr. þessarar reglugerðar í því skyni að fá lögbann, úrskurð, réttarúrræði, dóm eða aðra ákvörðun dómstóls, skal einstaklingurinn, lögaðilinn, rekstrareiningin eða stofnunin sem um getur í c- eða d-lið 13. gr. þessarar reglugerðar, með dómsmeðferð fyrir þar til bærum dómstólum aðildarríkis, eiga, með fyrirvara um 11. gr. a og 11. gr. b, rétt á dómsúrskurði sem staðfestir óskoraða lögsögu eða gerðardómsákvæði og sem fyrirskipar aðilanum sem tilgreindur er í a-, b- eða c-lið 1. mgr. 11. gr. að hefja ekki eða hætta þessum málarekstri. Ef þessum fyrirmælum er ekki fylgt varðar það fjársektum í réttu hlutfalli við hugsanlegt tjón sem einstaklingur, lögaðili, rekstrareining eða stofnun, sem um getur í c- eða d-lið 13. gr. þessarar reglugerðar, kann að verða fyrir vegna slíks brots. Greiða skal fjársektirnar sem dómstóllinn leggur á til þess einstaklings, lögaðila, rekstrareiningar eða stofnunar, sem um getur í c- eða d-lið 13. gr. þessarar reglugerðar, sem lagði fram beiðnina.“.
32) Í stað 11. gr. d kemur eftirfarandi:
„11. gr. d
Ef enginn dómstóll aðildarríkis hefur lögsögu samkvæmt öðrum ákvæðum laga Sambandsins eða laga aðildarríkis getur dómstóll aðildarríkis, í undantekningartilvikum, hlýtt á skaðabótakröfu sem er höfðuð skv. 11. gr. a, 11. gr. b, 11. gr. ca eða 11. gr. e, að því tilskildu að málið hafi nægileg tengsl við aðildarríki dómstólsins sem fær málið til sín.“.
33) Ákvæðum II. viðauka er breytt í samræmi við I. viðauka við þessa reglugerð.
34) Ákvæðum IV. viðauka er breytt í samræmi við II. viðauka við þessa reglugerð.
35) Ákvæðum VII. viðauka er breytt í samræmi við III. viðauka við þessa reglugerð.
36) Ákvæðum XIV. viðauka er breytt í samræmi við IV. viðauka við þessa reglugerð.
37) Ákvæðum XVIII. viðauka er breytt í samræmi við V. viðauka við þessa reglugerð.
38) Ákvæðum XXI. viðauka er breytt í samræmi við VI. viðauka við þessa reglugerð.
39) Ákvæðum XXIII. viðauka er breytt í samræmi við VII. viðauka við þessa reglugerð.
40) Viðaukar XXIIIE, XXIIIF og XXIIIG falla brott.
41) Ákvæðum XXIIIH. viðauka er bætt við í samræmi við VIII. viðauka við þessa reglugerð.
42) Ákvæðum XXV. viðauka er breytt í samræmi við IX. viðauka við þessa reglugerð.
43) Ákvæðum XXIX. viðauka er breytt í samræmi við X. viðauka við þessa reglugerð.
44) Ákvæðum XXXIII. viðauka er breytt í samræmi við XI. viðauka við þessa reglugerð.
45) Ákvæðum XXXVII. viðauka er breytt í samræmi við XII. viðauka við þessa reglugerð.
46) Ákvæðum XLII. viðauka er breytt í samræmi við XIII. viðauka við þessa reglugerð.
47) Ákvæðum XLIV. viðauka er breytt í samræmi við XIV. viðauka við þessa reglugerð.
48) Ákvæðum XLV. viðauka er breytt í samræmi við XV. viðauka við þessa reglugerð.
49) Ákvæðum XLVII. viðauka er breytt í samræmi við XVI. viðauka við þessa reglugerð.
50) Ákvæðum LI. viðauka er breytt í samræmi við XVII. viðauka við þessa reglugerð.
51) Ákvæðum LIII. viðauka er breytt í samræmi við XVIII. viðauka við þessa reglugerð.
52) Ákvæðum LIV. viðauka er bætt við í samræmi við XIX. viðauka við þessa reglugerð.
53) Ákvæðum LV. viðauka er bætt við í samræmi við XX. viðauka við þessa reglugerð.
54) Ákvæðum LVI. viðauka er bætt við í samræmi við XXI. viðauka við þessa reglugerð.
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 23. apríl 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. RAOUNA
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/508, 23.4.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/508/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 833/2014 frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/833/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins 2014/512/SSUÖ frá 31. júlí 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu (Stjtíð. ESB L 229, 31.7.2014, bls. 13, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2014/512/oj).
(4) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 269/2014 frá 17. mars um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu (Stjtíð. ESB L 78, 17.3.2014, bls. 6, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2014/269/oj).
(5) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/881 frá 17. apríl 2019 um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA), um netöryggisvottun upplýsinga- og fjarskiptatækni og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 526/2013 (gerð um netöryggi) (Stjtíð. ESB L 151 7.6.2019, bls. 15, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2019/881/oj).“
(6) Reglugerð ráðsins (EB) nr. 2368/2002 frá 20. desember 2002 um framkvæmd á vottunarkerfi Kimberley-ferlisins vegna alþjóðlegra viðskipta með óslípaða demanta (Stjtíð. EB L 358, 31.12.2002, bls. 28, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2002/2368/oj).“
(7) Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/695 frá 28. apríl 2021 um að koma á fót Horizon Europe - rammaáætlun um rannsóknir og nýsköpun, um reglur hennar um þátttöku og miðlun og um niðurfellingu reglugerða (ESB) nr. 1290/2013 og (ESB) nr. 1291/2013 (Stjtíð. ESB L 170, 12.5.2021, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2021/695/oj).“
VIÐAUKI
Viðaukar eru birtir á vef Stjórnartíðinda ESB: https://data.europa.eu/eli/reg/2026/506/oj.
Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur viðaukanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: https://eurlex.europa.eu.
Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér: https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictive-measures-sanctions_en#list.
B deild — Útgáfudagur: 2. september 2026