Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

9. september 2026

Útgáfudagur

23. september 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1023/2026

9. september 2026

REGLUR

um breytingu á reglum fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 97. gr. reglnanna:

  1. Í lok 4. mgr. bætist við nýr málsliður, 3. málsl., svohljóðandi: BS-gráða í hjúkrunarfræði veitir rétt til þess að sækja um starfsleyfi hjúkrunarfræðings.
  2. Fyrsti málsl. 5. mgr. orðast svo: Meistaragráða í hjúkrunarfræði er 90-120 eininga nám og telst ársnám 60 einingar.
  3. 6. mgr. orðast svo: Nám til meistaragráðu í ljósmóðurfræði er 48 eininga nám að loknu 42 eininga kandídatsprófi í ljósmóðurfræði frá hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
  4. Í stað tölunnar „120“ í 1. málsl. 8. mgr. kemur talan: 100.
  5. 10. mgr. orðast svo: Meistarapróf í hjúkrunarfræði er 90 eininga nám að lokinni BS-gráðu í hjúkrunarfræði eða annarri sambærilegri háskólagráðu. Deildin setur nánari reglur um meistarapróf sem háskólaráð staðfestir.

2. gr.

Við reglurnar bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, IV, svohljóðandi:

Ákvæði II. kafla reglna þessara, auk annarra almennra ákvæða sem varða fræðasvið, gilda um Háskóla Íslands á Hólum eftir því sem við á og að teknu tilliti til stöðu hans sem aðildarháskóla, þar til nánari reglur hafa verið settar að fengnu samþykki samstarfsráðs háskólasamstæðunnar.

3. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði Háskóla Íslands með heimild í lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008, og 136. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 9. september 2026.

Silja Bára R. Ómarsdóttir.

Magnús Jökull Sigurjónsson.

B deild — Útgáfudagur: 23. september 2026

Tengd mál