Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ísafjarðarbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

3. október 2024

Útgáfudagur

27. desember 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1621/2024

3. október 2024

GJALDSKRÁ

vegna skipulagsbreytinga og framkvæmdaleyfa í Ísafjarðarbæ.

1. gr. Meginreglur.

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsingu og kynninga vegna málsins. Umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald, vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa sem er 24.350 kr. eða gjald skv. reikningi.

2. gr. Skilgreiningar.

Afgreiðslugjald: gjald sem greitt er við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi og vegna skipulagsbreytinga. Í gjaldinu felst kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu og yfirferð erindisins.

Umsýslu- og auglýsingakostnaður: kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu umsóknar, birtingu auglýsinga og aðra umsýslu.

Breytingarkostnaður: kostnaður sem fellur til innan sveitarfélagsins við gerð nýs deiliskipulags eða breytingar á gildandi aðal- eða deiliskipulagsuppdráttum.

3. gr. Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga.

Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, viðmiðunargjald 430.150 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 152.430 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 137.160 kr.
Afgreiðslugjald vegna aðalskipulagsbreytinga 7.950 kr.

4. gr. Kostnaður vegna deiliskipulags.

Nýtt deiliskipulag.
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 430.150 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 152.430 kr.
Afgreiðslugjald vegna deiliskipulags 7.950 kr.
Verulegar breytingar á deiliskipulagi.
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 276.550 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 152.430 kr.
Afgreiðslugjald vegna deiliskipulagsbreytinga 7.950 kr.
Óverulegar breytingar á deiliskipulagi.
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 184.330 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 107.480 kr.
Afgreiðslugjald vegna deiliskipulagsbreytinga 7.950 kr.

5. gr. Kostnaður vegna grenndarkynningar.

Grenndarkynning 53.740 kr.

6. gr. Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.

Afgreiðslugjald 107.480 kr.
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, viðmiðunargjald 199.700 kr.
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald 107.480 kr.
Framkvæmdaleyfi – minniháttar framkvæmdir 33.710kr.
Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 38.370kr.
Tímagjald, eftirlit umfram það sem er innifalið í framkvæmdaleyfisgjaldi 18.550kr.

7. gr. Önnur gjöld.

Afgreiðslugjöld skipulagsfulltrúa vegna annarra mála en við á samkvæmt 3.-6. gr., enda er tekin ákvörðun um afgreiðslu málsins í skipulags- og mannvirkjanefnd.

Afgreiðslugjald skipulagsfulltrúa 14.670 kr.

8. gr. Gjalddagi.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari falla í gjalddaga við afgreiðslu erindis nema um annað sé samið.

9. gr. Gjaldtökuheimild og breytingar á fjárhæð.

Leyfisgjöldum fylgja lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð þar sem við getur átt og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða réttarsáttar.

Leyfisgjöld eru ekki endurkræf þó leyfi falli úr gildi.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi 1. janúar 2025.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá vegna skipulagsbreytinga og framkvæmdaleyfa í Ísafjarðarbæ nr. 1354/2023.

Samþykkt í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, 3. október 2024.

Bryndís Ósk Jónsdóttir bæjarritari.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2024

Tengd mál