Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
15. ágúst 2025
Útgáfudagur
29. ágúst 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 938/2025
15. ágúst 2025
REGLUR
um upplýsingagjöf vegna starfsemi sjóða yfir landamæri.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, sbr. 1. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
2. gr. Upplýsingagjöf vegna starfsemi yfir landamæri.
Samkvæmt VIII. kafla laga nr. 45/2020 skal rekstraraðili sérhæfðra sjóða, sem hyggst hefja starfsemi yfir landamæri, tilkynna Fjármálaeftirlitinu um það.
Reglur þessar eru settar til að leiða í íslenskan rétt framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem tilgreinir nánar þær upplýsingar sem tilkynna skal til Fjármálaeftirlitsins vegna starfsemi yfir landamæri, form og efni staðfestinga Fjármálaeftirlitsins og verklag við upplýsingaskipti og notkun rafrænna samskipta á milli lögbærra yfirvalda.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/913 frá 15. desember 2023 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB að því er varðar snið og inntak upplýsinganna sem tilkynna skal að því er varðar starfsemi rekstraraðila sérhæfðra sjóða yfir landamæri og skipti á upplýsingum milli lögbærra yfirvalda með tilkynningarbréfum yfir landamæri, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2024 frá 23. september 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 1-22.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 9. tölul. 2. mgr. 117. gr. laga nr. 45/2020, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 15. ágúst 2025.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 29. ágúst 2025