Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

12. janúar 2023

Útgáfudagur

26. janúar 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 42/2023

12. janúar 2023

AUGLÝSING

um álagningu opinberra gjalda á árinu 2023.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 31. maí 2023 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2023. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. janúar 2023.

F. h. r.

Helga Jónsdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2023

Tengd mál