Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Borgarbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Borgarbyggð
Undirritunardagur
18. júní 2026
Útgáfudagur
2. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 747/2026
18. júní 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Borgarbyggð.
Baula, þjónustumiðstöð, nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti nýtt deiliskipulag Baulu, þjónustumiðstöðvar, á fundi sínum 13. maí 2026. Deiliskipulagssvæðið er 20.000 m² með aðkomu út frá Vesturlandsvegi og Borgarfjarðarbraut. Sunnarlega á lóðinni er 406 m² þjónustubygging á einni hæð en heimilt er að stækka hana þannig að byggingarmagn verði að hámarki 2.000 m² á tveimur hæðum auk kjallara.
Innan deiliskipulagsins er heimilt að reka eldsneytis- og þjónustustöð með veitingasölu. Auk þjónustubyggingar er gert ráð fyrir eldsneytisdælum og hraðhleðslustöðvum fyrir bæði fólksbíla og stærri ökutæki ásamt tilheyrandi mannvirkjum, s.s. eldsneytistönkum, sand- og olíuskilju, töfluhúsum og spennistöð. Á svæðinu eru einnig bílastæði, þvottaplan og leiksvæði. Hleðslustöðvar eru innan veghelgunarsvæðis og eru því víkjandi ef Vegagerðin fer fram á að þær verði fjarlægðar.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 18. júní 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Ásgerður Hafsteinsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
B deild — Útgáfudagur: 2. júlí 2026