Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
14. nóvember 2025
Útgáfudagur
28. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1252/2025
14. nóvember 2025
REGLUR
um verðbréfaðar áhættuskuldbindingar fjármálafyrirtækja.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna verðbréfaðra áhættuskuldbindinga í samræmi við 5. kafla, II. bálks þriðja hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Verðbréfaðar áhættuskuldbindingar.
Fjármálafyrirtæki sem skylt er að reikna eiginfjárkröfur vegna verðbréfaðra áhættuskuldbindinga skulu framkvæma útreikningana í samræmi við reglugerð (ESB) nr. 602/2014, sbr. 3. gr.
Um ákvörðun á KIRB í tengslum við undirliggjandi áhættu af verðbréfun fer samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/1780, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir (ESB) hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 602/2014 frá 4. júní 2014 um tæknilega framkvæmdarstaðla til að auðvelda samleitni eftirlitsaðferða að því er varðar framkvæmd viðbótaráhættuvoga samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 81/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 65. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 339-341.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1780 frá 13. mars 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina nánar skilyrðin sem gera stofnunum kleift að reikna KIRB í tengslum við undirliggjandi áhættuskuldbindingar í verðbréfunarviðskiptum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2024 frá 25. október 2024 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 20. febrúar 2025, bls. 24.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð (ESB) 2024/1780 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R1780, birt í OJ deild L, undirdeild R, þann 25. júní 2024.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 44. og 46. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 960/2017, um tæknilega staðla varðandi yfirfærða útlánaáhættu vegna verðbréfunar.
Seðlabanka Íslands, 14. nóvember 2025.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Gísli Óttarsson
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 28. nóvember 2025