Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Gæludýr, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

31. desember 2025

Útgáfudagur

6. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1603/2025

31. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð.

1. gr. Skráningar- og árgjald hunda.

Þeir sem fá heimild til hundahalds, sbr. 5. gr. samþykktar nr. 1294/2024 um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð, skulu greiða þau gjöld sem hér segir:

  Skráningargjald hunds    3.962 kr.
  Árgjald fyrir hundaleyfi 12.188 kr.

Skráningargjald skal greitt við skráningu hunds. Eftir það greiðist árlegt leyfisgjald fyrir að halda hund. Innifalið í skráningargjaldi er auðkennisplata og umsýslugjald sveitarfélagsins. Innifalið í árgjaldi er ormahreinsun og kostnaður sveitarfélagsins við umsýslu og eftirlit.

Undanskildir árgjaldi eru hundar skilgreindir sem leitar-, björgunarsveitar- eða lögregluhundar.

2. gr. Skráningar- og árgjald katta.

Þeir sem fá heimild til kattahalds, sbr. 5. gr. samþykktar nr. 1294/2024 um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð, skulu greiða þau gjöld sem hér segir:

  Skráningargjald kattar 3.962 kr.
  Árgjald fyrir kattaleyfi 7.180 kr.

Skráningargjald skal greitt við skráningu kattar. Eftir það greiðist árlegt leyfisgjald fyrir að halda kött. Innifalið í skráningargjaldi er auðkennisplata og umsýslugjald sveitarfélagsins. Innifalið í árgjaldi er ormahreinsun og kostnaður sveitarfélagsins við umsýslu og eftirlit.

3. gr. Gjald fyrir handsömun hunda.

Gjald fyrir handsömun hunda skv. 12. gr samþykktar nr. 1294/2024 um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð sem teknir eru lausir skal greitt af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausan hund að ræða. Gjaldið er eftirfarandi:

Fyrir handsömun skráðs hunds er 15.480 kr., en 46.440 kr. fyrir óskráðan hund.

Þurfi að vista hund yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð 3.973 kr. fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhringinn. Að auki skal greiða allan útlagðan kostnað Dalvíkurbyggðar vegna hundsins.

Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu, greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

4. gr. Gjald fyrir handsömun katta.

Gjald fyrir handsömun katta skv. 16. gr samþykktar nr. 1294/2024 um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð sem teknir eru lausir skal greitt af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni kattar sé um leyfislausan kött að ræða. Gjaldið er eftirfarandi:

Fyrir handsömun kattar 7.740 kr.

Þurfi að vista kött yfir nótt skal greiða vörslugjald að fjárhæð 3.973 kr. fyrir hvern dag umfram fyrsta sólarhringinn. Að auki skal greiða allan útlagðan kostnað Dalvíkurbyggðar vegna kattarins.

Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu, greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.

5. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð nr. 1294/2024, var samþykkt í umhverfis- og dreifbýlisráði Dalvíkurbyggðar 5. september 2025 og í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. nóvember 2025, öðlast þegar gildi og fellur þá úr gildi gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Dalvíkurbyggð nr. 1660/2024. 

Dalvíkurbyggð, 31. desember 2025.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. janúar 2026

Tengd mál