Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
15. maí 2026
Útgáfudagur
1. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 616/2026
15. maí 2026
REGLUR
um breytingu á reglum um meistanám við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, nr. 60/2019.
1. gr.
Á eftir b-lið I. kafla 6. gr. reglnanna bætist við nýr stafliður, c-liður, svohljóðandi:
Ef umsækjandi um nám á meistarastigi hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
2. gr.
Á eftir b-lið II. kafla 6. gr. reglnanna bætist við nýr stafliður, c-liður, svohljóðandi:
Ef umsækjandi um meistaranám hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
3. gr.
Orðin „M-námskeiðum úr sálfræðideild og“ í 2. mgr. a-liðar III. kafla 7. gr. reglnanna falla brott.
4. gr.
Reglur þessar eru settar af háskólaráði Háskóla Íslands með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, sbr. 47. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 569/2009, og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 15. maí 2026.
Silja Bára R. Ómarsdóttir.
Magnús Jökull Sigurjónsson.
B deild — Útgáfudagur: 1. júní 2026