Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
11. ágúst 2026
Útgáfudagur
12. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 888/2026
11. ágúst 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2024.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
3.36 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1866 frá 30. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, sbr. fylgiskjal 3.36.
4.35 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1867 frá 30. júlí 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010, sbr. fylgiskjal 4.35.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 11. ágúst 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild — Útgáfudagur: 12. ágúst 2026
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/1866
frá 30. júlí 2026
um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 26. júlí 2010 samþykkti ráðið ákvörðun 2010/413/SSUÖ (1).
2) Rétt þykir að innleiða undanþágu frá banni við afhendingu, sölu eða tilflutningi á tilteknum vörum og hugbúnaði til að heimila notkun í Íran á vörum og hugbúnaði sem eru nauðsynleg í sérstökum tilgangi, einkum við vinnslu á umsóknum um vegabréfsáritanir, fyrir sendiskrifstofur Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þar á meðal sendinefndir, sendiráð og fastanefndir.
3) Því ætti að breyta ákvörðun 2010/413/SSUÖ til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 3. gr. ákvörðunar 2010/413/SSUÖ:
1) Í stað 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Þær ráðstafanir sem eru innleiddar með a-, b- og c-lið 1. mgr. 1. gr. og 3. mgr. 1. gr. gilda ekki, eftir því sem við á, ákveði nefndin fyrir fram og í hverju tilviki fyrir sig að slík afhending, sala, tilflutningur eða útvegun slíkra hluta eða aðstoðar myndi greinilega ekki stuðla að þróun Írans á tækni sem ýtir undir kjarnorkustarfsemi sem gæti leitt til útbreiðslu kjarnavopna og þróunar burðarkerfa fyrir kjarnavopn, þ.m.t. þegar fyrrnefndir hlutir eða aðstoð eru vegna matvæla, landbúnaðar, lækninga eða annarra mannúðarmála, varða vörur og tækni með tvíþætt notagildi eins og skráð er í I. viðauka við reglugerð ráðsins (ESB) nr. 267/2012“ (2), eða varða veitingu tækni- eða fjárhagsaðstoðar sem tengist vörum og tækni sem skráð eru í þeim viðauka og, með fyrirvara um kröfur um heimild sem settar eru fram í reglugerð (ESB) 2021/821, eru nauðsynleg í opinberum tilgangi fyrir sendiskrifstofur Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þar á meðal sendinefndir, sendiráð og fastanefndir, að því tilskildu að:
a) samningar um afhendingu fyrrnefndra hluta eða aðstoðar feli í sér viðeigandi tryggingar fyrir því um hvaða endanlega notendur er að ræða og
b) Íran hafi skuldbundið sig til þess að nota ekki slíka hluti til að ýta undir kjarnorkustarfsemi sem gæti leitt til útbreiðslu kjarnavopna eða þróunar burðarkerfa fyrir kjarnavopn.
2) Eftirfarandi málsgrein er bætt við:
„3. Þær ráðstafanir sem innleiddar eru með e-lið 1. mgr. 1. gr. og 3. mgr. 1. gr. gilda ekki ákveði lögbært stjórnvald í viðkomandi aðildarríki fyrir fram og í hverju tilviki fyrir sig að slík afhending, sala, tilflutningur eða útvegun slíkra hluta eða aðstoðar varði vörur og tækni með tvíþætt notagildi, eins og skráð er í I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 267/2012, eða veitingu tækni- eða fjárhagsaðstoðar sem tengist vörum og tækni sem skráð eru í þeim viðauka og, með fyrirvara um kröfur um heimild sem settar eru fram í reglugerð (ESB) 2021/821, eru nauðsynleg í sérstökum tilgangi fyrir sendiskrifstofur Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þar á meðal sendinefndir, sendiráð og fastanefndir.
Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni, innan fjögurra vikna, um undanþágur sem eru veittar samkvæmt þessari málsgrein.“
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Brussel 30. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. BYRNE
(1) Ákvörðun ráðsins 2010/413/SSUÖ frá 26. júlí 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2007/140/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 195, 27.7.2010, bls. 39, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2010/413/oj).
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 267/2012 frá 23. mars 2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010 (Stjtíð. ESB L 88, 24.3.2012, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2012/267/oj).
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1867
frá 30. júlí 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir
gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1866 frá 30. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 26. júlí 2010 samþykkti ráðið ákvörðun 2010/413/SSUÖ (2) og 23. mars 2012 samþykkti ráðið reglugerð (ESB) nr. 267/2012 (3) um þvingunaraðgerðir gegn Íran.
2) Hinn 29. september 2025 samþykkti ráðið, í kjölfar endurupptöku refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna gagnvart Íran sem tengjast kjarnorkumálum í samræmi við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2231 (2015), ákvörðun (SSUÖ) 2025/1972 (4) sem breytti ákvörðun 2010/413/SSUÖ og kvað á um endurupptöku allra refsiaðgerða Sambandsins gagnvart Íran sem tengjast kjarnorkumálum, sem höfðu verið stöðvaðar tímabundið eða hætt samkvæmt sameiginlegu heildaráætluninni um framkvæmd.
3) Hinn 30. júlí 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/1866 en með henni er innleidd undanþága vegna útflutnings, tilflutnings, sölu eða afhendingar á tilteknum vörum og hugbúnaði til notkunar í Íran á vörum og hugbúnaði sem eru nauðsynleg í sérstökum tilgangi, einkum við vinnslu á umsóknum um vegabréfsáritanir, fyrir sendiskrifstofur Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þar á meðal sendinefndir, sendiráð og fastanefndir.
4) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) nr. 267/2012.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Í stað 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 267/2012 kemur eftirfarandi:
„7. gr.
1. Lögbær stjórnvöld geta, með fyrirvara um 1. gr. b í reglugerð (ESB) nr. 359/2011, veitt heimild, með þeim skilyrðum og skilmálum sem þau telja viðeigandi, fyrir viðskiptum sem um getur í 1. mgr. 2. gr. eða aðstoð eða miðlunarþjónustu sem um getur í 1. mgr. 5. gr. þessarar reglugerðar, að því tilskildu að viðkomandi vörur og tækni, aðstoð eða miðlunarþjónusta:
a) séu vegna matvæla, landbúnaðar, lækninga eða annarra mannúðarmála eða
b) varði vörur og tækni með tvíþætt notagildi, eins og skráð er í I. viðauka, eða veitingu tækni- eða fjárhagsaðstoðar sem tengist vörum og tækni á skrá í I. viðauka, sem eru nauðsynlegar í opinberum tilgangi fyrir sendiskrifstofur Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þar á meðal sendinefndir, sendiráð og fastanefndir.
1a. Aðeins má veita undanþágu skv. 1. mgr.:
a) hafi framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir, í þeim tilvikum þar sem viðskiptin varða vörur eða tækni á skrám kjarnbirgjahópsins (e. Nuclear Suppliers Group) eða eftirlitskerfisins með flugskeytatækni (e. Missile Technology Control Regime), ákvarðað fyrir fram og í hverju tilviki fyrir sig að viðskiptin myndu greinilega ekki stuðla að þróun Írans á tækni sem ýtir undir kjarnorkustarfsemi sem gæti leitt til útbreiðslu kjarnavopna og þróunar burðarkerfa fyrir kjarnavopn og
b) að því er varðar vörur og tækni með tvíþætt notagildi sem falla undir reglugerð (ESB) 2021/821, með fyrirvara um kröfur um heimildir sem settar eru fram í þeirri reglugerð.
2. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni, innan fjögurra vikna, um allar heimildir sem eru veittar samkvæmt þessari grein.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 30. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
T. BYRNE
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/1866, 31.7.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1866/oj.
(2) Ákvörðun ráðsins 2010/413/SSUÖ frá 26. júlí 2010 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og niðurfellingu sameiginlegrar afstöðu 2007/140/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 195, 27.7.2010, bls. 39, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2010/413/oj.
(3) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 267/2012 frá 23. mars 2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010 (Stjtíð. ESB L 88, 24.3.2012, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2012/267/oj.
(4) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/1972 frá 29. september 2025 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran (Stjtíð. ESB L, 2025/1972, 29.9.2025, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2025/1972/oj).