Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innanríkisráðuneytið (2011-2017)

Málaflokkur

Reykjavík, Umferðarmál

Undirritunardagur

19. apríl 2013

Útgáfudagur

23. maí 2013

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 486/2013

19. apríl 2013

REGLUR

um heimild Bílastæðasjóðs Reykjavíkur til brottflutnings ökutækja sem lagt hefur verið í bága við umferðarlög innan marka Reykjavíkurborgar.

1. gr.

Reglur þessar gilda um brottflutning ökutækja í Reykjavík sem lagt hefur verið í bága við ákvæði 27.-28. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 110. gr. sömu laga.

2. gr.

Bílastæðasjóður Reykjavíkur hefur heimild til brottflutnings ökutækja sem lagt hefur verið innan marka Reykjavíkurborgar í bága við ákvæði 27.-28. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 110. gr. sömu laga, og til að annast að öðru leyti framkvæmd ákvæða 1.-5. mgr. 110. gr. laganna.

3. gr.

Stöðuvörður skal, skv. nánari reglum þar um, tilkynna varðstjóra Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um ökutæki sem lagt hefur verið þannig að brjóti í bága við ákvæði um stöðvun og lagningu ökutækja, sbr. 27.-28. gr. og 1. mgr. 108. gr. laga nr. 50/1987.

4. gr.

Stöðuvörður skal tilkynna varðstjóra um ökutæki skv. 1. mgr. í eftirfarandi tilvikum:

  1. Ökutæki sem er lagt þannig að valdi hættu, t.d. með því að teppa alveg eða nær alveg gangstétt, gangstíg eða svipaðan stað eða þannig að byrgi sýn annarra vegfarenda.
  2. Ökutæki hefur staðið lengur en í 5 daga hreyfingarlaust á gjaldsvæði og fengið á sig aukastöðugjöld á þeim tíma.
  3. Ökutæki hefur staðið lengur en í 2 daga hreyfingarlaust á stöðubroti og fengið á sig stöðubrotsgjald á þeim tíma.
  4. Ökutæki hefur staðið lengur en í 1 dag hreyfingarlaust í stæði fatlaðra og fengið á sig stöðubrotsgjald á þeim tíma.

5. gr.

Varðstjóra er heimilt að óska eftir brottflutningi ökutækis sem stendur í samræmi við a-, b-, c- eða d-lið 4. gr. Ef ökutæki er lagt skv. a-lið skal óska brottflutnings án tafar.

6. gr.

Verði af brottflutningi skal ökutæki fært til geymslu á tryggan stað. Geymsla ökutækisins er á ábyrgð eiganda. Um framkvæmd brottflutnings gilda að öðru leyti ákvæði 2. mgr. 110. gr. laga nr. 50/1987.

7. gr.

Varðstjóri skal tilkynna lögreglu sem og eiganda ökutækis um flutninginn og skal þar koma fram hvenær flutningur átti sér stað og hvert ökutækið var flutt. Í tilkynningu til eiganda skal jafnframt tilgreint hvernig fer með ökutækið verði það ekki sótt og kostnaður greiddur, sbr. 2. og 4. mgr. 110. gr. laga nr. 50/1987.

8. gr.

Reglur þessar eru settar með heimild í 6. mgr. 110. gr. laga nr. 50/1987 og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 19. apríl 2013.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 23. maí 2013

Tengd mál