Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
15. mars 2013
Útgáfudagur
5. apríl 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 308/2013
15. mars 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.
1. gr.
Á eftir II. lið 1. gr. bætist við nýr liður, III. liður, svohljóðandi:
III. Inntaka nemenda í meistaranám í þjóðfræði.
Fjöldi nýrra nemenda í MA námi í þjóðfræði takmarkast við töluna 15.
Ef þeir sem sækja um að hefja námið og uppfylla inntökuskilyrði eru fleiri en unnt er að taka inn mun val nemenda byggjast á eftirfarandi sjónarmiðum:
- Einkunnum í háskóla. Við mat á umsóknum verður horft, auk meðaleinkunnar, til einkunnar í völdum námskeiðum sem gefa vísbendingu um frammistöðu í MA námi í þjóðfræði.
- Lokaverkefnum (einkunn og umsögn ef henni er til að dreifa).
- Persónulegum greinargerðum í umsókn um forsendur og áhugasvið.
- Meðmælum.
- Viðtölum (ef þörf krefur).
2. gr.
Í stað orðanna „I. og II. lið“ í 1. málsl. síðustu málsgreinar 1. gr., um inntökunefnd, kemur: I. – III. lið.
3. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu félagsvísindasviðs, gilda frá og með háskólaárinu 2013-2014 og eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.
Háskóla Íslands, 15. mars 2013.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 5. apríl 2013