Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstofnanir, Þjóðskrá

Undirritunardagur

5. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1501/2025

5. desember 2025

GJALDSKRÁ

Þjóðskrár Íslands.

I. KAFLI

1. gr.

Öll afhending, miðlun og notkun upplýsinga úr skrám Þjóðskrár Íslands er leyfisskyld og háð samþykki stofnunarinnar.

II. KAFLIGjald fyrir upplýsingar úr Þjóðskrá.

2. gr. Samsetning gjalds.

Auk gjalds fyrir aðgang að upplýsingum skv. 3. gr. skal greiða einingaverð og árgjald eftir því sem við á, sbr. 4. og 6. gr.

3. gr. Aðgangur að upplýsingum úr þjóðskrá.

Greiða skal árgjald fyrir afhendingu upplýsinga úr þjóðskrá:

  Gjald fyrir starfsstöð, kr. Gjald fyrir
útibú, kr.
I. Grunnskrá þjóðskrár:    
  Grunnskrá 157.000 40.500
  Grunnskrá með viðbótarupplýsingum A 189.000 40.500
  Grunnskrá með viðbótarupplýsingum B 315.000 40.500
II. Aðrar skrár þjóðskrár:  
  Horfinnaskrá 1 40.100 36.000
  Horfinnaskrá 2 60.000 36.000
  Horfinnaskrá 3 149.400 36.000
  Kerfiskennitöluskrá 1 20.200 10.300
  Kerfiskennitöluskrá 2 33.900 10.300

Grunngjald er greitt fyrir aðalstarfsstöð. Ef notandi hefur fleiri starfsstöðvar, greiðist aukalega útibúsgjald fyrir hverja þeirra. Ef rekstur fer fram innan starfsstöðvar sem er skráð undir annarri kennitölu en aðalstarfsstöðin, skal einnig greiða útibúsgjald fyrir þá starfsstöð. Ef rekstur sem er skráður undir annarri kennitölu fer fram utan aðalstarfsstöðvar, skal greiða sérstakt árgjald fyrir þá starfsemi.

4. gr. Úrtök og vinnslur úr þjóðskrá.

Vinnsla úrtaks úr þjóðskrá er háð leyfi Þjóðskrár Íslands. Gjald fyrir rafræn afnot af nafnaskrá þjóðskrár til vinnslu úrtaksgagna og til póstdreifingar er sem hér segir:

Afsláttur er veittur eftir stærð úrtaks og reiknast þegar tiltekinni stærð úrtaks er náð, sbr. eftirfarandi töflu, en ekki er greitt einingaverð fyrir fleiri en 100.000 einstaklinga.

  Upphafsgjald,
kr.
Grunnskrá,
kr.
Viðbót A,
kr.
Upphafsgjald (innifalið allt að 500 nöfn) 14.900    
Einingaverð 501 – 10.000   13,0 18,5
Einingaverð 10.001 – 30.000   7,5 11,0
Einingaverð 30.001 – 50.000   6,0 9,0
Einingaverð 50.001 – 100.000   5,0 7,0

5. gr. Einingaverð fyrir upplýsingar.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr þjóðskrá er sem hér segir:

Einingaverð fyrir upplýsingar úr grunnskrá kr. 14
Einingaverð fyrir upplýsingar úr grunnskrá ásamt viðbótarupplýsingum A kr. 19
Einingaverð fyrir upplýsingar úr grunnskrá ásamt viðbótarupplýsingum B kr. 24
Einingaverð fyrir upplýsingar úr horfinnaskrá kr. 19
Einingaverð fyrir upplýsingar úr kerfiskennitöluskrá kr. 19
Einingaverð fyrir staka uppflettingu forsjárupplýsinga kr. 25
Einingaverð fyrir staka uppflettingu um vensl einstaklinga kr. 25

III. KAFLIÝmis ákvæði.

6. gr. Sérvinnslur.

Öll sérvinnsla sérfræðinga hjá Þjóðskrá Íslands er gjaldskyld. Lágmarksverð er 19.100 kr.

Vinna umfram 1 klst. er greidd samkvæmt 7. gr.

Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum skal gera um það skriflegan samning við stofnunina þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir en greitt er fyrir hverja afhendingu.

Fjöldi afhendinga á almanaksári Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar
1 afhending á ári 100% gjald fyrir 1. afhendingu
2-4 afhendingar á ári 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2.-4. afhendingu
Fleiri en 5 afhendingar 50% afsláttur af gjaldi fyrir afhendingar umfram 5

7. gr. Tímavinna.

Tímagjald almenns starfsmanns pr. klst. kr. 13.100
Tímagjald sérfræðings pr. klst. kr. 19.100

Fyrir útkall eftir almennan opnunartíma er innheimt að lágmarki 4 tímar á taxta almenns starfsmanns.

8. gr. Vottorð, uppfletting og ljósrit.

Gjald fyrir vottorð, uppflettingu í skrám, ljósrit o.fl. er sem hér segir:

Vottorð sem krefjast sérvinnslu:

Tímagjald samkvæmt 7. og 8. gr.

Vottorð úr þjóðskrá kr. 3.200
Söguvottorð úr þjóðskrá kr. 12.500
Stök uppfletting í þjóðskrá kr. 840
Ljósrit pr. bls. kr. 23
Staðfest ljósrit úr skrám kr. 840

9. gr. Skilríki.

Nafnskírteini, 18-66 ára kr. 9.200
Nafnskírteini, börn, aldraðir, öryrkjar kr. 4.600
Hraðafgreiðsla nafnskírteina, 18-66 ára kr. 18.400
Hraðafgreiðsla nafnskírteini, börn, aldraðir, öryrkjar kr. 9.200

10. gr. Miðlun upplýsinga úr skrám Þjóðskrár Íslands.

Miðlun upplýsinga úr skrám Þjóðskrár Íslands er óheimil nema fyrir liggi samningur um miðlun. Með miðlun upplýsinga er átt við miðlun til þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt II. og III. kafla eftir því sem við á.

Árgjald miðlara kr. 457.800

11. gr. Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Þjóðskrár Íslands.

Vinnsla með persónuupplýsingar úr skrám Þjóðskrár Íslands fyrir hönd þriðja aðila er óheimil nema fyrir liggi samningur um slíka vinnslu. Átt er við hvers kyns tölfræðivinnslu, úrtaksvinnslu eða aðra vinnslu fyrir þriðja aðila hvort sem hún fer fram gegn gjaldi (endursala) eða ekki. Auk árgjalds er greitt fyrir upplýsingarnar samkvæmt II. og III. kafla eftir því sem við á.

Árgjald vinnsluaðila kr. 65.000

12. gr. Undanþágur frá gjaldskrá.

Þjóðskrá Íslands er heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:

  1. Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms.
  2. Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum.
  3. Fjölmiðlum ef upplýsingar varða heildarfjölda eða summutölur úr skrám.
  4. Skráningaraðilum sem annast skráningu í skrár Þjóðskrár Íslands.

13. gr. Lagaheimild og gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 5. gr. laga um Þjóðskrá Íslands nr. 70/2018, 1. mgr. 19. gr. laga um skráningu einstaklinga nr. 140/2019 og laga um nafnskírteini nr. 55/2023 og tekur gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1492/2024 um sama efni.

Dómsmálaráðuneytinu, 5. desember 2025.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Bryndís Helgadóttir.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál