Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Umferðarmál

Undirritunardagur

29. júní 2026

Útgáfudagur

29. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 730/2026

29. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna afnáms B-faggildingar.

I. KAFLIBreyting á reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna,
notkun ökurita og eftirlit nr. 605/2010.

1. gr.

Í stað orðanna „30. júní 2026“ í ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina kemur: 1. janúar 2027.

II. KAFLI Breyting á reglugerð um prófun á ökuritum nr. 572/1995.

2. gr.

Í stað orðanna „30. júní 2026“ í ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina kemur: 1. janúar 2027.

III. KAFLIBreyting á reglugerð um frágang á hraðatakmarkara í bifreið nr. 71/1998.

3. gr.

Í stað orðanna „30. júní 2026“ í ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina kemur: 1. janúar 2027.

IV. KAFLI Breyting á reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021.

4. gr.

Í stað orðanna „30. júní 2026“ í ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina kemur: 1. janúar 2027.

V. KAFLI Gildistaka.

5. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54., 69. og 74. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 29. júní 2026.

Ragnar Þór Ingólfsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 29. júní 2026

Tengd mál