REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1891
frá 30. júlí 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir
í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu
og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á
Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan
frelsi til siglinga í Austurlöndum nær
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1892 frá 30. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 20. júlí 2023 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 (2) og reglugerð (ESB) 2023/1529 (3) um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu.
2) Hinn 14. maí 2024 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2024/1336 (4) sem breytti ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 og víkkaði út gildissvið þvingunaraðgerðanna þannig að það næði yfir aðila sem láta í té, selja eða koma á annan hátt að tilflutningi á ómönnuðum loftförum eða flugskeytum Írana, eða tengdri tækni eða íhlutum, til vopnaðra hópa og rekstrareininga sem grafa undan friði og öryggi í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu eða brjóta í bága við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015).
3) Í ljósi alvarleika ástandsins og til að bregðast við aðgerðum Írans sem grafa undan frelsi til siglinga, þ.m.t. réttinum til gegnumferðar og til friðsamlegrar ferðar, í Austurlöndum nær, samþykkti ráðið, 22. maí 2026, ákvörðun (SSUÖ) 2026/1157 (5) sem breytti ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 til að innleiða frekari þvingunaraðgerðir að því er varðar Íran og breyta titli þeirrar ákvörðunar.
4) Hinn 30. júlí 2026 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2026/1892, en með henni er innleidd undanþága frá banni við afhendingu, sölu, tilflutningi eða útflutningi á tilteknum vörum og hugbúnaði til að heimila notkun í Íran á vörum og hugbúnaði sem eru nauðsynleg í sérstökum tilgangi, einkum við vinnslu á umsóknum um vegabréfsáritanir, fyrir sendiskrifstofur Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þ.m.t. sendinefndir, sendiráð og fastanefndir.
5) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) 2023/1529.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Í stað 3. mgr. 2. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1529 kemur eftirfarandi:
„3. Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. þessarar greinar og með fyrirvara um kröfur varðandi heimildir sem settar eru fram í reglugerð (ESB) 2021/821, eftir atvikum, geta lögbær stjórnvöld heimilað sölu, afhendingu, tilflutning, umflutning eða útflutning vara og tækni, er um getur í 1. mgr., eða veitingu tengdrar tækni- eða fjárhagsaðstoðar til annarra nota en hernaðarlegra nota og til endanlegs notanda á öðru sviði en hernaðarlegu, eftir að hafa ákvarðað að slíkar vörur eða tækni eða tengd tækni- eða fjárhagsaðstoð sé nauðsynleg:
a) vegna lækninga eða lyfja eða
b) í mannúðarskyni, vegna neyðarástands í heilbrigðismálum, til að koma án tafar í veg fyrir eða milda atburð sem líklegt má telja að hafi alvarleg og veruleg áhrif á heilbrigði og öryggi manna eða á umhverfið eða til að bregðast við náttúruhamförum eða
c) í opinberum tilgangi sendiskrifstofa Sambandsins og aðildarríkjanna í Íran, þ.m.t. sendinefndir, sendiráð og fastanefndir.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 30. júlí 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti.
T. BYRNE
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/1892, 31.7.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1892/oj.
(2) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær (Stjtíð. ESB L 186, 25.7.2023, bls. 20, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2023/1532/oj).
(3) Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/1529 frá 20. júlí 2023 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær (Stjtíð. ESB L 186, 25.7.2023, bls. 1, ELI: https://data.europa.eu/eli/reg/2023/1529/oj).
(4) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1336 frá 14. maí 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu (Stjtíð. ESB L, 2024/1336, 15.5.2024, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2024/1336/oj).
(5) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1157 frá 22. maí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu (Stjtíð. ESB L, 2026/1157, 26.5.2026, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2026/1157/oj).