Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Launamál, Jafnréttismál
Undirritunardagur
10. september 2026
Útgáfudagur
11. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 979/2026
10. september 2026
REGLUGERÐ
um brottfall reglugerða á sviði jafnréttismála.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerðir falla brott:
- Reglugerð um framkvæmd jafnlaunastaðfestingar og eftirlit Jafnréttisstofu, nr. 303/2021, sem sett var með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
- Reglugerð um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85, nr. 1030/2017, sem var sett með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, sem og skv. lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.
- Reglugerð um beitingu dagsekta sem Jafnréttisstofa ákveður, nr. 933/2019, sem sett var með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008.
- Reglugerð um starfsemi Jafnréttisstofu, nr. 47/2003, sem sett var með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 33. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, eins og þeim var breytt með lögum um skýrslugjöf um kynbundinn launamun, nr. 53/2026, og 15. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020.
Dómsmálaráðuneytinu, 10. september 2026.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Páll Winkel.
B deild — Útgáfudagur: 11. september 2026