Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Barðastrandarsýslur
Undirritunardagur
16. apríl 2026
Útgáfudagur
4. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 431/2026
16. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis að Bjarkalundi.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 16. apríl 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2022-2034, sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. febrúar 2026.
Í breytingunni felst heimild til uppbyggingar allt að 25 gestahúsa og fjölgun gistirúma á svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ10 að Bjarkalundi. Heildarfjöldi gistirúma verður allt að 110 að frátöldum gestum tjaldsvæðis.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. 16. apríl 2026.
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 4. maí 2026