Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Sorphreinsun, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

31. desember 2025

Útgáfudagur

6. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1604/2025

31. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu í Dalvíkurbyggð.

1. gr.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur ákveðið, sbr. 8. gr. samþykktar nr. 541/2000 um sorphirðu sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, að leggja á árlegt sorphirðugjald í sveitarfélaginu eins og nánar er kveðið á um í gjaldskrá þessari.

Gjöldunum er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu, alla meðhöndlun og förgun úrgangs, ásamt kostnaði við rekstur móttöku- og grenndarstöðva.

2. gr.

Sorphirðugjald er lagt á hverja íbúð í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar og er það innheimt með fasteignagjöldum með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Sorphirðugjaldið skiptist í fast gjald annars vegar og tunnugjald hins vegar. Frístundahús greiða einungis fast gjald sem innheimt er með sama hætti. Fasta gjaldinu er ætlað að standa straum af sameiginlegum kostnaði við sorphirðuna en tunnugjaldinu að standa undir kostnaði fyrir þjónustu við tæmingu á tunnum við heimahús.

Þá er sérstakt gjald fyrir eyðingu á dýraleifum lagt á þá búfjáreigendur sem eru með skráðan bústofn samkvæmt búfjárskýrslum. Gjaldið tekur mið af því að það standi undir kostnaði við förgunina.

Íbúar geta komið flokkuðum úrgangi úr eftirfarandi úrgangsflokkum endurgjaldslaust til skila á söfnunarstöð við Sandskeið:

Pappír og pappi.

Fernur.

Lífrænn úrgangur.

Plast.

Gler og postulín.

Málmar.

Timbur.

Raftæki.

Spilliefni.

Á grenndarstöðvar verður hægt að koma litlu magni af flokkuðum úrgangi úr eftirfarandi úrgangsflokkum endurgjaldslaust til skila:

Pappír og pappi.

Fernur.

Lífrænn úrgangur.

Plast.

Gler og postulín.

Málmar.

3. gr.

Sorphirðugjaldið og fyrirkomulag móttöku á gámasvæði á Dalvík er sem hér greinir:

  1. Íbúðir, sorphirðugjald, 76.190 kr. sem skiptist í fast gjald 36.281 kr. og tunnugjald 39.909 kr.
  2. Frístundahús, fast gjald 36.281 kr.

4. gr.

Úrvinnslugjald fyrir eyðingu dýraleifa er lagt á heildarfjölda hverrar búfjártegundar samkvæmt búfjáreftirlitsskýrslu og er eftirfarandi:

Nautgripir 1.576 kr./grip Sauðfé og geitfé 289 kr./grip
Hross 618 kr./grip Grísir 1.024 kr./grip

5. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 18. nóvember 2025, samanber 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi, um leið fellur gjaldskrá um sorphirðu í Dalvíkurbyggð nr. 1659/2024 úr gildi.

Samþykkt á fundi byggðarráðs Dalvíkurbyggðar 6. nóvember 2025.

Dalvíkurbyggð, 31. desember 2025.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. janúar 2026

Tengd mál