Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Bláskógabyggð
Undirritunardagur
23. september 2026
Útgáfudagur
8. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1069/2026
23. september 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Bergsstaðir, L189399, hækkuð mænishæð.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir Bergsstaði, L189399. Í breytingunni felst að mestu leyfilegu mænishæð er breytt úr 6,0 m í 7,5 m.
Samþykkt í sveitarstjórn 19. ágúst 2026.
Deiliskipulagsbreyting, Einiholt 3, L192608, byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi, sem tekur til Einiholts 3, L192608. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar.
Samþykkt í sveitarstjórn 19. ágúst 2026.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 23. september 2026.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Sigríður Kristjánsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. október 2026