Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
21. júlí 2026
Útgáfudagur
7. ágúst 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 881/2026
21. júlí 2026
REGLUR
um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu, nr. 20/2021, hvað varðar:
- Útreikning atkvæðisréttar í veltubók skv. 24. og 25. gr. laganna.
- Sameiginlegt rafrænt skýrslusnið skv. 6. gr. laganna.
- Útreikning atkvæðisréttar skv. 12. og 14. gr. laganna.
- Aðgengi að upplýsingum skv. 35. og 36. gr. laganna.
2. gr. Tilvísanir.
5% viðmiðunarmörk: Tilvísanir í reglum þessum til viðmiðunarmarka í 5. og 6. mgr. 9. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til viðmiðunarmarka í 24. og 25. gr. laga nr. 20/2021.
Atkvæðaréttur skv. a-lið 1. mgr. a í 13. gr. tilskipunar 2004/109/EB: Tilvísanir í reglum þessum til atkvæðaréttar skv. a-lið 1. mgr. a. í 13. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísun til atkvæðaréttar skv. a-lið 1. mgr. 14. gr. laga nr. 20/2021, sbr. a- og d–h-liði 2. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Atkvæðaréttur skv. b-lið 1. mgr. a í 13. gr. tilskipunar 2004/109/EB: Tilvísanir í reglum þessum til atkvæðaréttar skv. b-lið 1. mgr. a í 13. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til atkvæðaréttar skv. b-lið 1. mgr. 14. gr. laga nr. 20/2021, sbr. a- og d–h-liði 2. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laga nr. 115/2021.
Árleg reikningsskil og endurskoðunarskýrslur: Tilvísanir í reglum þessum til upplýsinga skv. 4. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til upplýsinga skv. 6. og 10. gr. laga nr. 20/2021.
Breytingar á réttindum tengdum flokkum hlutabréfa eða verðbréfa: Tilvísanir í reglum þessum til upplýsinga skv. 16. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til upplýsinga skv. 31. gr. laga nr. 20/2021.
Geymsla í miðlægu geymslukerfi og aðgengi: Tilvísanir í reglum þessum til geymslu í miðlægu geymslukerfi og aðgengis skv. 1. mgr. 21. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til miðlægrar varðveislu og aðgengis skv. 35. og 36. gr. laga nr. 20/2021.
Greiðslur til stjórnvalda: Tilvísanir í reglum þessum til upplýsinga skv. 6. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til upplýsinga skv. 9. gr. laga nr. 20/2021.
Hálfsársreikningsskil og endurskoðunarskýrslur eða takmarkaðar endurskoðanir: Tilvísanir í reglum þessum til allra upplýsinga skv. 5. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til upplýsinga skv. 7. og 10. gr. laga nr. 20/2021.
Heimaaðildarríki útgefanda: Tilvísanir í reglum þessum til heimaaðildarríkis útgefanda í i-lið 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til heimaríkis skv. 5. gr. laga nr. 20/2021.
Heildarmagn atkvæðaréttar og hlutafjár: Tilvísanir í reglum þessum til 15. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til 19. gr. laga nr. 20/2021.
Innherjaupplýsingar: Tilvísanir í reglum þessum til innherjaupplýsinga skv. 6. gr. tilskipunar 2003/6/EB skal skilja sem tilvísanir til innherjaupplýsinga skv. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Kaup eða sala á eigin hlutabréfum útgefanda: Tilvísanir í reglum þessum til upplýsinga skv. 14. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til upplýsinga skv. 29. gr. laga nr. 20/2021.
Rafrænt skýrslusnið: Tilvísanir í reglum þessum til rafræns skýrslusniðs skv. 7. mgr. 4. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til rafræns skýrslusniðs skv. 6. gr. laga nr. 20/2021.
Samsöfnun eignarhluta: Tilvísanir í reglum þessum til 9., 10. og 13. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til 12., 13., 14., 23., 24., 25. og 26. gr. laga nr. 20/2021.
Samsöfnun eignarhluta í samstæðu: Tilvísanir í reglum þessum til e-liðar 10. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til e-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 20/2021.
Tilkynningar sem varða atkvæðisrétt: Tilvísanir í reglum þessum til upplýsinga skv. 12. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til upplýsinga skv. 16., 20., 21., 22., 27. og 28. gr. laga nr. 20/2021.
Undanþága vegna viðskipta í þágu viðskiptavina: Tilvísanir í reglum þessum til 6. mgr. 9. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til 24. gr. laga nr. 20/2021.
Viðmiðunarmörk flöggunarskyldu: Tilvísanir í reglum þessum til 1. mgr. 9. gr. tilskipunar 2004/109/EB skal skilja sem tilvísanir til 1. og 3. mgr. 12. gr. laga nr. 20/2021.
3. gr. Sameiginlegt rafrænt skýrslusnið.
Ársreikningar skulu birtir á sameiginlegu rafrænu skýrslusniði í samræmi við ákvæði þessarar greinar og greina 4-6. Útgefendur skulu útbúa ársreikninga sína á XHTML-sniði.
Kjarnategundaröð (e. core taxonomy) merkir samsett safn af tegundaraðareiningum (e. taxonomy elements) sem sett eru fram í viðauka VI við reglugerð (ESB) 2019/815 og eftirfarandi tenglasafni:
- Birtingartenglagrunni (e. presentation linkbase) sem lýsir stigveldi tegundaraðareininga.
- Útreikningatenglagrunni (e. calculation linkbase) sem lýsir stærðfræðilegu sambandi milli tegundaraðareininga.
- Kennimerkjatenglagrunni (e. label linkbase) sem lýsir merkingu allra tegundaraðareininga.
- Skilgreiningartenglagrunni (e. definition linkbase) sem endurspeglar víddarsamband milli tegundaraðareininga.
Útvíkkuð tegundaröðun (e. extension taxonomy) merkir samsett safn af tegundaraðareiningum (e. taxonomy elements) og eftirfarandi tenglasafni sem bæði eru stofnuð af útgefandanum:
- Birtingartenglagrunni (e. presentation linkbase) sem lýsir stigveldi tegundaraðareininga.
- Útreikningatenglagrunni (e. calculation linkbase) sem lýsir stærðfræðilegu sambandi milli tegundaraðareininga.
- Kennimerkjatenglagrunni (e. label linkbase) sem lýsir merkingu allra tegundaraðareininga.
- Skilgreiningartenglagrunni (e. definition linkbase) sem tryggir niðurstöður víddarprófunar sem gerðar eru á XBRL-skrá og skilgreindar í útvíkkaðri tegundaröðun.
IFRS samstæðureikningsskil (e. IFRS consolidated financial statements) merkir samstæðureikningsskil útbúin í samræmi við annaðhvort IFRS skv. reglugerð (ESB) 1606/2002 eða IFRS sem vísað er til í (a) lið fyrstu undirgreinar ákvörðunar 2008/961/EB.
4. gr. Ívafin IFRS samstæðureikningsskil.
Þar sem ársreikningar innihalda IFRS samstæðureikningsskil, skulu samstæðureikningsskilin vera ívafin (e. mark up) af útgefanda.
Útgefandi skal, að lágmarki, ívefja (e. mark up) upplýsingar (e. disclosures) sem eru tilgreindar í viðauka II við reglugerð (ESB) 2019/815, þar sem þessar upplýsingar eru hluti af IFRS samstæðureikningsskilum.
Útgefandi má ívefja (e. mark up) upplýsingar (e. disclosures) sem eru hluti IFRS samstæðuskila aðrar en þær sem tilgreindar eru í 2. mgr.
Fyrir ívaf (e. mark up) í 1. til 3. mgr. ákvæðisins skal útgefandi nota XBRL ívafsmál (e. mark up language) og nota tegundaröðun (e. taxanomy) þar sem nota skal sömu einingar og í kjarnategundaröðun. Þar sem, í samræmi við 4. punkt viðauka IV við reglugerð (ESB) 2019/815, er ekki viðeigandi að nota einingar úr kjarnategundaröðun, skal útgefandi útbúa útvíkkaða tegundaröðun eininga í samræmi við viðauka IV við reglugerð (ESB) 2019/815.
5. gr. Ívafin reikningsskil önnur en IFRS samstæðureikningsskil.
Útgefendur innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins hafa heimild til að ívefja (e. mark up) aðra hluta ársreikninga en tilgreindir eru í 4. gr. ef XBRL-ívafsmál (e. mark up language) er notað og stuðst er við tegundaröð (e. taxonomy) sem er ætluð tilgreindum hlutum ársreiknings og tegundaröðunin er samþykkt af aðildarríki þar sem útgefandinn er skráður.
6. gr. Sameiginlegar reglur um ívaf.
Fyrir ívaf (e. mark ups) í samræmi við 4. og 5. gr., skal útgefandi fylgja eftirfarandi:
- Samþætting ívafs (e. embedding of markups) í ársreikningi útgefanda í XHTML-sniði skal styðjast við Inline XBRL-tilgreiningu sem sett er fram í viðauka III við reglugerð (ESB) 2019/815.
- Skilyrðum varðandi ívaf (e. marking up) og skráarreglur sem sett eru fram í viðauka IV við reglugerð (ESB) 2019/815.
7. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7 frá 28. janúar 2021, bls. 439-442 og 443-449, sem teknar voru upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2020 frá 12. júní 2020, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22 frá 16. mars 2023, bls. 26-27, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/761 frá 17. desember 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB að því er varðar tiltekna tæknilega eftirlitsstaðla um verulega eignarhluta.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1437 frá 19. maí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um aðgengi að upplýsingum sem reglur kveða á um á vettvangi Sambandsins.
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi viðaukar við eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birt er í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins, og tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2020 frá 12. júní 2020, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 22 frá 16. mars 2023, bls. 26-27, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 20/2021:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/815 frá 17. desember 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/109/EB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um forskriftir fyrir sameiginlegt rafrænt skýrslusnið (birt í Stjórnartíðindum ESB L 143, 29. maí 2019, bls. 1), sbr. leiðréttingar í Stjórnartíðindum ESB L 145, 4. júní 2019, bls. 85, eins og henni var breytt með:
Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2100 frá 30. september 2019 (birt í Stjórnartíðindum ESB L 326, 16. desember 2019, bls. 1).
Með reglum þessum öðlast einnig gildi hér á landi viðaukar við eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sbr. heimild til að vísa í enska útgáfu þeirra í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins í ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 20/2021:
Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1989 frá 6. nóvember 2020 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/815 að því er varðar 2020 uppfærsluna á flokkunarfræðinni sem mælt er fyrir um í tæknilegu eftirlitsstöðlunum fyrir sameiginlega rafræna skýrslusniðið (birt í Stjórnartíðindum ESB L 429, 18. desember 2020, bls. 1) sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2022 frá 10. júní 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66 frá 13. október 2022, bls. 33, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 20/2021.
Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/352 frá 29. nóvember 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/815 að því er varðar 2021 uppfærsluna á flokkunarfræðinni sem mælt er fyrir um í tæknilegu eftirlitsstöðlunum fyrir sameiginlega rafræna skýrslusniðið (birt í Stjórnartíðindum ESB L 77, 7. mars 2022, bls. 1). sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 186/2022 frá 10. júní 2022, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 66 frá 13. október 2022, bls. 34, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 20/2021.
Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2553 frá 21. september 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/815 að því er varðar 2022 uppfærsluna á flokkunarfræðinni sem mælt er fyrir um í tæknilegu eftirlitsstöðlunum fyrir sameiginlega rafræna skýrslusniðið (birt í Stjórnartíðindum ESB L 339 frá 30. desember 2022, bls. 1) sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2023 frá 17. mars 2023, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 26. október 2023, bls. 50, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 20/2021.
Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/19 frá 26. september 2024 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) 2019/815 að því er varðar uppfærsluna frá 2024 á flokkunarfræði fyrir sameiginlegt rafrænt skýrslusnið (birt í Stjórnartíðindum ESB L, 2025/19, 15. janúar 2025) sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 211/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3 frá 15. janúar 2026, bls. 45, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, þar sem bókunin er lögfest og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 20/2021.
8. gr. Gildistaka.
Reglur þessar eru settar með heimild í 1.-4. tölulið 2. mgr. 55. gr., sbr. ákvæði til bráðabirgða, laga nr. 20/2021. Reglurnar taka gildi þegar í stað. Á sama tíma falla úr gildi reglur um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa, nr. 655/2023.
Seðlabanka Íslands, 21. júlí 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 7. ágúst 2026