Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Árnessýsla, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
24. nóvember 2025
Útgáfudagur
5. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1587/2025
24. nóvember 2025
GJALDSKRÁ
Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. vegna skipulagsmála, lóðamála og framkvæmdaleyfa.
1. gr. Gildissvið.
Gjaldskráin gildir fyrir sveitarfélögin Ásahrepp, Bláskógabyggð, Flóahrepp, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
2. gr. Meginreglur.
Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.
Skipulagsnefnd og/eða sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags getur þó ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.
Gjaldskráin sýnir viðmiðunargjald miðað við hefðbundinn tíma og kostnað einstakra mála. Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald, vegna umfangs verksins áskilur Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. sér rétt til að leggja á til viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa sem er 18.400 kr./klst., eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar vinnu embættisins.
Ef nýtt deiliskipulag eða verulegar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi kalla á breytingar á gildandi aðalskipulagi og/eða öðrum deiliskipulagsuppdráttum áskilur Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. sér jafnframt rétt til að innheimta tímagjald skipulagsfulltrúa, 18.400 kr./klst., eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar vinnu embættisins.
3. gr. Skilgreiningar.
Afgreiðslugjald: Gjald sem greitt er við móttöku umsóknar um skipulagsbreytingar, lóðamál eða framkvæmdaleyfi. Afgreiðslugjaldinu er ætlað að standa straum af kostnaði Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. við móttöku og yfirferð erindis sem lagt er fram til afgreiðslu á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa eða fundi skipulagsnefndar. Greiðsla afgreiðslugjalds er óafturkræft þótt erindi sé synjað eða það dregið til baka ef vinna skipulagsfulltrúa/skipulagsnefndar hefur átt sér stað og málið tekið fyrir á fundi.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður: Kostnaður Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. við undirbúning og umsýslu erindis til kynningar og/eða auglýsingar.
4. gr. Innheimta gjalda.
Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. skal innheimta gjöld samkvæmt þessari gjaldskrá fyrir hönd aðildarsveitarfélaga byggðasamlagsins.
Innheimta skal afgreiðslugjald þegar umsókn er lögð fram vegna erindis um breytingu á aðalskipulagi, erindis um nýtt deiliskipulag, verulegar eða óverulegar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi, erindis um lóðamál og erindi um framkvæmdaleyfi. Gjaldskráin tekur mið af því að afgreiðslugjald sé hluti af heildarkostnaði málsmeðferðar. Sé þörf á að vinna nýja skipulagsáætlun eða breytingar á fyrirliggjandi skipulagsáætlun vegna leyfisskyldra framkvæmda innheimtir skipulagsfulltrúi tímagjald skv. 2. gr. þessarar gjaldskrár fyrir þá skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar framkvæmdar.
5. gr. Gjalddagi.
Afgreiðslugjald samkvæmt þessari gjaldskrá skal innheimta við móttöku erindis og skal vera greitt áður en fjallað er um erindi. Umsýslu- og auglýsingagjöld vegna breytinga á aðal- eða deiliskipulagi skal greiða áður en tillaga er auglýst í kjölfar samþykktar þess efnis. Gjald vegna lóðamála, umfram afgreiðslugjald, skal greiða samhliða skráningu til Þjóðskrár. Gjald vegna framkvæmdaleyfis skal greiða samhliða útgáfu leyfisins. Gjald vegna grenndarkynningar skv. 8. gr. þessarar gjaldskrár skal innheimt samhliða byggingarleyfisgjöldum byggingarfulltrúa Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. eftir atvikum.
6. gr. Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga.
| Afgreiðslugjald | 30.555 kr. |
| Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | 311.018 kr. |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2 mgr. 36 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | 91.435 kr. |
7. gr. Kostnaður vegna deiliskipulags.
| Afgreiðslugjald | 30.555 kr. |
| Nýtt deiliskipulag: | |
|
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu |
skv. reikningi |
| Nýtt deiliskipulag án lýsingar og kynningar, skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu | skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38 gr. skipulagslaga nr. 23/2010 | 311.018 kr. |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | 174.388 kr. |
| Verulegar breytingar á deiliskipulagi: | |
|
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu |
skv. reikningi |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | 174.388 kr. |
| Óverulegar breytingar á deiliskipulagi: | |
|
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vinnsla breytingartillögu |
skv. reikningi |
|
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með grenndarkynningu |
81.317 kr. |
|
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, án grenndarkynningar |
20.680 kr. |
8. gr. Kostnaður vegna grenndarkynningar.
|
Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, deiliskipulag ekki fyrir hendi |
60.638 kr. |
9. gr. Kostnaður vegna lóðamála.
| Afgreiðslugjald | 30.555 kr. |
|
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna skv. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með grenndarkynningu, grunngjald |
82.078 kr. |
|
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna skv. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, án grenndarkynningar, grunngjald |
21.440 kr. |
| Stofnun lóða í Landskrá fasteigna á grundvelli deiliskipulags, grunngjald* | afgreiðslugjald |
| Landnúmer umfram eitt (per lóð) | 10.688 kr. |
| Breyting á skráningu í Landskrá fasteigna** | afgreiðslugjald |
* Við stofnun lóða á grundvelli deiliskipulags skal aðeins greitt afgreiðslugjald í upphafi máls sem grunngjald en til viðbótar skal greiða gjald pr. landnúmer umfram eitt.
** Við breytingu á skráningu í Landskrá fasteigna skal aðeins greitt afgreiðslugjald í upphafi máls enda sé um minni háttar breytingar að ræða. UTU áskilur sér rétt til að innheimta tímagjald skipulagsfulltrúa skv. 3. mgr. 2. gr. ef umbeðnar breytingar krefjast verulegrar vinnu af hálfu starfsmanna.
10. gr. Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.
| Afgreiðslugjald | 30.555 kr. |
| Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðmiðunargjald | 128.033 kr. |
| Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald | 56.668 kr. |
| Eftirlit umfram eina ferð sem innifalin er í framkvæmdaleyfisgjaldi* | skv. tímagjaldi |
* Ekki er innheimt afgreiðslugjald til viðbótar.
11. gr. Gjaldtökuheimild og breytingar á fjárhæð gjalda.
Leyfisgjöldum fylgja lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð þar sem við getur átt og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða réttarsáttar.
Leyfisgjöld eru óafturkræf þó leyfi falli úr gildi.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt af stjórn Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. og aðildarsveitarfélögum byggðarsamlagsins. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 988/2021.
Laugarvatni, 24. nóvember 2025.
Nanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 5. janúar 2026