Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
7. október 2026
Útgáfudagur
20. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1106/2026
7. október 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbíu, nr. 887/2015.
1. gr.Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
1.44 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1334 frá 12. júní 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu , sbr. fylgiskjal 1.44.
2.42 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1332 frá 12. júní 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 2.42.
2. gr.Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 7. október 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2026/1334
frá 12. júní 2026
um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir
með tilliti til ástandsins í Líbíu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Hinn 31. júlí 2015 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 (1).
2) Hinn 14. apríl 2026 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2819 (2026) þar sem það áréttaði grundvallarskuldbindingu sína gagnvart fullveldi, sjálfstæði, landamærahelgi og þjóðareiningu Líbíu.
3) Með ályktun öryggisráðsins nr. 2819 (2026) var innleidd breyting á skráningarviðmiðun þeirra sem falla undir þvingunaraðgerðir.
4) Auk þess er gildissviði þeirra ráðstafana, sem beitt var gagnvart Fjárfestingaryfirvaldi Líbíu (e. Libyan Investment Authority), breytt með ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026).
5) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda tilteknum ráðstöfunum í framkvæmd.
6) Því ætti að breyta ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 til samræmis við það.
SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:
1. gr.
Ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 er breytt sem hér segir:
1) Í stað 1. mgr. 8. gr. kemur eftirfarandi:
„1. Aðildarríki skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að inn á yfirráðasvæði þeirra komi eða um þau fari aðilar sem öryggisráð SÞ eða nefndin hefur tilgreint og látið sæta ferðatakmörkunum í samræmi við 22. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1970 (2011), 23. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1973 (2011), 4. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2174 (2014), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2213 (2015), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2362 (2017), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2441 (2018), 18. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025) eða 19. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026), sbr. skrána í I. viðauka.“
2) Ákvæðum 9. gr. er breytt sem hér segir:
a) Í stað 1. mgr. kemur eftirfarandi:
„1. Frysta skal alla fjármuni, aðrar fjáreignir og efnahagslegan auð sem er með beinum eða óbeinum hætti í eigu eða undir stjórn aðila og rekstrareininga sem öryggisráð SÞ eða nefndin hefur tilgreint og látið sæta frystingu eigna í samræmi við 22. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1970 (2011), 19. og 23. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1973 (2011), 4. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2174 (2014), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2213 (2015), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2362 (2017), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2441 (2018), 18. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025) eða 19. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026), sbr. skrána í III. viðauka.“
b) Í stað 15. mgr. kemur eftirfarandi:
„15. Eftir að hlutaðeigandi aðildarríki hefur sent nefndinni tilkynningu og að því tilskilduað nefndin hafi samþykkt notkun frysts reiðufjárvarasjóðs, eins og um getur, og í samræmi við, 14. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025), sem felur í sér samráð við ríkisstjórn Líbíu, og 14. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026), skulu lögbær stjórnvöld þess aðildarríkis heimila notkun á frystum reiðufjárvarasjóði, sem tilheyrir rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmeri 1 í VI. viðauka, eingöngu til fjárfestinga í:
a) bundnum innlánum með litla áhættu hjá viðeigandi fjármálastofnun, sem valin er af rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmeri 1 í VI. viðauka og staðsett í aðildarríkinu þar sem fjármunirnir eru frystir, ef um er að ræða frystan reiðufjárvarasjóð sem um getur í „tilmælum 7.1“ sem um getur í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025) eða
b) gerningum með fasta ávöxtun, ef um er að ræða frystan reiðufjárvarasjóð sem um getur í „tilmælum 7.2“ sem um getur í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025),
í samræmi við samþykki nefndarinnar.“
c) Eftirfarandi málsgreinum er bætt við:
„18. Eftir að hlutaðeigandi aðildarríki hefur sent nefndinni tilkynningu og að því tilskildu að nefndin hafi samþykkt millifærslu á frystum fjármunum, öðrum fjáreignum eða efnahagslegum auði, og í samræmi við 15. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026), skulu lögbær stjórnvöld þess aðildarríkis heimila millifærslu á tilteknum frystum fjármunum, öðrum fjáreignum eða efnahagslegum auði, sem tilheyrir rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmeri 1 í VI. viðauka, innan sömu lögsögu, milli vörslubanka, eða fjármálastofnunar sem starfar sem aðalvörsluaðili (eða undirvörsluaðila sem starfa fyrir þeirra hönd), til annars vörslubanka eða fjármálastofnunar (eða undirvörsluaðila sem starfa fyrir þeirra hönd), í þeim tilgangi að flytja hlutverk aðalvörsluaðila til þess vörslubanka eða þeirrar fjármálastofnunar, að því tilskildu:
a) að meðan á millifærslunni stendur og að henni lokinni séu eignirnar meðhöndlaðar sem frystar og heyri undir þær ráðstafanir sem mælt er fyrir um í þessari ákvörðun,
b) að millifærslan sé framkvæmd þannig að form og verðmæti fjármunanna, annarra fjáreigna eða efnahagslegs auðs, sem verið er að millifæra, haldist óbreytt.
19. Í tilkynningu aðildarríkisins til nefndarinnar, sem um getur í 18. mgr., skal koma fram fjárhæð og eðli frystu fjármunanna, annarra fjáreigna eða efnahagslegs auðs sem á að millifæra og hverjir núverandi og fyrirhugaðir vörslubankar, eða fjármálastofnanir sem gegna vörsluhlutverki, eru.
20. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 18. mgr. innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“
2. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Gjört í Lúxemborg 12. júní 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. KERAVNOS
(1) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 frá 31. júlí 2015 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar 2011/137/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 206, 1.8.2015, bls. 34, ELI: https://data.europa.eu/eli/dec/2015/1333/oj).
REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2026/1332
frá 12. júní 2026
um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir
með tilliti til ástandsins í Líbíu
RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
með hliðsjón af ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1334 frá 15. júní 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu (1),
með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Með reglugerð ráðsins (ESB) nr. 2016/44 (2) koma til framkvæmda ráðstafanir sem kveðið er á um í ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 (3) um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu.
2) Hinn 14. apríl 2026 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2819 (2026) þar sem innleidd var breyting á skráningarviðmiðun þeirra sem falla undir þvingunaraðgerðir. Í henni er einnig breytt gildissviði ráðstafana gagnvart Fjárfestingaryfirvaldi Líbíu (e. Libyan Investment Authority).
3) Þessar breytingar falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er reglusetning á vettvangi Sambandsins nauðsynleg til að hrinda þeim í framkvæmd, einkum til að tryggt sé að þeim verði beitt með sama hætti í öllum aðildarríkjunum.
4) Því ætti að breyta reglugerð (ESB) 2016/44 til samræmis við það.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/44 er breytt sem hér segir:
1) Í stað 1. mgr. 6. gr. kemur eftirfarandi:
„1. Ákvæði II. viðauka skulu taka til þeirra einstaklinga eða lögaðila, rekstrareininga og stofnana sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna eða framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir tilgreinir í samræmi við 22. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1970 (2011), 19., 22. eða 23. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 1973 (2011), 4. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2174 (2014), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2213 (2015), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2362 (2017), 11. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2441 (2018), 18. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025) eða 19. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026).“
2) Í stað 1. mgr. 11. gr. a kemur eftirfarandi:
„1. Eftir að hlutaðeigandi aðildarríki hefur sent framkvæmdanefndinni um þvingunaraðgerðir tilkynningu og að því tilskildu að framkvæmdanefndin hafi samþykkt notkun frysts reiðufjárvarasjóðs, eins og um getur, og í samræmi við, 14. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025), sem felur í sér samráð við ríkisstjórn Líbíu, og 14. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026), skulu lögbær stjórnvöld þess aðildarríkis heimila notkun á frystum reiðufjárvarasjóði, sem tilheyrir rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmeri 1 í VI. viðauka, eingöngu til fjárfestinga í:
a) bundnum innlánum með litla áhættu hjá viðeigandi fjármálastofnun, sem valin er af rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmer 1 í VI. viðauka og staðsett í aðildarríkinu þar sem fjármunirnir eru frystir, ef um er að ræða frystan reiðufjárvarasjóð sem um getur í „tilmælum 7.1“ sem um getur í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025) eða
b) gerningum með fasta ávöxtun, ef um er að ræða frystan reiðufjárvarasjóð sem um getur í „tilmælum 7.2“ sem um getur í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2769 (2025),
í samræmi við samþykki framkvæmdanefndarinnar um þvingunaraðgerðir.“
3) Eftirfarandi grein er bætt við:
„11. gr. b
1. Eftir að hlutaðeigandi aðildarríki hefur sent framkvæmdanefndinni um þvingunaraðgerðir tilkynningu og að því tilskildu að framkvæmdanefndin hafi samþykkt millifærslu á frystum fjármunum eða efnahagslegum auði, og í samræmi við 15. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2819 (2026), skulu lögbær stjórnvöld þess aðildarríkis heimila millifærslu á tilteknum frystum fjármunum eða efnahagslegum auði, sem tilheyrir rekstrareiningunni sem skráð er undir færslunúmer 1 í VI. viðauka, innan sömu lögsögu, milli vörslubanka, eða fjármálastofnunar sem starfar sem aðalvörsluaðili (eða undirvörsluaðila sem starfa fyrir þeirra hönd), til annars vörslubanka eða fjármálastofnunar (eða undirvörsluaðila sem starfa fyrir þeirra hönd), í þeim tilgangi að flytja hlutverk aðalvörsluaðila til þess vörslubanka eða þeirrar fjármálastofnunar, að því tilskildu:
a) að meðan á millifærslunni stendur og að henni lokinni séu eignirnar meðhöndlaðar sem frystar og heyri undir þær ráðstafanir sem mælt er fyrir um í þessari reglugerð,
b) að millifærslan sé framkvæmd þannig að form og verðmæti fjármunanna eða hins efnahagslega auðs, sem verið er að millifæra, haldist óbreytt.
2. Í tilkynningu aðildarríkisins til framkvæmdanefndarinnar um þvingunaraðgerðir, sem um getur í 1. mgr., skal koma fram fjárhæð og eðli frystu fjármunanna eða efnahagslega auðsins sem á að millifæra og hverjir núverandi og fyrirhugaðir vörslubankar, eða fjármálastofnanir sem gegna vörsluhlutverki, eru.
3. Viðkomandi aðildarríki skal tilkynna hinum aðildarríkjunum og framkvæmdastjórninni um sérhverja heimild sem veitt er skv. 1. mgr. innan tveggja vikna frá því að hún er veitt.“
2. gr.
Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Lúxemborg 12. júní 2026.
Fyrir hönd ráðsins,
forseti
M. KERAVNOS
(1) Stjtíð. ESB L, 2026/1334, 15.6.2026, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2026/1334/oj.
(2) Reglugerð ráðsins (ESB) 2016/44 frá 18. janúar 2016 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 204/2011 (Stjtíð. ESB L 12, 19.1.2016, bls. 1, ELI: http://data.europa.eu/eli/reg/2016/44/oj).
(3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1333 frá 31. júlí 2015 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu og niðurfellingu ákvörðunar 2011/137/SSUÖ (Stjtíð. ESB L 206, 1.8.2015, bls. 34, ELI: http://data.europa.eu/eli/dec/2015/1333/oj).
B deild — Útgáfudagur: 20. október 2026