Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Orkumál, Seltjarnarnes
Undirritunardagur
12. nóvember 2013
Útgáfudagur
29. nóvember 2013
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1057/2013
12. nóvember 2013
AUGLÝSING
um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.
Samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237, 4. mars 2011 og orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967, með síðari breytingum hefur ráðuneytið staðfest eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012, er tekur gildi 1. desember 2013.
3. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
Gjöld fyrir afnot af heita vatninu er sem hér segir:
| Tegund | Veitusvæði | Kr. | 2% skattur | Með 7% vsk | Grunnur |
| Einingaverð | Sala í þéttbýli, húshitun | 71,00 | 1,42 | 77,49 | kr./m³ |
| Tegund | Veitusvæði | Kr. | 2% skattur | Með 25,50% vsk | Grunnur |
| Einingaverð | Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu | 71,00 | 1,42 | 90,89 | kr./m³ |
| Einingaverð | Sala í þéttbýli, til iðnaðar | 71,00 | 1,42 | 90,89 |
| Tegund | Stærð mælis | Kr. | 2% skattur | Með 7% vsk | Grunnur |
| Fast verð | A: 15 mm og stærri | 18,08 | 0,36 | 19,73 | kr./dag |
Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er óháð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.
5. gr. gjaldskrárinnar verður svohljóðandi:
| Kr. | |
| Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m³ að stærð | 178.500 |
| Umframgjald fyrir hús að stærð 300-1.000 m³ | 215 pr. m³ |
| Umframgjald fyrir hús að stærð yfir 1.000 m³ | 144 pr. m³ |
| 1 rennslismælir á grind | 53.160 |
Fast gjald er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er samkvæmt mæli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. nóvember 2013.
F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Hreinn Hrafnkelsson.
B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2013