Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
1. september 2026
Útgáfudagur
16. september 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 998/2026
1. september 2026
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 111/2026 um stjórnun upplýsingaverndaráhættu með möguleg áhrif á flugöryggi.
1. gr.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/22 frá 19. desember 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2022/1645 að því er varðar kröfur um upplýsingavernd fyrir fyrirtæki sem veita flugafgreiðslu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 269-272.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2293 frá 10. nóvember 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/203 að því er varðar kröfur sem gilda um fyrirtæki sem falla undir yfirlýsingu og um leiðréttingu á reglugerðum (ESB) nr. 1178/2011, (ESB) nr. 748/2012, (ESB) nr. 965/2012, (ESB) nr. 139/2014, (ESB) nr. 1321/2014, (ESB) 2015/340 og framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 384-394.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 20. gr., 72. gr., 152. gr. og 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 1. september 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. september 2026